Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Vara við fjárhagsráðum á TikTok

Meiri­hluti „finfluencera“ án rétt­inda

Dýrir bílar og lúxushótel: Varúðarmerkin sem þú verður að þekkja þegar þú skoðar TikTok
Dýrir bílar og lúx­us­hótel: Var­úð­ar­merkin sem þú verður að þekkja þegar þú skoðar TikTok Mynd: Unsplash/Vitaly Gariev

Ungt fólk treystir í auknum mæli á sam­fé­lags­miðla þegar það er að leita að fjár­mála­ráð­gjöf. Ný grein­ing sýnir hins vegar að yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra sem eru að gefa þessi ráð á miðlum eins og TikTok skortir menntun eða reynslu á svið­inu.

Á miðlum eins og TikTok og Instagram iðar allt af mynd­böndum þar sem fólk og jafn­vel gervi­greind­ar­bottar deila ráðum um hvernig megi verða ríkur á skömmum tíma. „Vopna- og her­gagna­geir­inn gerir fólk að millj­óna­mær­ingum í 95% til­fella,“ full­yrðir einn TikTok-not­andi til að mynda í vin­sælu mynd­bandi.

Sér­fræð­ingar segja ástæðu til að sýna fyllstu varúð. Ný grein­ing á 150 vin­sælum fjár­mála­tengdum mynd­böndum á TikTok, sem miðl­ar­inn BrokerL­ist­ings.com vann, sýnir slá­andi nið­ur­stöður:

  • Yfir 70% höf­unda höfðu enga sann­an­lega menntun, bak­grunn eða rétt­indi til að veita almenn­ingi fjár­hags­ráð­gjöf.
  • Rúmlega 60% mynd­band­anna slepptu því alveg að útskýra áhætt­una eða nei­kvæðu hlið­arnar á fjár­hags­legu vör­unum sem mælt var með.

Unga fólkið treystir miðlunum

Þrátt fyrir þetta sýna kann­anir að traust ungs fólks á þessum miðlum er mikið. Samkvæmt rann­sókn þýska fjár­mála­eft­ir­lits­ins (BaFin) telur rúm­lega helm­ingur fólks í Millenn­íum- og Gen Z-kyn­slóð­unum að sam­fé­lags­miðlar séu áreið­an­leg upp­spretta fjár­hags­upp­lýs­inga. Þá líta 60% á þá sem góðan val­kost við fag­lega ráð­gjöf.

Ulf Linke, sér­fræð­ingur hjá BaFin, segir þró­un­ina skýra. Formið á stuttum mynd­böndum hentar hins vegar illa fyrir flóknar fjár­málafor­múlur. James Barra hjá BrokerL­ist­ings bendir á að mik­il­vægt sam­hengi glat­ist í stuttum klippum. Fjár­fest­ing sem gæti verið lítil áhætta fyrir reyndan fjár­festi getur reynst afdrifa­rík fyrir ungan ein­stak­ling sem setur allt spari­féð sitt í sömu körf­una.

Eftirlitsaðilar grípa í taumana

Vegna þessa hafa evr­ópskir eft­ir­lits­að­ilar herpt netið utan um svo­kall­aða „finfluencera“ (áhrifa­valda á fjár­mála­sviði). Evr­ópu­þingið hefur kallað eftir lág­marks­kröfum til að vernda neyt­endur gegn fal­inni aug­lýs­inga­tækni, svikum og gervi­grend­ar­efni.

Verð­bréfa­mark­aðs­eft­ir­lit Evrópu (ESMA) gaf nýverið út leið­bein­ingar þar sem áréttað er að strangar reglur gildi um fjár­fest­inga­ráð­gjöf, jafn­vel þótt hún birt­ist á sam­fé­lags­miðlum. Þeir sem tjá sig um hluta­bréf eða raf­myntir verða að koma til dyr­anna eins og þeir eru klæddir, aðskilja stað­reyndir frá skoð­unum og upp­lýsa ef þeir hagn­ast sjálfir á ráð­gjöf­inni.

ESMA tekur jafn­framt fram að algengir fyr­ir­varar á borð við „þetta er ekki fjár­fest­inga­ráð­gjöf“ fríi fólk ekki laga­legri ábyrgð ef inni­haldið flokk­ast sem slíkt.

Ekki allt af hinu vonda

Þótt mikið sé um vafa­samt efni finn­ast dæmi um góða fræðslu. Rann­sak­endur BrokerL­ist­ings nefna að margir miðlar bjóði upp á gagn­leg ráð um hvernig eigi að gera fjár­hags­á­ætl­anir, greiða niður skuldir og byggja upp neyð­ar­sjóði. Nefna má þýsku rás­ina Finanzfluss sem dæmi um vett­vang sem ein­blínir á almenna fjár­mála­fræðslu fremur en að þrýsta á fólk að kaupa ákveðin hluta­bréf.

Sér­fræð­ingar segja að fólk eigi alltaf að leita eftir nafni höf­undar, bak­grunni hans og hvort hags­muna­á­rekstrar séu til staðar (t.d. þóknun fyrir að smella á tengla). Ef slíkt vantar, eða ef mynd­böndin ein­kenn­ast af miklu glysi eins og dýrum bílum og lúx­us­hót­elum og tíma­pressu, ætti fólk að hafa var­ann á. Besta reglan er að bera upp­lýs­ing­arnar alltaf saman við opin­berar skýrslur, við­ur­kennda fjöl­miðla eða skrár fjár­mála­eft­ir­lita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Peningar

Peningar

Danskur hag­fræð­ingur segir krón­una hafa verið mis­heppn­aða til­raun í heila öld

Árið 2027 verður öld liðin frá því að Landsbankinn tók við hlutverki seðlabanka. Lars Christensen segir þá sögu ekki vera árangurssögu.
  • Peningar

    „Þetta er nú meiri vikan“

  • Peningar

    Tveir þekktir skyndi­bita­staðir inn­sigl­aðir að beiðni Skatts­ins

  • Peningar

    Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

  • Peningar

    Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

  • Peningar

    Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann