Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Krísa í Kaplakrika vegna Kviku: „Fólk vill bara ekki sjá Eggert spila með FH“

Eggert Gunnþór
Eggert Gunnþór Mynd: Rúv

Það vakti mikla athygli í opnunar­leik Víkinga og FH í Bestu deildinni á mánudaginn að Eggert Gunnþór Jónsson var í byrjunar­liði FH. Eins og flestir vita er Eggert sakborningur í kynferðis­brotamáli; íslensk kona lagði fram kæru síðasta haust á hendur honum og Aroni Einar Gunnars­syni vegna nauðgunar haustið 2010, eftir landsleik Danmerkur og Íslands í Kaupmanna­höfn.Nú er komið á daginn að fulltrúar Kviku banka, sem er aðal­styrktar­aðili knattspyrnu­liðs FH, hefur óskað eftir upplýsingum frá stjórn félagsins um mál Eggerts Gunnþórs.Á búningum FH-liðsins er stór auglýsing frá Auði sem er dóttur­fyrirtæki Kviku banka. Kvika hefur komið á framfæri ábendingum til FH þar sem lögð er áhersla á að tekið sé á málinu.Málið þykir afar óþægilegt fyrir bankann, og í raun er málið óþægilegt og sorglegt frá öllum hliðum fyrir alla sem að því koma og án efa erfitt að finna lausn á því sem allir yrðu sáttir við.Samkvæmt heimildum Mannlífs er mikill órói innan FH vegna málsins; og sitt sýnist hverjum. Eggert hefur vissulega ekki verið fundinn sekur um glæp en hann sætir lögreglu­rannsókn og finnst mörgum óeðlilegt að leikmaður í efstu deild karla á Íslandi skuli spila á fullu á meðan á lögreglu­rannsókn stendur. Til að mynda Arnar Sveinn Geirsson, formaður Leikmanna­samtaka Íslands, sem sagði að „það er mjög óeðlilegt. Sama um hvern ræðir, sama um hvers konar ofbeldismál er að ræða, að þá ætti það að vera mjög skýr og eðlileg krafa að viðkomandi spili ekki á meðan lögreglu­rannsókn er opin og í gangi.“Samkvæmt því sem Frétta­blaðið segir hefur ekki komið til tals af hálfu Kviku banka að rifta samstarfs­samningi sínum við knattspyrnu­deild FH á þessari stundu. Þeim heimildum ber þó ekki saman við heimildir Mannlífs sem herma að Kvika krefjist þess að FH geri strax eitthvað í málunum, annars verði samningnum rift, og fannst flestum heimildar­mönnum Mannlífs að lausnin yrði væntanlega sú að Eggert myndi ekkert spila með félaginu á meðan á lögreglu­rannsókn stendur yfir. FH mun væntanlega gera eitthvað strax í málinu enda yrði það mikið fjárhagslegt högg fyrir félagið að missa samninginn við Kviku banka.„Það er ekkert annað í stöðunni fyrir FH og Eggert en að hann spili ekki meira fyrr en þessu máli er alveg lokið – þetta er svo áberandi og þekkt mál, þessi lögreglu­rannsókn, og fólk vill bara ekki sjá Eggert spila með FH eins og staðan er núna,“ sagði heimildar­maður Mannlífs innan FH.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá