Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Átök á Alþingi: „Formaður Viðreisnar, enn og aftur, eins ómálefnaleg og hún er nú“

Upp úr sauð á Alþingi í dag.
Upp úr sauð á Alþingi í dag.

Upp úr sauð milli Lilju Alfreðs­dóttur, viðskipta­ráðherra, og þing­flokks Viðreisnar á Alþingi í dag. Hanna Katrín Friðriksson, þing­flokks­formaður Viðreisnar, sakaði Lilju um persónu­lega óvild í garð Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur, formanns Viðreisnar. Lilja kastaði boltanum þá til baka og sagði þessa persónu­legu óvild frekar vera frá þing­flokki Viðreisnar í garð hennar sjálfrar.

Í óundirbúnum fyrirspurna­tíma, undir liðnum „fundar­stjórn forseta“, spurði Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, Lilju Alfreðs­dóttur hvort hún hygðist hækka veiði­gjöld í ljósi þess að þing­meirihluti væri fyrir málinu, óháð ríkis­stjórnar­vilja.

„Ætlar ráðherra að standa við stóru orðin, fylgja þeim eftir eins og alvöru forystu­fólk gerir og sjá til þess að meirihluta­vilji þingsins ráði óháð ríkis­stjórnar­viljanum og þjóðin fái hærra og rétt­látara gjald fyrir auðlindina?“spurði Sigmar.

Var ósáttur með svör ráðherra

Lilja svaraði á þá leið að þegar ákveðnar atvinnu­greinar væru farnar að skila gríðar­legum hagnaði þyrfti að skoða það. Hún sagðist telja að það væri eðlilegt og sanngjant gagnvart samfélaginu að gera það. Lilja bætti því við að sér væri orðið mjög ljóst hversu framfara­sinnuð sú ríkis­stjórn væri sem hún sæti í og að það kæmi henni ekki á óvart ef ríkis­stjórnin kæmi á óvart í þessu máli.

Sigmar var ekki nógu ánægður með svör Lilju, þótti þau helst til óljós, og ítrekaði því fyrir­spurnina.

Lilja svaraði ítrekun Sigmars á þann veg að það væri alltaf gaman að vera á þingi þegar menn yrðu svekktir. „Mér finnst eins og Sigmar hafi orðið svekktur.“ Að hennar mati hafi svar hennar verið býsna skýrt og öflugt.

„Heyriði hvernig liðið lætur?“

Á þessum tíma­punkti greip Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, formaður Viðreisnar, fram í og hlátrasköll heyrðust úr sal. Það gekk bersýni­lega fram af Lilju. „Heyriði hvernig liðið lætur? Formaður Viðreisnar, enn og aftur, eins ómálefnaleg og hún er nú. Ég vil bara koma þessu á framfæri hér. Ég vil bara gera það.“

Þegar Lilja ætlaði að halda áfram máli sínu var aftur gripið fram í úr salnum. „Má ég tala? Enn og aftur byrjar formaður Viðreisnar. Hún ræður ekki við sig […] Það sem ég vildi segja hinsvegar; já, við munum beita okkur. Við erum í stjórn­málum til að hafa áhrif. Það höfum við sannarlega gert á síðasta kjör­tímabili og munum halda áfram að gera. Það sem ég held að sé að gerast hjá Viðreisn – hún er einfald­lega stressuð. Það er verið að taka forystu í málum sem skipta þjóðina máli í sjávar­útvegi. Og ég minni á það að Viðreisn og hátt­virtur formaður Viðreisnar, hún var sjávar­útvegs­ráðherra. Hvað gerði hún? Ekkert. Ekkert.“

Sagði framkomu ráðherra óboðlega

Næst steig Hanna Katrín Friðriksson, þing­flokks­formaður Viðreisnar, í pontu og var mikið niðri fyrir. Hún gerði athugasemd við framkomu ráðherrans og sagði hana algerlega óboðlega þegar verið væri að ræða málefni sem varðaði þing og þjóð. „Ráðherra er ófær um að svara þeirri spurningu að því er virðist vegna persónulegrar óvildar í garð formanns Viðreisnar. Óvildar sem hún verður sjálf að svara fyrir, ef hún treystir sér til, hvaðan er sprottin.“ Hanna Katrín bætti því við að viðskipta­ráðherrann væri „ekki beint í farar­broddi þeirra sem hafa lyft veg og virðingu Alþingis sem mest.“

Sagði óvildina fremur á hinn veginn

Lilja Alfreðs­dóttir kom aftur í pontu og sagðist sannarlega hafa svarað Sigmari. Það væri hennar skoðun að auka ætti gjaldtöku á fyrirtæki sem skiluðu ofur­hagnaði. „Þetta var mjög skýrt. Ég held hins vegar að þessi persónu­lega óvild sé mun fremur hjá þing­flokki Viðreisnar í garð ráðherrans. Ég verð bara að segja eins og er, ég hef sjaldan séð hátt­virtan þingmann jafn æsta og þegar hún kemur hingað í pontu; annað hvort að spyrja hátt­virtan ráðherra út í einhver málefni, eða að fjalla…“

Aftur var gripið fram í úr sal og virðist það að þessu sinni hafa verið Hanna Katrín Friðriksson.

„Má ég svara? Ég er að fara yfir þetta, hátt­virtur þingmaður. Að ég svaraði fyrir­spurninni, málefna­lega, og er búin að undirbúa þann málflutning mjög vel.“

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, tók undir gagn­rýnina á Lilju og sagði hana hafa nýtt megnið af tíma sínum í pontu til að ráðast á formann Viðreisnar, í stað þess að svara fyrir­spurn þingmanns flokksins. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, sagði Lilju hafa farið yfir strikið.

Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata spurði hvort þingmenn væru á skóla­þingi.

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Fram­sóknar, bað fólk um að sýna þinginu og hvert öðru virðingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá