Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sveitahundurinn Trýna er týnd og gæti verið slösuð – Óskað eftir sjálfboðaliðum

Trýna. Tekið af síðu Dýrfinnu.
Trýna. Tekið af síðu Dýrfinnu.

Sjálfboða­liða­samtökin Dýrfinna, sem aðstoða fólk við leit að týndum dýrum, óska eftir sjálfboða­liðum í leit að tíkinni Trýnu, sem hefur verið týnd í tvo daga.

Í samtali við Mannlíf segir forsvars­kona samtak­anna að mikil þörf sé á fleiri aðilum sem geti haft augun opin og aðstoðað við leit að tíkinni. Hún sé 11 ára gamall sveita­hundur sem sé hugsanlega slösuð eftir að hafa orðið fyrir bíl.

Samtökin segja að eigandi Trýnu hafi ekki heilsu í leitina og því sé þátttaka sjálfboða­liða enn brýnni. Einungis tvær hafi komist úr Hunda­sveitinni.

Í tilkynningu frá Dýrfinnu segir:

„Trýna er 11 ára sveita­hundur sem týndist kl. 13 þann 10. apríl frá Lambhaga­vegi í Grafar­holti en býr úti á landi. Hún þekkir ekki bæinn vel.

Hún hefur sést á eftir­töldum stöðum:

Hún hljóp yfir Vestur­landsveginn hjá hringtorginu hjá Bauhaus og varð mögulega fyrir bíl.

Hún sást að öllum líkindum hjá skóg­ræktinni í Úlfársdal og hljóp í átt að Bauhaus um 15:40.

Hún gæti verið mjög hrædd og mögulega slösuð.

Kl. 22 þann 10 apríl sést hún fara upp í átt að Húsa­hverfi í grafar­vogi en sést ekkert eftir það.“

Fólki er bent á að elta hvorki Trýnu né kalla á hana, ef það sjái tíkina. Þess í stað skuli taka mynd eða myndband og hringja strax í síma 854-4666 (Leópold) eða 896-8330 (Kristín Áslaug).

Til þess að taka þátt í leitinni er hægt að skrá sig í athugasemd undir færsluna um Trýnu á Facebook-síðu Dýrfinnu. Viðkomandi verður þá bætt í leitar­spjall samtak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá