Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Landsréttur hafnar beiðni Evu og fjölskyldu: „Ætli við þurfum ekki bara að boða til andafundar?“

Þann 19. október síðastliðinn úrskurðaði Lands­réttur í máli fjöl­skyldu Dönu Jóhanns­dóttur gegn úrlausn Héraðs­dóms Reykjaness þar sem beiðni kærenda um skipun réttar­gæslumanns var hafnað.

Fjöl­skyldan kærði þá ákvörðun lögreglu­stjórans á Suðurnesjum að fella niður tilnefningu lögmannsins sem réttar­gæslumanns, vegna rann­sóknar lögreglu á andláti hennar. Dana lést á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja 19. október 2019.

Héraðs­dómur Reykjaness úrskurðaði svo að fjöl­skylda Dönu ætti ekki rétt á réttar­gæslumanni og var sá úrskurður kærður til Lands­réttar. Var þess krafist að úrlausninni yrði hnekkt og úrskurðinum breytt á þá leið að krafa fjöl­skyldunnar um skipun réttar­gæslumanns og máls­kostnað verði teknar til greina. Lands­réttur staðfesti úrskurð Héraðs­dóms Reykjaness. Mun fjöl­skyldan fara með málið fyrir Mann­réttinda­dómstól Evrópu.

Í samtali við Evu Hauks­dóttur, sem er dóttir Dönu, telur hún málið stór­furðulegt.

„Það er stór­furðulegt að löggjafinn skuli gera ráð fyrir því að fórnar­lömb manndrápa eigi tilkall til réttar­gæslumanns en að dómstólar viðurkenni ekki að aðstand­endur fari með þann rétt þegar brotaþoli er látinn.

Mann­réttinda­dómstóll Evrópu hefur margsinnis staðfest þann skilning að aðstand­endur þeirra sem látast vegna brota heilbrigðsstarfsfólks eða annarra ríkis­starfsmanna, hafi stöðu óbeinna brotaþola og eigi rétt á því að fá að fylgjast með gangi rann­sóknar. Þetta þýðir að allt þetta fólk, ekki færri en sex fjöl­skyldur, verða að bera fjárhags­lega áhættu af því að ráða sér lögmenn til að sækja rétt sinn til miskabóta.

Fyrir mína fjöl­skyldu skiptir höfuðmáli að við getum gengið úr skugga um að rann­sókninni hafi verið almennilega sinnt enda höfðum við verulega áhyggjur af því hvað lögreglu­rannsókn fór hægt og seint af stað. Og nú er verið að taka þann rétt frá okkur því ef við teljumst ekki brota­þolar í skilningi laga þá eigum við engan rétt fram yfir blaðamenn eða bara hvern sem er.

Lögin eru alveg skýr um það að brota­þolar eiga endranær að fá réttar­gæslumann en samkvæmt þessari niður­stöðu hefði móðir okkar væntanlega þurft að sækja um réttar­gæslumann sjálf. Ég veit ekki alveg hvernig Lands­réttur reiknar með að verði staðið að því að fá undir­skrift hennar. Ætli við þurfum ekki bara að boða til anda­fundar?“

Eins og áður kom fram ætlar fjöl­skyldan að skjóta málinu til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu en segist Eva gera ráð fyrir því að senda kæruna eftir helgi. Mun hún kæra til MDE á grund­velli 2. gr. Mann­réttinda­sáttmálans sem fjallar um réttinn til lífs. Mann­réttinda­dómstóllinn lítur svo á að það að neita aðstand­endum um réttar­stöðu óbeinna brotaþola falli undir brot gegn 2. greininni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá