Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Sólveig segir Agnieszku ljúga: „Einstaklega vanþroskuð, svo vægt sé tekið til orða“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Mynd/skjáskot RÚV
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

„Ég get ekki annað en spurt mig hvort að vara­formanni sé sjálfrátt þegar hún tekur ákvörðun um að láta hafa eftir sér ósannindin í blaða­viðtali,“ skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður stéttar­félagsins Eflingar í Facebook færslu í dag. Í færslunni segir Sólveig vara­formann ljúga.

Agnieszka Ewa Ziolkowska, vara­formaður Eflingar, segir frá atvikum og samskiptum innan Eflingar í helgar­viðtali Frétta­blaðsins. Heldur Sólveig því nú fram að Agnieszka ljúgi í viðtalinu. Þá bætir hún því við að sýn Agnieszku á bæði félags­störf og rétt félags­fólks sé „einstak­lega vanþroskuð, svo vægt sé tekið til orða.“

Hér að neðan má lesa Facebook færslu Sólveigar í heild sinni.

„Ég var að enda við að lesa viðtal við vara­formann Eflingar í Frétta­blaðinu. Rang­færslurnar og ósannindin eru fjölmörg. Það er engu líkara en að ég og hún höfum síðustu ár ekki dvalið í sama veruleika. Til dæmis er afskaplega undarlegt að lesa frásögn Agnieszku af atburðarás þeirri sem fór af stað þegar að starfs­maður á skrif­stofunni sakaði hana um einelti. Ég get ekki annað en spurt mig hvort að vara­formanni sé sjálfrátt þegar hún tekur ákvörðun um að láta hafa eftir sér ósannindin í blaða­viðtali. Tilraun mín til að liðsinna henni og finna lausn svo að ekki kæmi til formlegrar eineltis­kvörtunar gegn henni er nú máluð upp sem illvilji minn gagnvart henni, og samsæris­kenning útbúin þar sem kvörtunin er í raun runnin undan mínum rifjum til að koma í veg fyrir að Agnieszka gæti setið fundi. Samskonar furðulega afbökun á raun­veru­leikanum má lesa í frásögn vara­formanns af fundi sem við áttum síðar. Hún virðist trúa því að ég hafi óskað eftir fundi með henni til að koma í veg fyrir að hún sæti fund um vinnu við vefsíðu félagsins. Ástæða þess að ég átti með henni samtal var framkoma hennar á vinnu­staðnum, en þar átti hún því miður iðulega erfitt með að hafa stjórn á skapi sínu. Vara­formaður lætur einnig hafa það eftir sér að ég hafi iðulega reiðst henni og sýnt henni einhverskonar fautaskap, en það er ekki svo. Þau sem sátu stjórnar­fundi með okkur sem og þau sem urðu vitni að samskiptum okkar á vinnu­staðnum eru til vitnis um að ég sýndi henni aldrei annað en vinskap og hlýju, og reyndi mitt besta til að hjálpa henni að fóta sig í nýju vinnu­umhverfi en það reyndist henni mikil áskorun.

Í viðtalinu segir Agnieszka Ewa að ég hafi ekki tilkynnt hótun frá starfs­manni skrif­stofunnar gegn mér til lögreglunnar. Ég skil ekki af hverju hún finnur sig knúna til að segja ósatt um þetta. Samskipti mín við lögregluna á höfuð­borgar­svæðinu hófust 20. október og hótunin var skráð/tilkynnt í málakerfi lögreglunnar þann 4. nóvember. Í hugar­heimi Agnieszku er þetta allt mjög óljóst og mikið sem hún skilur ekki eins og kemur fram í viðtalinu, en hún sér samt ekkert athuga­vert við að staðhæfa um málið í þeim tilgangi að láta það hljóma líkt og ég segi ósatt. Þarna fetar hún í fótspor Gabríel Benjamíns, starfs­manns skrif­stofunnar sem fann sig knúinn til að senda mönnum útí bæ persónuleg skilaboð um það að frásögn mín af hótuninni sem beinist gegn mér og heimili mínu væri “pjúra lygi”.

Enn af ósannindum vara­formanns í viðtalinu: Hún heldur því fram að ég hafi krafist þess að fá að sitja alla fundi trúnaðar­ráðs eftir að ég sagði af mér sem formaður. Staðreyndin er sú að ég óskaði eftir því með tölvu­pósti dagsettum 8. nóvember að fá að sitja einn fund þar sem að afsögn mín yrði til umræðu, til þess að segja mína hlið. Þann 10. nóvember dró ég ósk mína til baka, enda hafði þá runnið upp fyrir mér að Agnieszka og Ólöf Helga ætluðu sér ekki að virða mig svars. Það er sorglegt að lesa hvernig vara­formaður ræðst svo með svívirðingum að meðlimum trúnaðar­ráðs í viðtalinu. Enn á ný sýnir Agnieszka að sýn hennar á félags­störf og rétt félags­fólks á lýðræðis­legum vettvöngum félagsins er einstak­lega vanþroskuð, svo vægt sé tekið til orða.

Ég gæti skrifað fjölmargt til viðbótar um þær rang­færslur og þau ósannindi sem lesa má í viðtalinu. En ég læt þetta duga, í það minnsta í bili. Segi þó að lokum að það er sorglegt að sjá og upplifa dómgreindar­leysi fólks í kjölfar þess að það tapar í lýðræðis­legum kosningum. Ég skil auðvitað að það er erfitt að tapa en þá er mikilvægt að sýna sæmd, sýna sjálfs­virðingu og sýna að leik­reglur lýðræðisins eru manni í það minnsta fremur skiljanlegar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá