Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fermingarbörn safna fyrir vatnsbrunni með dansi: „Ótrúlega skemmtilegt að gista í kirkju“

Sr. Hildur Björk Hörpudóttir. Skjáskot/Kirkjan.is
Sr. Hildur Björk Hörpu­dóttir. Skjáskot/Kirkjan.is

Afar fallegur viðburður verður í Borgar­byggð næstu helgi en þá munu fermingar­börn dansa í sólar­hring, frá föstudegi til laugar­dags og safna í leiðinni fyrir vatns­brunni í Eþíópíu.

Samkvæmt Skessu­horni munu alls 45 krakkar taka þátt og munu þau skiptast á að dansa frá klukkan tvö á föstu­daginn til tvö á laugar­daginn, auk þess sem þau fá fermingar­fræðslu og vinna ýmist verkefni.„Vatns­söfnun fermingar­barna er eitt stærsta verkefni Hjálpar­starfs kirkjunnar. Okkar fermingar­börn hér í sveitinni búa ekki við að geta gengið á milli húsa og safnað pening og ætla þau að leysa það með sólar­hrings dans­maraþoni og safna um leið áheitum,“ sagði Hildur Björk Hörpu­dóttir sóknar­prestur í Reykholti í samtali við Skessu­horn.

Söfnunin fer fram í Reyk­holtskirkju en Kristín Ólafs­dóttir frá Hjálpar­starfi Kirkjunnar mun kíkja til barnanna og vera með fræðslu um söfnunina. „Hún mun segja þeim nákvæmlega af hverju við erum að safna fyrir þessu málefni, hvert brunnurinn sem þau eru að safna fyrir mun fara og svo fá þau að sjá myndband frá því svæði,“ segir Hildur Björk.

Segir Hildur Björk ennfremur í samtalinu við Skessu­horn að það verði líf og fjör þegar krakkarnir gista í kirkjunni um næstu helgi. „Og það er ekkert skemmtilegra þegar maður gistir í kirkju en að fara í ratleik svo við munum að sjálfsögðu gera það,“ segir Hildur Björk. „Við erum svo með pizzahóp sem ætlar að baka pizzur en þau hafa skipt verkum og munu sjá að mestu um allt sjálf þennan sólar­hring. Það er svo ótrúlega skemmtilegt að gista í kirkju og það býður upp á skemmtilegar umræður sem fermingar­börnin munu taka þátt í svo ég er mjög spennt,“ bætir hún við.

Fermingar­börnin hafa alfarið séð sjálf um að safna áheitum með því að hringja í fólk og heimsækja nágranna sína. Fólk ræður sjálft hversu há upphæðin er sem það gefur en þegar börnin hafa lokið dansinum láta fermingar­börnin alla vita sem skráð hafa sig á þeirra lista og peningunum verður safnað inn á reikning. Aðspurð um það hvernig fólk geti styrkt verkefnið, sé ekki búið að hringja í það segir Hildur að það sé hægt að heyra í henni eða Heiðrúnu Bjarna­dóttur í Borgarnesi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ