Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Stefán tuðar yfir sorphirðumálum: „Fyllast alltaf á svipstundu og hafa alltaf gert“

Stefán Pálsson. Myndin er samsett.
Stefán Pálsson. Myndin er sam­sett.

Sorp­hirðan í Reykja­vík­ur­borg hefur valdið tölu­verðum usla og margir undra sig á fyr­ir­komu­lag­inu. Þeirra á meðal er Stefán Pálsson, sagn­fræð­ingur, sem birti færslu undir yfir­skrift­inni Stefán tuðar yfir sorp­hirðu­málum.

„Síðdegis á föstu­dag átti ég leið fram­hjá grennd­ar­stöð­inni í hverf­inu. Þá var verið að tæma papp­írs­gám­inn. Nú í hádeg­inu labb­aði ég aftur fram­hjá og þá var hann orð­inn hálf­fullur. Það var þrátt fyrir að í gær­morgun hafi sorp­hirðan mætt í göt­una og tæmt papp­írs- og plast­t­unn­urnar. Þessir gámar fyll­ast alltaf á svip­stundu og hafa alltaf gert,“ skrifar Stefán en tafir á tæm­ingu tunna hafa verið tíðar í vetur.

Stefán telur að vanda­málið muni leys­ast síðar í vik­unni þar sem fyr­ir­hugað er að fjar­lægja plast- og papp­írs­gáma í Hlíðunum, og koma fyrir gámum undir málma og textíl. Hann gagn­rýnir þó ákvörð­un­ina:

„Hvernig getur þá verið skyn­sam­legt að byggja upp kerfi sem miðar við að úrgangnum sem maður þarf sjaldn­ast að losna við sé í safnað saman í stuttu göngu­færi en algeng­ustu sorp­flokk­ana þurfi að fara með að Kjar­vals­stöðum þar sem tveir djúp­gámar fyrir pappír eiga að leysa af hólmi þá tvo gáma sem þar eru núna (og alltaf troð­fullir) og svo líka koma í stað­inn fyrir Eski­hlíðar-, Hamra­hlíðar- og Ból­stað­ar­hlíð­ar­gám­inn? Þetta gengur ekki upp.“

Hann telur sig vita að svar Borg­ar­innar yrði á þá leið að plats- og papp­írs­gámar í grennd­ar­stöðum séu óþarfir þar sem íbúar séu nú með til­heyr­andi tunnur við heim­ili sín.

„En þótt útreikn­ing­arnir sýni það kannski, þá er það bara aug­ljós­lega ekki veru­leik­inn. Eigum við í alvör­unni að trúa því að fólk í öllu hverf­inu sé almennt að arka með fangið fullt af pappír og plasti í næsta grennd­ar­gám þrátt fyrir að þeirra eigin tunnur standi tómar? Er hugs­unin sú að með því að fjar­lægja grennd­ar­gáma­kost­inn muni fólk fyrst fást til að troða oní tunn­una sína? Það hljómar lang­sótt,“ bætir Stefán við í lokin.

Sparnaður í plast- og pappírsgámum

Umræður hafa skap­ast í athuga­semda­kerfi við færslu Stefáns. Þar bendir Stefán á að:

„Markmið þess sem stjórnar tækni­kerf­inu hlýtur því að vera að láta sem lengst líða á milli almennra ferða eftir sorp­inu til heim­ila, þannig að allar tunnur verði sem næst því að vera fullar – en þó ekki svo langt að það sé farið að valda ein­stak­lingum vand­ræðum …Og í því skyni myndi ég einmitt halda að grennd­ar­gámar fyrir plast og pappír ættu að spara stórfé í rekstr­inum, því ef þeir eru á svæð­inu og tæmdir reglu­lega er hægt að vísa þeim sem mestu henda þangað – taka af kúf­inn. Án grennd­ar­gámana mynd­ast þrýst­ingur á að auka tíðni tæm­inga við heim­ilin með miklu meiri kostn­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum