Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Íslensk ungmenni sofna seint og sofa stutt

Rúna Sif Stefánsdóttir ver doktorsritgerð sína frá Háskóla Íslands þann 9. mars. Skjáskot. Ljósmyndari/Kristinn Ingvarsson
Rúna Sif Stef­áns­dóttir ver dokt­ors­rit­gerð sína frá Háskóla Íslands þann 9. mars. Skjáskot. Ljós­mynd­ari/Kristinn Ingv­ars­son Mynd: Kristinn Ingvarsson – KRI / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Doktors­rannsókn Rúnu Sifjar Stef­ánsdóttur leiðir í ljósi að fimmtán til sautján ára íslensk ungmenni fara seint að sofa og þau sofa stutt. Svefn­venjur tengjast enn fremur mjög náið þeirra nánasta umhverfi og lifnaðar­háttum hverju sinni. Þetta er meðal þess sem Rúna ver doktors­ritgerð sína í íþrótta- og heilsu­fræði í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 9. mars.

Doktors­verkefnið er hluti af Heilsu­hegðun ungra Íslendinga, langtíma­rannsókn á stöðu heilbrigðis­þátta ungra Íslendinga og tengslum þeirra við svefn, hreyfingu og skóla­umhverfi. Megin­markmið doktors­verk­efnisins var að nota hlutlæga mæli­kvarða til að meta svefn­mynstur ungmenna á aldrinum 15 til 17 ára, í grunn­skóla og aftur í framhalds­skóla. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvort svefn­mynstur þeirra tengist náms­árangri og hugrænum þáttum. Doktors­verkefnið var unnið í nánu samstarfi við Lýðheilsu­stöðu Banda­ríkjanna (National Institutes of Health – NIH) í Washington D.C.

Helstu niður­stöður rann­sóknarinnar eru þær að íslensk ungmenni fara seint að sofa (kl. 00:43 við 15 ára aldur, kl. 01:12 við 17 aldur) og sofa stutt (6,6 ± 0,7 klst /nótt í tilviki 15 ára og 6,2 ± 0,7 klst./nótt í tilviki 17 ára). Eingöngu fimmta hvert ungmenni náði alþjóð­legum ráðleggingum um svefnlengd (8 klst.) við 15 ára aldur og enn færri við 17 ára aldur. Svefn unglinga styttist að um 24 mín á nóttu frá 10. bekk í grunn­skóla og yfir á annað ár í framhalds­skóla. Rann­sóknin leiddi enn fremur í ljós að nemendur sem stunduðu nám í fjölbrauta­kerfi í framhalds­skóla sváfu lengur á skóla­dögum en nemendur í bekkja­kerfi.

Í einni vísinda­grein Rúnu Sifjar, sem birtist í vísinda­tímaritinu Journal of Sleep Research, var fjallað um tengsl svefn­mynsturs og náms­árangurs. Niður­stöður sýndu að góð regla á svefn­mynstri ungmenna hafði jákvæða áhrif á einkunnir og náms­árangur við 15 ára aldur. Þessar niður­stöður hafa vakið verð­skuldaða athygli og m.a. fékk vísinda­greinin viðkenningu frá stærstu lýðheilsustöð heims í Banda­ríkjunum (NIH).

Mikill breyti­leiki einkenndi svefn­mynstur bæði við 15 ára og 17 ára aldur en þar er átt við háttatíma, fótferðatíma og svefnlengd. Stuttur svefn tími virðist einnig hafa áhrif á hugræna þætti hjá 17 ára ungmennum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá