Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Valerie Ósk léttist og svaf lítið eftir að stríðið braust út: „Hjarta mitt er brotið“

Valerie Ósk Elenudóttir
Valerie Ósk Elenu­dóttir

„Þann 24. febrúar réðust Rússar inn í Úkraínu þegar almennir borgarar sváfu rólegir í rúmum sínum. Kvöldið áður talaði ég í síma við vin minn í Úkraínu og þegar ég vaknaði daginn eftir sá ég skilaboð frá honum: „Við eigum í stríði.“ Ég var heima fyrstu fjóru dagana og var bara í símanum. Mér leið eins og ég sæti með ástvinum mínum í kjallara í skjóli fyrir sprengjunum. Svo vakti vinur minn á Íslandi mig aftur til lífsins með því að segja að ég ætti að hugsa um heilsuna af því að ég á dóttur,“ segir Valerie Ósk Elenu­dóttir sem er frá Úkraínu, en hún hefur búið á Íslandi hálfa ævina en hún er í leiklistar­námi og vinnur hjá New In Iceland sem er upplýsinga­miðstöð fyrir innflytjendur á Íslandi. Hún fæddist í úkraínsku borginni Kharkiv sem segja má að sé nú rústir einar. „Hjarta mitt er brotið.“

Valerie segir að hún hafi lést þó nokkuð síðastliðinn mánuð eða frá því að stríðið braust út. „Ég hætti eiginlega að borða á tímabili og svaf lítið. Mig langaði til að fara til Póllands til að leggja mitt af mörkum til hjálpar úkraínskum flótta­mönnum eða fara jafnvel til Úkraínu, en svo bað dóttir mín mig eitt kvöldið um að fara ekki í stríðið. Mér brá og spurði hvað hún meinti og þá sagði hún að ég væri að gera svo mikið og hún hefði áhyggjur af að ég vildi gera meira.“

Valerie segist finna mikinn stuðning frá íslenskum vinum sínum og að hún sé þakklát fyrir að búa í friðsömu landi. „Það hlýjar mér um hjarta­rætur að sjá hvernig Íslendingar styðja við Úkraínu­menn.“

„Við erum lifandi“

Valerie segir að guðmóðir sín, sem bjó í Kyiv, hafi komið til Íslands í síðustu viku. „Þetta var erfitt en í margar nætur faldi hún sig í kjallara og var hrædd við að fara með uppkomnum börnum sínum. En henni tókst að koma til mín en alein. Dóttir hennar var eftir í Lviv og er þar í sjálfboða­liðastörfum og sonur hennar er í Kyiv þar sem hann hjálpar til á götum borgarinnar.

„Við erum lif­andi“ og „Ég er hrædd“.

Ég hef verið í samskiptum við vini mína í Úkraínu frá því að stríðið hófst. Ég á marga vini í Úkraínu og ég þekki marga þar. Bestu vinir mínir komust til Póllands og einn þeirra vill komast til Íslands en það er erfitt því hún á hund. Hún á líka átta ára gamla dóttur sem er vinkona dóttur minnar. Vinir mínir í Kharkiv, þar sem ég fæddist og ólst upp, upplifa hræðilega tíma. Þeir voru hræddir í marga daga en nú eru þeir þreyttir á að lifa við slíkar aðstæður og einn þeirra sagði meira að segja við mig: „Ef það eru örlög mín að deyja þá dey ég.“ Ég fæ reglulega skilaboð í símann: „Við erum lifandi“ og „Ég er hrædd“. Það eru svo margir sem þurfa á hjálp að halda. Ég reyni að vera sterk fyrir þetta fólk, ég reyni að hjálpa því eins og ég get og bið um að þessu ljúki fljótlega. Þetta er martröð fyrir alla Úkraínu­menn sama hvar þeir eru í heiminum.“

Ætti að stöðva hann núna

Valerie segir að hún og aðrir Úkraínu­menn sem hún þekkir hafi ekki átt von á því að Rússar myndu ráðast inn í Úkraínu.

„Ég talaði við guðmóður mína og vini í Kharkiv um þetta daginn fyrir innrásina, en þau voru að pakka í „neyðar­bakpoka“ en þau tóku þessu ekki alvarlega og settu í rauninni ekkert í bakpokana. Síðan kom þetta okkur mjög á óvart.“

Valerie segist í gegnum tíðina ekki hafa litið á Rússland sem annað land. „Afi minn var frá Rússlandi og þar áttum við ættingja. Ég missti sambandið við þá fyrir löngu en Rússland var mér ekki framandi land. Ég hef oft komið til Rússlands og þar á ég marga vini.“

Hann hættir kannski ekki bara í Úkraínu.

Hvað með Pútín? Hve langt telur hún að hann gangi? „Ég er hrædd um að þessi maður muni ekki stoppa og ganga enn lengra. Hann hættir kannski ekki bara í Úkraínu. Þess vegna ætti allur heimurinn að stöðva hann núna.“

Hvað með tal um kjarnorku­vopn? Yfir­tökuna á Chernobyl-kjarnorku­verinu? „Þetta er bara brjálæði,“ segir Valeire en fjögur kjarnorkuver eru í Úkraínu. „Þegar kviknaði í Zaporozhyen-kjarnorku­verinu 4. mars héldu margir niðri í sér andanum. Hvað er Pútín í rauninni að segja þegar hann nefnir að hann eigi kjarnorku­sprengjur? Við vitum nú þegar að honum virðist aðeins vera annt um sjálfan sig og metnað sinn. Hann gat ekki sætt sig við þá staðreynd að Úkraína sé sjálfstætt land. Pútín virðist vera sama um rússneska borgara og rússneskt land og eyðir milljónum dollara í stríð sem enginn þarf nema hann!“

Valerie er á því að útiloka eigi Rússa frá Öryggis­ráði SÞ og senda rússneska sendi­herrann á Íslandi úr landi. „Ísland styður Úkraínu og opnar dyr sínar fyrir Úkraínu­mönnum þannig að rússneska sendi­ráðinu ætti að vera lokað; Mikhail Noskov, sendi­herra Rússlands, ætti að vera sendur aftur til Rússlands þar sem hann getur haldið áfram að styðja Pútín. Úkraínska sendi­ráðið ætti að vera opnað í stað þess rússneska.“

Við gefumst ekki upp

Valerie segir að eftir að hafa verið í áfalli í fjóra daga eftir að stríðið braust út, hafi hún gert sér grein fyrir að hún þyrfti að gera eitthvað til hjálpar, eins og hún hefur þegar minnst á, og datt henni í hug að hafa samband við Úkraínu­menn á Íslandi til að þeir kæmu löndum sínum til aðstoðar.

„Á þeim tíma­punkti heyrði ég ekki um neinn sem gerði þetta. Svo við söfnuðum og sendum 45 tonn af hjálpar­gögnum með Baltic Airlines, og fengum að gera það endurgjalds­laust, auk þess sem hjálpar­gögn voru send í gámum sjóleiðina. Ég hef tekið þátt í mótmælum fyrir utan rússneska sendi­ráðið í Reykjavík og farið í mótmæla­göngur gegn stríðinu. Ég mæti auk þess á alla viðburði til styrktar Úkraínu, gef peninga til styrktar flótta­mönnum og sendi vinum mínum í Úkraínu pening.“

Hvað hefur Valerie lært undan­farnar vikur varðandi sjálfa sig, Úkraínu og Rússland og alþjóða­samfélagið?

Ástandið í Úkraínu er svo hræði­legt að það er erfitt að lýsa því.

„Ég hef lært mikið og sérstak­lega hversu mikilvægt er að meta það sem maður hefur. Ég fékk nýlega martröð, en mig dreymdi að það væri stríð á Íslandi. Ég vaknaði mjög hrædd. Ástandið í Úkraínu er svo hræðilegt að það er erfitt að lýsa því, en ég er svo stolt af þjóðinni minni. Hvar sem við erum styðjum við og stöndum með Úkraínu og þess vegna munum við sigra. Við erum sameinuð og gefumst ekki upp fyrr en við fáum frelsi okkar. Þegar þetta byrjaði allt í Úkraínu hætti líf mitt, og allt sem ég vil núna er friður og frelsi í föður­landinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá