Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Segir borgarstjóra halda þræla: „Erfiðisvinna án þóknunar né launa“

Ásta Kristrún Ólafs­dóttir, sálfræðingur, kennari og móðir, skrifaði grein sem birtist í Frétta­blaðinu undir yfir­skriftinni; Borgar­stjóri heldur þræla.

Í grein sinni gagnrýnir hún þann litla stuðning sem borgin veitir fólki sem sér um umönnun fólks sem fötlunar sinnar vegna getur ekki séð um sig sjálft.Ásta Kristrún er móðir ungs manns með fötlun og skrifaði hún opið bréf í Frétta­blaðið árið 2019 sem vakti talsverða athygli. Í því gagnrýndi hún þann skort á upplýsingum sem oft mætir foreldrum einstaklinga með fötlun.

Borgarstjóri heldur fólki nauðugu

„Bara svo þið vitið það áður en þið gangið til kosninga, þá heldur borgar­stjóri og hans lið, hópi fólks nauðugu í erfiðis­vinnu án þóknunar né launa. Þessi vinna, sem fólk er neytt til að inna af hendi, er bæði líkamlega og andlega erfið. Hún er félags­lega einangrandi, krefst viðveru allan sólar­hringinn og gengur nærri heilsu fólks,“ segir Ásta Kristrún í bréfi sínu og bætir við að það sé engin leið út úr þessari nauðung. „Og ef einhver vogar sér að leita réttar síns, grípur borgar­stjóri hiklaust til varna.“

Hún segir að ef einhver getur sýnt fram á að þessi nauðungar­vinna hafi skert tekjur sem viðkomandi kann að hafa haft af annarri vinnu, geti sá hinn sami sótt um hungurlús hjá Trygginga­stofnun fyrir þræl­dóminn.

„Ef þú bugast undan álaginu og veikist á líkama eða sál, færðu ekki neitt. Trygginga­stofnun hefur réttilega bent á að veikt fólk getur ekki annast fatlað fólk og því fær það enga hungurlús.“

Meirihluti borgarinnar skítfellur á siðferðisprófi

Hún segir að þegar veiki þrællinn biður borgina að aðstoða sig við að komast til heilsu sé svarið þvert nei.

„Þrællinn getur fengið að barma sér hjá félags­ráðgjafa hjá þjónustu­miðstöð, sér að kostnaðar­lausu, en ef hann er mjög illa staddur getur hann sótt um nokkra tíma hjá sálfræðingi. Kannski getur hann sótt um tíma í nuddi eða nálar­stungum en þrællinn sem þetta skrifar hefur ekki haft rænu á að láta sér detta það í hug en eins og alkunna er þá upplýsir borgin ekki um valkosti að fyrra bragði.“

Ásta Kristrún segir að þetta sé vinna sem borgin eigi, lögum samkvæmt, að inna af hendi.

„Borgin ber ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk. Ekki bara smá eða ponsu litla ábyrgð heldur 100% ábyrgð. Borgin axlar ekki þessa ábyrgð og veltir henni yfir á þræla sína, það er foreldra og aðstand­endur hinna fötluðu.“

Hún segir að siðferði yfirvalda sjáist best á því hvernig það kemur fram við þá sem minnst mega sín.

„Núverandi meirihluti borgarinnar skít­fellur á því siðferðis­prófi, misnotar fólk svo það tapar heilsunni en dúllar sér við að punta og skreyta borgina fyrir fjármuni sem ættu, ef þetta fólk hefði einhverja sómakennd, að fara í að leysa þræla úr ánauð og veita fötluðu fólki þá þjónustu sem það þarfnast. Það er ósk mín að næsti meirihluti í borginni verði fólk með sæmilega dómgreind, þokkalegt siðferði og hjartað á réttum stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá