Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kvíði og þunglyndi langvarandi einkenni COVID-19

Niður­stöður nýrrar rann­sóknar sem nær til um 250 þúsund manns í sex löndum, þar á meðal á Íslandi, benda til þess að alvarleiki veikinda af völdum COVID-19-sjúk­dómsins sé ákvarðandi þáttur um hættuna á lang­varandi sálrænum einkennum meðal þeirra sem sýkjast. Rann­sóknin er unnin undir forystu vísinda­fólks við Miðstöð í lýðheilsu­vísindum við Háskóla Íslands en niður­stöðurnar birtust í vikunni í vísinda­tímaritinu The Lancet Public Health.

Rann­sóknin sem birtist í vikunni byggist á viða­miklum feril­rannsóknum í löndunum sex, þar á meðal hinni umfangs­miklu rannsókn „Líðan þjóðar á tímum COVID-19“ sem vísinda­fólk við Miðstöð í lýðheilsu­vísindum ýtti af stað í upphafi faraldursins hér á landi. Í þessum feril­rannsóknum svöruðu 250 þúsund manns spurninga­listum um sálræn einkenni en af þeim höfðu um 10 þúsund manns greinst með COVID-19 í ágúst 2021.

Niður­stöður rann­sóknarinnar sýna að þung­lyndis­einkenni og skert svefngæði voru algengari meðal einstaklinga sem höfðu greinst með COVID-19 en þeirra sem ekki höfðu greinst, en aðallega fyrstu mánuðina eftir greiningu. Hins vegar var algengi sálrænna einkenna mjög breytilegt út frá þeim fjölda daga sem einstaklingar höfðu verið rúmfastir vegna COVID-19-veikindanna. Um 22% einstaklinga sem greinst höfðu með COVID-19 voru rúmfastir í viku eða lengur og var algengi einkenna kvíða og þung­lyndis meðal þeirra um 50-60% meira en einstaklinga sem ekki höfðu greinst með sjúk­dóminn. Þetta aukna algengi alvarlegra sálrænna einkenna meðal þessa hóps hélst óbreytt allt að 16 mánuðum eftir greiningu.

„Fyrri rann­sóknir hafa að mestu snúið að sálrænum einkennum einstaklinga eftir innlögn á spítala vegna COVID-19 til skemmri tíma. Þessar niður­stöður benda til þess að alvarleiki COVID-19 veikinda sé ákvarðandi þáttur þegar kemur að sálrænum einkennum, einnig til lengri tíma,“ segir Ingibjörg Magnúsdóttir, doktorsnemi við Miðstöð í lýðheilsu­vísindum og fyrsti höfundur vísinda­greinarinnar.

Á hinn bóginn sýna niður­stöðurnar að algengi þung­lyndis- og kvíða­einkenna hjá þeim höfðu lítil einkenni vegna COVID-19 var minna en hjá þeim sem aldrei höfðu greinst. „Það er hugsanlegt að það verði ákveðinn léttir meðal einkenna­lítilla einstaklinga eftir að sýkingin er yfirstaðin að geta horfið aftur til fyrra lífs án þess að hafa áhyggjur af áhrifum á lengri tíma líðan. Þetta birtist mögulega í minni tíðni sálrænna einkenna meðal þeirra í saman­burði við einstaklinga sem enn hafa áhyggjur af því að smitast og þurfa að takmarka félagsleg samskipti,“ segir Unnur A. Valdimars­dóttir, prófessor og ábyrgðar­höfundur greinarinnar.

Saman­tekið benda niður­stöður rann­sóknarinnar til þess að almennt séu áhrif COVID-19 á andlega líðan skammvinn en að alvarleiki COVID-19-veikinda sé mikil­vægur forspár­þáttur um hættu á sálrænum einkennum til lengri tíma. Þá benda þessar niður­stöður til þess að mögulega þurfi sérstaka eftir­fylgd með einkennum þeirra sem veikjast illa af COVID-19.

Rann­sóknin er hluti af COVIDMENT-rannsóknar­verkefninu en að því kemur vísinda­fólk frá Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Eistlandi og Skotlandi auk Íslands. Helsta markmið rannsókna­samstarfsins er að auka þekkingu á lang­varandi áhrifum COVID-19-heims­faraldursins á geðheilsu almennings og þá sérstak­lega þeirra sem greinst hafa með sjúk­dóminn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá