Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Boða mótmæli fyrir utan ríkisstjórnarfund í fyrramálið

„Gaza getur ekki beðið lengur!“

Mótmæli
Mótmæli Frá 7. októ­ber hafa mót­mæli gegn þjóð­ar­morði Ísraela verið áber­andi. Mynd: Ljósmynd: Björgvin Gunnarsson

Félagið Ísland-Palest­ína boðar til mót­mæla fyrir utan rík­is­stjórn­ar­fund í fyrra­málið.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu hyggst Félagið Ísland-Palest­ínu mót­mæla á morgun klukkan 08:45 fyrir utan Hverf­is­götu 4 þar sem rík­is­stjórn Íslands mun funda. Krefst félagið að rík­is­stjórnin ræði stöð­una á Gaza á fund­inum og að Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra standi við orð sín um að eiga frum­kvæði að við­ræðum við önnur ríki Norð­ur­land­anna um mögu­legar efna­hags­legar og póli­tískar þving­un­ar­að­gerðir gagn­vart Ísrael, „eins og for­sæt­is­ráð­herra hefur sjálf ítrekað talað um,“ eins og það er orðað í til­kynn­ing­unni.

Þar stendur einnig eft­ir­far­andi texti:

„Síðan vopna­hlé á Gaza var sam­þykkt hefur Ísra­els­ríki ítrekað brotið vopna­hléssamn­ing­inn. Ísra­els­her hefur drepið yfir hund­rað Palest­ínu­menn á Gaza auk þess að loka á raf­magn og á allan inn­flutn­ing á neyð­ar­að­stoð inn á Gaza: mat­væli, vatn, lyf og aðrar nauð­synja­vörur. Staðan á Gaza er alvar­legri en við getum ímyndað okkur. Þving­aðir brott­flutn­ingar, áform um þjóð­ern­is­hreins­anir, þjóð­ar­morð og land­töku á Gaza eru rædd fyrir opnum dyrum í Ísrael og af Banda­ríkja­for­seta. Þjóð­ern­is­hreins­anir Ísraels eru einnig í fullum gangi á Vest­ur­bakk­anum þar sem yfir 40.000 manns hafa veirð hrakin af heim­ilum sínum síðan vopna­hlé var sam­þykkt.“

Enn­fremur segir í frétta­til­kynn­ingu félags­ins að stríðs­glæpir Ísra­els­hers haldi áfram án aðgerða frá alþjóða­sam­fé­lag­inu og að á meðan molni undan alþjóða­kerf­inu. „Ísrael hefur hunsað allar álykt­anir SÞ, alla bráða­birgða­úr­skurði alþjóða­dóm­stóls­ins og öll áköll alþjóða­sam­fé­lags­ins.“

Þá er minnst á skýrslu Mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna sem gefin var út fyrir helgi, sem sýnir að Ísrael noti kyn­bundið ofbeldi og kyn­ferð­is­of­beldi af ásetn­ingi til að kúga palest­ínsku þjóð­ina, „og kemst skýrslan að þeirri nið­ur­stöðu að Ísrael ger­ist sekt um stríðs­glæpi, glæpi gegn mann­kyni og þjóð­ar­morð. Ísland á sæti í Mann­réttinda­ráði SÞ og ber skylda til að fylgja nið­ur­stöðum skýrsl­unnar eftir með aðgerðum.“

Að lokum hvetur félagið fólk til þess að fjöl­menna og þrýsta á for­sæt­is­rá­herra og rík­is­stjórn­ina að „standa við orð sýn um að eiga frum­kvæði að við­ræðum við önnur Norð­ur­landa­ríki um efna­hags­legar og póli­tískar þving­un­ar­að­gerðir gagn­vart Ísrael. Gaza getur ekki beðið lengur!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum