Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Séra Davíð Þór blés mótmælendum eldmóð í brjóst: „Fjármálakerfið okkar er á valdi siðblindingja“

Davíð Þór Jónsson
Davíð Þór Jónsson

Fjölda­fundur var haldinn á Austur­velli í gær þar sem sölunni á Íslands­banka var mótmælt og afsagnar fjármála­ráðherra var krafist.

Slagorð mótmælanna var „Bjarna burt“ og í kringum fjögur til fimm hundruð manns söfnuðust saman á Austur­velli þegar mest var, samkvæmt lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu.

Ræðumenn voru þau séra Davíð Þór Jónsson, Halldóra Mogensen þingmaður Pírata, Bergljót Þorsteins­dóttir, Sandra Guðmunds­dóttir og Magnús Magnússon.

Þekktir leikmenn úr hruninu

Ríkis­stjórnin hefur sætt harðri gagnrýni undan­farið vegna sölunnar á hluti ríkissins í Íslands­banka. Gagnrýni og reiði samfélagsins í garð Bjarna Benedikts­sonar, fjármála­ráðherra, hefur verið hvað háværust. Kröfur um afsögn hans úr embætti hafa heyrst úr hinum ýmsu áttum.

Gagnrýnin beinist aðallega að því hvernig staðið var að sölunni. Þar fengu valdir fjár­festar, sem þó voru ótal margir, boð um að kaupa hlut í bankanum. Ekki var aðeins um stóra, svokallaða kjöl­fjárfesta að ræða, eins og hafði verið talað um í upphafi, heldur var ótal minni fjár­festum boðið að taka þátt. Allir fengu fjár­festarnir að kaupa sig inn í bankann á afsláttar­kjörum. Nú hafa fjölmargir þeirra þegar selt sinn hlut, fyrir rétt verð, og þar með grætt háar fjárhæðir á braskinu.

Atburðirnir hafa minnt landsmenn óþægilega á efnahags­hrunið. Á lista yfir fjár­festana mátti sjá nöfn stórra leikmanna frá þeim tíma. Manna sem sagðir eru hafa átt stóran þátt í að svo fór sem fór, fyrir tæpum fjórtán árum síðan.

Viðstaddir á Austur­velli í gær létu vel í sér heyra og var nokkuð um áslátt; annað dæmi sem minnir á tímann í kringum efnahags­hrunið. Það var ræða séra Davíðs Þórs sem fór hvað hæst á fundinum og hefur hún dreifst eins og eldur í sinu um samfélags­miðla.

Hér má lesa brot úr ræðu séra Davíðs Þórs:

Það er gaman að hafa rétt fyrir sér. Það er gaman þegar tíminn leiðir í ljós að eitthvað sem maður sagði og lét hafa eftir sér var nákvæmlega sann­leikurinn. Í janúar í fyrra setti ég eftir­farandi færslu á Facebook:

„Vegna þess að ég heyrði ráðherra nýlega tala um nauðsyn þess að setja eigur ríkisins á markað, finnst mér nauðsynlegt að afrugla aðeins hvernig sagt er frá þessu. Hér eru tvö orð sem vert er að gefa gaum að merkingunni í og hvernig þau eru notuð. Hið fyrra er markaður. Hverjir eru markaðurinn? Ég er ekki á þessum markaði og fólkið sem kemur hingað,“ ég var í vinnunni þegar ég skrifaði þetta, „til að biðja um hjálp er það ekki heldur. Öryrkjar eru ekki á þessum markaði. Markaður er nefnilega í raun fínt orð yfir það sem kallað er fjármagns­eigendur, sem aftur er aðeins skrúðyrði yfir þá sem eiga peningana, það er auðmenn. Hitt orðið er ríkið. Hverjir eiga ríkið? Það er í raun almenningur í þessu landi. Þjóðin. Höfum þess vegna alveg á hreinu að þegar talað er um að setja eigur ríkisins á markað er í raun verið að tala um að koma eigum þjóðarinnar í hendur auðmanna.“

Það er skemmst frá því að segja að komið er á daginn að þarna er ekkert ofsagt. Það er gaman að hafa rétt fyrir sér en það skyggir reyndar svolítið á gleðina í þetta sinn, að það sem ég hafði rétt fyrir mér um er að fjármála­kerfið okkar er á valdi siðblindingja.

Hér fyrir neðan má sjá eldræðu Davíðs Þórs. Hún byrjar á mínútu 43:40:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá