Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Skipinu hvolfdi í miklu óveðri: „Það var kuldinn sem gerði okkur erfitt fyrir“

Sjómenn á Færeyska flutninga­skipinu Rona lentu í hremmingum þegar skipinu hvolfdi í miklu óveðri sem geysaði á þann 2.nóvember árið 1985. Skipið flutti mjöl og gáma frá Færeyjum til Reyðar­fjarðar, það hélt af stað heim að austan kvöldið fyrir slysið. Um nóttina skall á mikið óveður og fór þá að flæða inn í stýrishús skipsins, sjómennirnir fjórir urðu þá að fara í gúmmí­björgunar­báta.

Aðeins einn björgunar­bátur var um borð í skipinu en það vakti gríðar­lega athygli að enginn neyðar­hnappur var í honum þó var báturinn aðeins tveggja mánaða gamall. Auk þess losnaði rekakkeri svo að mennirnir höfðu litla stjórn á stefnunni.

Eftir að hjálparboð barst frá Færeyska skipinu til Landhelgis­gæslunnar var strax hafist handa við að skipuleggja leit að skipinu. Flugvél Landhelgis­gæslunnar var send á slysstað, auk þess var nálægum skipum gert viðvart og þau beðin um að nálgast Færeyska skipið, þrjú skip voru í nálægð og fóru á vettvang.

Mennirnir fjórir fundust ekki fyrr en þeir skutu út neyðarblisi, þá voru þeir rúmum sex mílum frá slys­staðnum. Hjalti Sæmundsson, þáverandi skeyta­maður hjá Landhelgis­gæslunni, sagði það hafa skipt sköpum í björgun mannana að þeir hafi notað blisið. „Þetta var afar köld vist fyrir þá í gúmbátnum, allir skólausir og tveir aðeins á skyrtunum,” sagði Jónas Hallgrímsson, útgerðarmaður á Seyðis­firði og umboðs­maður færeyska flutninga­skipsins Rona í samtali við DV eftir slysið.

Skut­togararnir Sveinborg frá Siglu­firði og Snæfugl frá Reyðar­firði nálguðust gúmmí­bátinn og voru sjómennirnir færðir um borð í Sveinborgu sem silgdi með þá til Seyðis­fjarðar. Þaðan fóru mennirnir á Egils­staði og flugu heim til Færeyja.

„Okkur var aðallega kalt, það var kuldinn sem gerði okkur erfitt fyrir. Við vorum illa búnir, ég aðeins í þunnri sport­skyrtu. Að auki vorum við búnir að vera matar­lausir í 18 tíma áður en við komumst um borð í íslenska togarann“ sagði Martin Nilsen, skip­stjóri Færeyska skipsins í samtali við DV

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá