Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Jenni í Brain Police opnar dýragarð – Óli Palli ryksugar

Óli Palli og Jenni. Ljósmynd Óla Palla er frá Facebook og ljósmynd af Jenna er tekin af Edda fyrir Vesturport
Óli Palli og Jenni. Ljósmynd Óla Palla er frá Facebook og ljós­mynd af Jenna er tekin af Edda fyrir Vest­ur­port

Afmælis­börn dagsins eru að þessu sinni tvö, en báðir mennirnir eru mjög vel að titlinum komnir.

Jens Ólafsson eða Jenni í Brain Police líkt og hann er kallaður er annað afmælis­barnanna en hann er 44 ára í dag. Jenni er Akureyringur en hefur nú lagt land undir fót og býr í Danmörku ásamt fjöl­skyldu sinni, þar sem hann vinnur að sögn sem rafvirki og óðals­bóndi í frítíma.

Jenni hefur spilað með stór­sveitum á borð við Brain Police, Toy machine, Best fyrir, Hot damn og Gimp. Þá lék hann Júdas í uppsetningu Vestur­ports á Jesus Christ Superstar, við góðan orðstír.

Mannlíf hafði samband við Jenna og spurði hann út í afmælis­daginn.

„Ætla ekki að gera mikið. Er á leiðinni núna til Svendborgar til krakkana að borða afmælis­köku og svo borða með konunni,“ sagði afmælis­barnið hress í bragði.

En hvað er framundan hjá Jenna?

„Framundan er gríðar­lega mikil vinna til að mynda við að opna húsdýra­garð í Danmörku og Brain er að finna dagsetningar fyrir tónleika.“

Hitt afmælis­barnið er útvarps­maðurinn góðkunni, Ólafur Páll Gunnarsson eða Óli Palli eins og hann er yfirleitt kallaður en hann er 53 ára í dag. Óli Palli hefur verið ein aðal rödd Rásar tvö um áratuga­skeið en þættir hans á borð við Rokkland, Poppland og Fuzz hafa slegið rækilega í gegn meðal landans í gegnum árin og er hann hvergi nærri hættur. Þá hefur hann spilað á gítar í hljómsveitum á borð við Ópal og Magnús sem og sungið með Fjalla­bræðrum.

Mannlíf heyrði í Óla Palla og spurði hann hvernig hann ætlaði að eyða afmælis­deginum.

„Ég byrjaði daginn á að ryksuga og þurrka af. Það er búið að vera svo mikið að gera undan­farið, ég er í fullri vinnu og í háskóla­námi á Bifröst í skapandi greinum og svo hélt ég tónlistar­hátíðina Heima í Hafnar­firðinum í síðustu viku. Þannig að það var orðið svolítið loðið hjá mér. En núna er ég á Kringlu­kránni að fá mér pítsu og svo ætla ég að fara í Kringluna og Ikea, hvernig lýst þér á það?“ sagði Óli Palli hinn hressasti og bætti við: „Svo er ég að hugsa um að bjóða börnunum í mat í kvöld, heima á Akranesi.“

En hvað er á döfinni á næstunni hjá Óla Palla?

„Nú er skólinn kominn í frí og ég er búinn að skila öllu sem ég þurfti að skila af mér þar, þannig að það er bara vinnan og stuð. Bara sumarið að koma og sumarfrí einhverntíman framundan og veiði­ferðir með yngsta syni mínum og bara njóta lífsins.“

Mannlíf óskar Jenna og Óla Palla innilega til hamingju með afmælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá