Samfylkingin fær stóra herbergið á Alþingi eftir allt saman, eftir að reglunum þar á bæ var breytt. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir segir fýluna sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins fóru í vegna herbergismálsins, vera fáránlega í samhengi við raunverulegar áskoranir sem almenningur stendur frammi fyrir daglega.
„Þetta er auðvitað svo fáranlegt í samhengi við allar þær raunverulegu áskoranir sem fólk stendur frammi fyrir í samfélaginu. Sjálfstæðisflokkurinn á ekkert meira tilkall til vinnuherbergis sem er í almannaeigu frekar en einhver annar – og er það bara hollt að fólk og flokkar séu minnt á að völd þeirra og hefðir eru ekki náttúrulögmál.“ Þannig hefst Facebook-færsla Uglu Stefaníu þar sem hún talar stuttlega um fréttina af því að Samfylkingin fái eftir allt saman stóra herbergið sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins töldu sig hálfpartinn eiga.
Í seinni hluta færslunnar segir hún fýlu Sjálfstæðismanna vera farsakennda:
„Ég held allavega að fólk hafi meiri áhyggjur af því að hafa ekki öruggt húsnæði á leigumarkaði, slæmt aðgengi að greiðri heilbrigðisþjónustu, loftslagsvá, og að ná endum saman svo fátt sé nefnt. Það að fara í fýlu út af vinnuherbergi þegar þú ert í einum valdamestu stöðum í samfélaginu hljómar allavega ekki eins og raunverulegt vandamál, og eiginlega bara meira eins og einhver farsi hjá fólki sem er alls ekki meðvitað um sín forréttindi.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir