Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þyngra en tárum taki að upplifa börnin mín lenda á sömu veggjum í gegnum skólagöngu hér í Garðabæ

Frumkvöðullinn Rakel Steinberg Sölva­dóttir ritar áhuga­verðan

pistil

um stöðu skólamála í Garðabæ sem ber yfir­skriftina:

Vel­líðan barna er ekki meðal­tal 

„Eitt mikil­vægasta hlut­verkið sem við tökum að okkur í lífinu er að vera foreldri. Okkur foreldrum ber að annast barn okkar, sýna því umhyggju og virðingu og gegna uppeldis­skyldum svo best henti hag þess og þörfum.Það er eitt að bera ábyrgð sem foreldri en þegar kemur að skóla­göngu barnanna okkar þá leggjum við fullt traust á samstarf við skóla­kerfið,“ segir hún og bætir við:„Við treystum því að börnin okkar fái þá umhyggju, stuðning og menntun sem þau hafa þörf fyrir og eiga rétt á. Á sama tíma og gerum við þær væntingar að fjöl­skyldu okkar sé mætt af skilningi. Ábyrgð sveitar­félaga Í flestum tilvikum er traust okkar byggt á stöðugum grunni. Því miður er það þó ekki alltaf svo. Það er þó ekki við kennara að sakast því ég gef mér það að enginn kennari fari inn í daginn í þeim tilgangi að mismuna eða mæta ekki þörfum allra barnanna sem eru í þeirra umsjá og á þeirra ábyrgð,“ og Rakel segir einnig að „ábyrgðin er sveitar­félaganna. Sveitar­félögin bera ábyrgð á að sjá til þess að starfs­umhverfið sé í stakk búið að mæta þörfum allra barna. Eins sorglegt og það er þá virðist oftast halla á þau börn sem passa ekki inn í hinn hefð­bundna mennta­kassa – börn sem glíma við fötlun, náms­örðugleika og/eða eru með greiningar líkt og lesblindu, ADHD, einhverfu, asperger eða aðrar greiningar.“Heldur áfram:„Börn og unglingar, sem eiga erfitt með nám sökum sértækra náms­örðugleika og/eða fötlunar, eiga rétt á sérstökum stuðningi í námi, samkvæmt grunn­skólalögum. En hver fylgir því eftir að þessum lögum sé framfylgt? Hver leggur mat á hvað telst viðunandi stuðningur? Hver styður við þá foreldra sem þurfa að berjast við kerfið til að berjast fyrir tilveru­rétti barnanna sinna? Hver grípur þau börn sem fá ekki þann stuðning sem þau þurfa sannarlega á að halda? Hver grípur þau börn sem upplifa sig jafnvel ekki þess verðug? Nær öll börn er ekki nóg.“Rakel bendir á að „í Lýðheilsu- og forvarnar­stefna Garða­bæjar 2021 kemur fram túlkun á könnunum á högum og líðan barna og ungmenna í Garðabæ. Þar segir að kannanir sýni að börnum og ungmennum líði „almennt vel“ og að „nær öll“ börn og ungmenni séu jákvæð í námi og leik.En hvað þýðir það að börnum líði „almennt vel“ og að „nær öll börn“ taki þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstunda­starfi? Eru það 99% allra barna í Garðabæ eða jafnvel minna?Það er af fenginn reynslu sem ég brenn fyrir velferð barna og að stutt sé við þau börn sem passa ekki inn í það norm sem mennta­kerfið hefur sniðið þeim. Sjálf er ég týpískur ADHD einstaklingur sem lenti á flestum þeim veggjum sem hægt er að lenda á í gegnum skóla­gönguna mína. Það var því þyngra en tárum taki að upplifa börnin mín lenda á sömu veggjum í gegnum sína skóla­göngu hér í Garða­bænum okkar.“Hún segir að því miður hafi margir foreldrar svipaðar sögur að segja:„Þrátt fyrir að hér séu öflugir skólar með metnaðar­fullum kennurum. Foreldrum sem hafa þurft að berjast við kerfið gagnast ekkert að lesa um að „nær öll börn“ eða að börnum líði „almennt vel“ í Garðabæ. Ef kerfið bregst þá ætti það ekki að krefjast baráttu af hálfu foreldra. Foreldrarnir eru sjálfir að miklum líkindum komnir út í horn og andlega bugaðir við að reyna að hjálpa barninu sínu.“Að mati Rakelar á kerfið að virka:„Kerfið á að grípa einstaklingana og foreldrana. Einstaklingarnir eiga ekki að grípa kerfið. Fögnum fjöl­breyti­leikanum – Gerum betur Við erum ekki öll eins. Við þurfum ekki öll að vera eins og við eigum ekki öll að vera eins. Enda hvað er eins? Fjöl­breyti­leikinn er það sem gerir samfélögin betri og við ættum að fagna honum í stað þess að reyna að steypa alla í sama mótið. Við eigum að styðja við einstaklinga í mótun eins og hentar þeim hvað best. Sagan sýnir einnig að það eru jú þeir einstaklingar sem passa ekki inn í fyrr­greindan kassa, sem oft á tíðum skara fram úr í sköpun og frjórri hugsun. Það einmitt það sem samfélag okkar allra nærist á. Við í Viðreisn viljum gera betur. Við viljum styðja við skólana okkar og mannauð þess. Við viljum byggja upp það umhverfi sem mætir þörfum allra barna okkar og byggir upp það kerfi sem við foreldrar getum unnið með í þeirra þágu og þeirra framtíð. Punktur!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá