Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Hildur spyr sig hvort börn ættu að byrja í skóla 5 ára: „Það er kominn tími til að ræða þá hugmynd“

Hildur Björnsdóttir er í miklum vanda.
Hildur Björns­dóttir er í miklum vanda.

„Það er kominn tími til að ræða þá hugmynd að grunn­skólagangan hefjist við fimm ára aldur, og henni ljúki á fimmtánda ári. Börn myndu þá útskrifast úr grunn­skóla ári fyrr – og leysa mætti mönnunar­vanda skóla­kerfisins,“ segir Hildur Björns­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í borginni í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.

Hildur segir að kominn sé tími á kjarkaða endur­skoðun skóla­kerfisins þar sem leik­skólastigið og grunn­skólastigið er skoðað heild­stætt.

Hildur segir að Sjálfstæðis­flokkurinn vilji tryggja öllum börnum leikskóla­pláss við 12 mánaða aldur en hún segist gera sér grein fyrir því að það verði ekki auðvelt verk.

Í grein sinni segir Hildur að í fimm ára bekknum væri kennsla á forsendum leik­skólans.

„Skapa mætti aukna tengingu milli leikskóla og grunn­skóla og hugsa menntun barna með heild­stæðum hætti allt frá unga aldri til loka grunn­skóla­göngunnar. Það er löngu tímabært að upphefja leik­skóla­starfið enda sýnir fjöldi rannsókna mikilvægi þess að leikur sé notaður sem kennslu­aðferð fyrir ung börn,“ segir hún.

Hildur segir að með því að hefja grunn­skóla­gönguna fyrr væri hægt að tryggja öllum börnum leikskóla­pláss við tólf mánaða aldur.

„Þannig þyrfti eingöngu að manna fjórtán árganga í skóla­kerfinu í stað fimmtán. Það er raun­veruleg lausn á mönnunar­vandanum, ekki innantómt orða­gjálfur. Víða erlendis hefst grunn­skólinn við fimm ára aldur og í flestum samanburðar­löndum útskrifast ungmenni úr framhalds­skóla við 18 ára aldur. Breytingin gæti tryggt aukið samkeppnis­hæfi íslenskra ungmenna og verið gæfuspor ef unnið á faglegum forsendum,“ segir Hildur meðal annars.

Hún nýtir tækifærið og hnýtir í Dag B. Eggertsson borgar­stjóra og samverka­fólk hans. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar­flokksins, fær einnig væna pillu frá Hildi.

„Borgar­stjóri og samverka­fólk hans er ráðþrota. Oddviti Fram­sóknar virðist jafnframt ráðþrota. Hann hefur látið hafa eftir sér að leikskóla­vandann verði ómögulegt að leysa. Það er ekki rétt. Lausnin krefst þess hins vegar að við skoðum skóla­kerfið heild­stætt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá