Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

40% Íslendinga telja öryggi bólusetninga vafamál

40% íslendinga telja öryggi bólu­setninga vafamál samkvæmt nýrri alþjóðlegri könnun sem birt var í dag . Embætti l andlæknis hefur tekið saman niður­stöðurnar.

„Í löndum þar sem að árangur bólu­setningar er mikill þá kemur upp þessi vantrú vegna þess að fólk sér ekki þessa sjúkdóma eins mikið og áður,” segir Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir. „Á meðan í öðrum löndum, þar sem aðgengi að bólu­setningum er ekki eins mikil, er traustið meira.”

Trúa á áhrif bólusetningar en telja þær óöruggar

„Rann­sóknir á Íslandi á undan­förnum árum um afstöðu almennings til bólu­setningar hafa sýnt að yfir 95% almennings ber traust til bólu­setninga og árangur þeirra,” segir Þórólfur. „Þessi niður­staða núna sýnir það líka að fólk trúir því að bólu­setningar virki vel og komi í veg fyrir sjúkdóma og telji að bólu­setningar eru nauðsynlegar fyrir börn en hafa hins vegar áhyggjur af öryggi þeirra. Þannig túlka ég þessa niður­stöðu.” Niður­stöður Welcome Trust sýna að 97% íslensk almennings telja bólu­setningar áhrifa­ríkar í að koma í veg fyrir sjúkdóma. Þá telur 99% að bólu­setningar séu mikil­vægar fyrir börn.

Sífellt fleiri leggja þó spurningu við öryggi bólu­setningar og hafa áhyggjur af auka­verkunum. Eins og áður segir hafa 40% íslendinga lýst yfir áhyggjum í garð öryggis bólu­setninga. Guðni nefnir að embættið hafi áður vakið athygli á þessari þróun. „Það þarf að koma þeim upplýsingum áleiðis að bóluefni eru örugg.”

Aukin vantrú í öðrum löndum getur haft afleiðingar fyrir Ísland

Þórólfur segir niður­stöðuna betri hér en í öðrum löndum Norður-Evrópu. „Þegar maður ber Ísland saman við N-Evrópu þá er trú almennings á bólu­setningum og nauðsyn fyrir börn mikið hærri hér á landi að meðaltali.”

Hann segir alþjóðulegu niður­stöðurnar áhyggju­efni. „Ef að sjúkdómar fara að blossa upp í löndum í kringum okkur þá eykst hættan á því að við förum að sjá tilfelli hér.“ Hann segir þó þáttöku í bólu­setningum hér á landi nógu góðar til að koma í veg fyrir mikla útbreiðslu. „Við myndum ekki sjá neina stóra faraldra hér. Við gætum séð stök tilfelli eins og síðast liðinn vetur.“

Alþjóð­lega fyrir­tækið Welcome Trust stendur fyrir könnuninni sem fór fram 2018. Niður­stöðurnar sýna meðal annars að í löndum þar sem velmegun er mikil ríkir töluverð vantrú á bólu­setningum en í fátækari löndum er traustið almennt meira. Þá mældist traustið hæst í Eþíópíu og Bangladesh. „Þetta sjáum við með þessum mislinga­faraldri sem er í Evópu. Þetta er afleiðing af því,” segir Þórólfur en sem dæmi kom Frakkland illa út úr könnuninni. 33% almennings þar í landi telur bólu­setningar áhrifa­litlar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá