Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Selja höll í Garðabæ með þreföldum bílskúr

Húsið var reist árið 1984

Hólaprýði 5
Hóla­prýði 5

Glæsilegt einbýlishús við Hólprýði 5 í Garðabæ hefur verið sett á sölu fyrir 250 milljónir króna. Eignin er samtals 282,1 fermetri og stendur á rúmlega 1.500 fermetra hraunlóð í Prýða­hverfi.

Húsið var reist árið 1984 og teiknað af Vífli Magnússyni arkitekt. Sjálft íbúðar­húsið er 203,3 fermetrar á tveimur hæðum en við það er 78,8 fermetra þrefaldur bílskúr. Þar að auki er rúmgott og manngengt geymslu­loft yfir bílskúrnum sem er ekki talið með í skráðri fermetra­stærð eignarinnar.

Á neðri hæð hússins eru meðal annars þrjú svefn­herbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús og opið rými þar sem hol, borðstofa og sjónvarpshol tengjast saman. Þaðan er gengið út á stóra verönd sem snýr í suður.

Á efri hæðinni er stór og björt stofa með mikilli lofthæð og arni. Úr stofunni er gengið út á svalir til vesturs. Þar er einnig rúmgóð hjóna­svíta með sérbaðherbergi og svölum sem snúa til austurs.

Lóðin er 1.563 fermetrar og hefur náttúru­legu hrauninu að mestu verið leyft að halda sér. Í fasteigna­auglýsingu er staðurinn sagður einstak­lega kyrrlátur og skjólsæll, auk þess sem göngu- og hjóla­stígar eru í næsta nágrenni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“