Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ragnar við gamla Morris bifreið sína á gatnamótunum þar sem leynifundurinn átti að fara fram.
Ragnar við gamla Morris bif­reið sína á gatna­mót­unum þar sem leyni­fund­ur­inn átti að fara fram. Mynd: Vísir

Styrmir Gunnarsson heitinn er ekki eini njósnari Íslands­sögunnar. Á meðan Styrmir njósnaði um vinstri­sinnaða Íslendinga fyrir Banda­ríkin og Sjálfstæðis­flokkinn, reyndu Sovíetmenn að fá Ragnar nokkurn Gunnarsson til lags við sig. Árið 1962 hafði Ragnar samband við lögregluna og tjáði þeim frá því að Sovíetmenn væru að biðja hann um að gerast njósnari í þeirra þágu. Við tók reyfara­kennd atburðarás sem varð til þess að tveir njósnarar frá Sovéska sendi­ráðinu voru reknir frá landinu með skömm.

Morgun­blaðið fjallaði um málið fyrst allra og gerði það ítarlega. Hér er brot úr fyrstu fréttinni frá þeim um málið, þann 27. febrúar 1962:

„TVEIR RÚSSNESKIR SENDIRÁÐSSTARFSMENN hafa verið staðnir að verki við njósna­starfsemi hér á landi. Reyndu þeir að fá íslending, sem fyrir nokkrum árum var boðið til Rússlands í æskulýðs­sendinefnd og hefur verið flokks­bundinn kommúnisti, til að njósna fyrir sig. Þegar hann sá að ætlazt var til landráða­starfsemi af honum, gaf hann sig fram við lögregluna og aðstoðaði hana við að upplýsa málið. RÚSSARNIR ætluðu að bera fé á íslendinginn, Ragnar Gunnarsson, til þess að fá hann í sína þjónustu og höfðu mestan áhuga á Kefla­víkur­flugvelli og mann­virkjum varnar­liðsins. HINUM rússnesku sendi­ráðsmönnum hefur að sjálfsögðu verið vísað úr landi, og hafa fregnir af atburði þessum vakið geysiathygli. Í gærkvöldi skýrðu helztu frétta­stofnanir og útvarps­stöðvar rækilega frá þessari njósna­starfsemi.

Njósn­ar­arnir í sendi­ráðs­bílnum

Njósnirnar beindust m.a. að Kefla­víkur­flugvelli.

Bréf dómsmála­ráðuneytisins til utan­ríkis­ráðuneytisins:

Hér með sendist utan­ríkis­ráðuneytinu yfirlits­skýrsla, varðandi tilraunir tveggja starfs­manna
sendiráðs Sovét­ríkjanna hér í borg til þess að fá íslenzkan ríkisfoorgara til að starfa að njósnum fyrir þá hér á landi. Svo sem sjá má af skýrslu þessari hafa umræddir starfs­menn,
Lev Kisilev, 2. sendiráðs­ritari, og Lev Dimitriev, sendiráðs­starfsmaður, leitað til íslenzks manns, Ragnars Gunnars­sonar, Reykja­völlum í Mosfells­sveit, og falið honum upplýsinga­söfnun sem fram hefir átt að fara með leynd, og greitt honum peninga, að því er aetla verður í því skyni að fá hann til að halda áfram slíkri starfsemi. Ennfremur kemur fram af skýrslunni að upplýsinga söfnun þessari er m.a. beint að Kefla­víkur­flugvelli og að starfs­mönnum á flug­vellinum, sem jafnframt er varnarstöð samkv. varnar­samningi íslands og Banda­ríkjanna og á vegum Atlantshafs­banda­lagsins, sem ísland er aðili að. Atferli þetta er sannað með framburði hins íslenzka aðila og staðfest með framburði lögreglu­manna, er í eitt sinn voru áheyrendur að viðræðum hans við hlut aðeigandi sendiráðs­starfsmenn, og ennfremur er stuðst við fleiri gögn. Atferli slíkt, sem hinum erlendu sendiráðs­starfs­mönnum hér er borið á brýn, mundi, ef hlut­aðeigendur heyrðu undir íslenzka lögsögu, verða heimfært undir 93. grein almennra hegningar­laga. Er málefni þetta hér með falið utan­ríkis­ráðuneytinu til viðeigandi meðferðar.“

Af hverju Ragnar?

En hver var Ragnar Gunnarsson og af hverju höfðu Rússarnir svona mikinn áhuga á honum? Ragnar var félagi í Menningar­sambandi Íslands og Ráðstjórnar­ríkjanna, MÍR, og  hann var fyrr­verandi stjórnar­maður í Dagsbrún sem og félagi í Sósíalista­flokknum. Í viðtali við Morgun­blaðið sagði hann frá kynnum sínum af Rússunum og útskýrði ástæðuna fyrir því að þeir höfðu áhuga á að fá aðstoð hans við njósnir. Þar kom fram að vegna þess að hefði verið félagi í Sósíalista­flokknum og árið 1953 var honum boðið til Rússlands á vegum Andfasista­nefnd Sovét­æskulýðsins eins og hún kallaðist. Í þeirri ferð kynntist hann túlki að nafni Júrí Stepanovitstj en ættar­nafnið fékk hann aldrei. Sá var líklega njósnari því sex árum síðar bankaði sendiráðs­ritari sovéska sendi­ráðsins á dyr heima hjá Ragnari og sagðist vilja bera honum kveðju frá Júrí. Við tók sífelldar hringingar og heim­sóknir sendiráðs­ritarans til Ragnar þar sem hann nauðaði ítrekað í honum að útvega  Sovét­mönnum hinar ýmsu upplýsingar. Sá maður fór að endingu aftur til Rússlands en annar maður tók stöðu hans innan sendi­ráðsins, maður að nafni Leb Kisilev. Með á fundum þeirra Ragnars var annar starfs­maður sendi­ráðsins, túlkurinn Leb Dimitriev.

Njósn­ar­arnir í haldi lög­regl­unnar.

Bond-leg handtaka

Fengu Rússarnir tveir Ragnar til þess að afla upplýsinga um fólkið sem bjó á móti Kisilev, á Ránargötu 22 því Rússanum grunaði að það fólk væri að njósna um hann. Ekki gat Ragnar séð að þær grun­semdir ættu við rök að styðjast. að fá upplýsingar um mögulegar fyrir­ætlanir Bandaríkja­manna á að byggja kafbátastöð við Íslands. Þá vildi hann að Ragnar kæmist yfir upplýsingar um Kefla­víkur­flugvöll og svæði varnar­liðsins.  Ragnari leyst ekki á blikuna og hafði samband við lögregluna, sem plottaði handtöku á tveimur starfs­mönnum sendiráðs Sovíetríkjanna.

Lög­reglu­menn­irnir földu sig meðal ann­ars bak­við þennan steypta vegg með tal­stöðvar og mót­or­hjól og biðu færis.

Hér kemur lýsing Morgun­blaðsins á Bond-legri hand­tökunni:

„LÖGREGLAN hafði mikinn viðbúnað fyrir fund rússnesku njósn­aranna, Kisilevs og Dimitrievs við Ragnar Gunnarsson ,sl. mánudags­kvöld. Stefnu­mótið hafði verið ákveðið kl. 8,30 um kvöldið á vegamótum Úlfarsfells­vegar og Hafra­vatnsvegar. Ákveðið hafði verið, að þetta kvöld skyldu Rússarnir afhjúpaðir, hvernig sem fundi þeirra og Ragnars lyktaði. Þegar klukkan 7 um kvöldið, 1 og 1/2 klukku­stund áður en stefnu­mótið átti að vera, höfðu lögreglu­menn tekið sér varðstöðu við öll vegamót á Hafra­vatns­svæðinu. Lögreglu­mennirnir, yfir 20 í allt, höfðu samband sín á milli í talstöðvum. Þeir leyndust bak við gamla bragga, í
húsa­rústum eða voru í hvarfi við hóla. Í grenndinni var yfir­saka­dómarinn og lögreglu­stjórinn í bifreið og fylgdust þeir með öllu, sem fram fór. Allt fór fram eins og áætlað hafði verið. Rússarnir komu á tilsettum tíma, og annar þeirra fór upp í bíl
Ragnars. En bak við framsætið leyndust tveir rannsóknar­lögreglu­menn. — Þeir höfðu einnig talstöð. Á þeirri stundu, sem Rússinn tók eftir Iögreglumönnunum í bílnum, var leiknum lokið. Þeir gerðu þegar viðvart í talstöðina og lögreglu­bílar komu á fullri ferð úr öllum
áttum. Þannig lauk ævintýralegasta njósna­máli, sem uppvíst hefur orðið um á íslandi.
Tveir af njósnurum erlends stór­veldis stóðu afhjúpaðir.“

Kort sem sýnir ferðir Rússanna á leyni­fund­inn. Teikning: Morg­un­blaðið
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá