Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Snæþór Helgi dæmdur fyrir grófar líkamsárásir á fyrrverandi kærustu

Snæþór Helgi Björns­son er mað­ur­inn sem var dæmdur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í fjög­urra ára óskil­orðs­bundið fang­elsi í síð­ustu viku en dóm­ur­inn var birtu í gær.

Fram kemur í frétt mbl.is að Snæþór hafi verið sak­felldur fyrir ein­stak­lega hættu­legar lík­ams­árásir gagn­vart fyrr­ver­andi kær­ustu sinni en hann réðst á hana þrí­vegis á hrotta­feng­inn hátt.

Lands­réttur felldi úr gildi úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkum sem kvað á um að hann skyldi sæta gæslu­varð­haldi í hálft ár á meðan áfrýj­un­ar­frest­ur­inn rennur út.

Þrjár árásir

Fram kemur í dóm­inum að Snæþór hafi verið sak­felldur fyrir að hafa hrint fyrr­ver­andi kær­ustu sinni niður tröppur af stiga­palli í stiga­gangi. Í kjöl­farið sló Snæþór og spark­aði í höfuð og and­lit kon­unnar. Þá spark­aði hann einnig ítrekað í vinstri síðu hennar. Lá hún þá á jörð­inni með höf­uðið grúfið í jörð­ina er Snæþór spark­aði í hnakka hennar.

Einnig var Snæþór ákærður fyrir að beita kon­una ofbeldi í íbúð fyrr um kvöldið en ekki var talin lög­full sönnun fyrir sak­fell­inu og var hann því ekki sak­felldur fyrir þá árás.

Seinna sama kvöld sló Snæþór, kýldi og spark­aði end­ur­tekið í lík­ama og höfuð kon­unnar þegar þau voru saman í skrúð­garði. Var hann sak­felldur fyrir þá árás. Í árásinni hélt hann kon­unni niðri þar sem hún lá í jörð­inni, reif í hár hennar og hélt um vit hennar, þannig að hún átti erfitt með öndun. Af þessum tveimur árásum hlaut konan eymsli en þau sáust á hár­sverði, hnakka og á gagn­auga. Einnig voru merki um að hár hafi verið rifin úr hár­sverði hennar, hún hafði brotna tönn og blóð rann úr nefi hennar. Aukreitis var konan með eymsli yfir kjálka­liðum og tognun á kálfa, mar á hálsi, hægra brjósti og öllum útlimum.

Áður greindi mbl.is frá annarri lík­ams­árás sem Snæþór var ákærður fyrir, gagn­vart sömu konu en Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sak­felldi hann fyrir þau brot.

Var hann sak­felldur fyrir að hafa slegið konu þar til hún datt í jörð­ina, dregið hana svo að læk sem var í nágren­inu, tekið hana háls­taki og haldið höfði hennar undir yfir­borði vatns­ins. Eftir það dró Snæþór kon­una aftur upp úr læknum, tramp­aði og spark­aði á höfði, and­liti og víðs vegar á lík­ama hennar. Ekki lauk árásinni fyrr en vitni kom að og hróp­aði til hans en við það flúði Snæþór af vett­vangi á hlaupum.

Snæþór var sak­felldur fyrir þau brot sem flokk­ast undir sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás en ákæru­valdið krafð­ist einnig sak­fell­ingar fyrir mann­dráp­stil­raun en ekki tókst að sanna að Snæþór hefði þann ásetn­ing að drepa kon­una.

Þá var Snæþór aukreitis dæmdur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkni­efni.

Alls hlaut konan 2,5 millj­ónir í miska­bætur en við ákvörðun fjár­hæðar miska­bóta var litið til þess að hátt­ar­lag Snæþórs hafi verið gróf. Konan hafi hlotið mikið tjón vegna árásanna en vott­orð og fram­burður sál­fræð­ings studdi það mat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

6
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum