Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Leiðir til að endurhugsa ferðaþjónustu að loknum heimsfaraldri

COVID-19 hefur haft mikil áhrif á ferða­þjónustu á norðurslóðum en áhrifin hafa birst með ólíkum hætti eftir svæðum. Heims­faraldurinn dró fram veikleika ferða­þjónustu en undir­strikaði einnig efnahagslegt og samfélagslegt mikilvægi hennar.

Þessar niður­stöður komu fram í skýrslu vísinda­manna við Háskóla Íslands um áhrif ofgnóttar ferða­mennsku og leiðir til að endur­hugsa ferða­þjónustu að loknum kórónu­veiru­faraldri. Rannsóknar­hópurinn sendi nýverið frá sér skýrslu um sjálbæra ferða­þjónustu á norðurslóðum.

Í rann­sókninni kom fram að COVID-19 krísan hafi leitt til þess að fólk tók að endur­hugsa forsendur fyrir vexti ferða­þjónustu og neikvæðum afleiðingum hans á loftslag, vistkerfi og samfélög. Endur­hugsun ferða­þjónustu á tímum COVID-19 felur í sér samkvæmt skýrslunni að rýna í undir­liggjandi gildi ferða­mennsku jafnt sem ferða­þjónustu sem atvinnu­greinar og finna leiðir til að þróa ferða­vörur sem hafa gildi fyrir nærsamfélög og efla þannig samfélög og umhverfi.

Skýrslan undir­strikar þörfina á því að ferða­þjónusta sé byggð upp í samtali og samvinnu atvinnu­greinarinnar og nærsamfélaga á norðurslóðum.

Áður en heims­faraldur COVID-19 skall á í ársbyrjun 2020 voru margir áfanga­staðir á norðurslóðum að vinna að því að byggja upp ferða­þjónustu. Sumir áfanga­staðir stóðu einnig frammi fyrir áskorunum vegna mikils og ósjálfbærs vaxtar ferða­þjónustu á skömmum tíma.

Skýrslan naut stuðnings norðurslóða­áætlunar Norrænu ráðherra­nefndarinnar á árunum 2018-2021 og ber heitið Arctic Tourism in Times of Change Uncertain Futures: From Overtourism to Re-starting Tourism. Þar er fjallað um niður­stöður vinnu­stofu rann­sakenda, nemenda, forsvars­fólks ferða­þjónustu­fyrirtækja, aðila úr stoðkerfi greinarinnar og frumkvöðla sem ræddu áskoranir ofgnóttar ferða­mennsku (e. overtourism), áhrif COVID-19 og leiðir til að endurræsa og endur­hugsa ferða­þjónustu til framtíðar.

Rann­sóknin sýndi fram á að lykil­atriði fyrir sjálfbæra stjórnun ferða­þjónustu sé að aðilar séu meðvitaðir um að þeir tilheyra víðtæku kerfi ferða­þjónustu sem hefur áhrif á hvernig þeir geta tekið á krísu­ástandi og áskorunum eins og að byggja upp ferða­þjónustu á jaðarsvæðum eða of hröðum og miklum vexti ferða­þjónustu.

Þeir sem komu að skýrslunni voru vísinda­menn frá sjö háskólum á Norðulöndum og í Kanada. Frá Íslandi voru þeir Gunnar Þór Jóhannesson, prófessor í ferðamála­fræði við Háskóla Íslands og Johannes Welling, verkefnis­stjóri við Rannsókna­setur Háskóla Íslands á Höfn.

Hér er hægt að skoða skýrsluna og fræðast enn meira um framtíð ferða­þjónustu á norðurslóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá