Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Jón Ásgeir og brask með Íslandsbanka: „Þúsundir heimila sátu uppi með reikning frá Jóni og félögum“

„Þúsundir heimila sátu uppi með reikninginn frá Jóni og félögum og að minnsta kosti 15.000 fjöl­skyldur misstu heimili sín vegna þess skaða sem hann og nokkrir aðrir ollu og þá eru enn ótaldar þær þúsundir sem rétt náðu að halda heimili sínu með því að gera nauða­samninga við bankann sem setti þau í klafa fátæktar og skorts,“ skrifar Ásthildur Lóa Þórs­dóttir, alþingis­maður Flokks fólksins sem er ekki sátt við kaup Jóns Ásgeirs í Íslands­banka í pistli sínum sem birtist í Morgun­blaðinu í dag. Hún vísar til þess að Jón Ásgeir hafi keypt á afslætti og selt strax með hagnaði.

Í pistlinum fer hún stuttlega yfir kaup Jóns Ásgeirs, hlutdeild hans í ýmsum félögum hérlendis og furðar sig á því hvernig sagan geti endur­tekið sig, þegar það er ekki nema rúmur áratugur frá hruninu. „Engin skömm, engin auðmýkt, hvað þá að hann biðji fórnar­lömb sín afsökunar,“ segir Ásthildur.

Pistillinn hljóðar svo:

„ÉG á þetta, ÉG má þetta, ÉG get þetta.

Í gær bárust fréttir af því að fjár­festinga­félagið SKEL hefði selt hlutinn sem félagið keypti í Íslands­banka fyrir mánuði síðan og keypt 2,5% hlut í VÍS fyrir 800 milljónir króna. Að einhverjum hluta fengu þeir sem seldu bréfin í VÍS greitt með bréfum fjár­festinga­félagsins í Íslands­banka.

Fyrir þá sem ekki vita þá heitir stjórnar­formaður SKEL Jón Ásgeir Jóhannesson en hann fer fyrir eignarhalds­félagi sem á yfir 50% í SKEL.

Kannski muna einhverjir eftir því að fyrir nokkrum árum átti Jón Ásgeir ráðandi hlut í þessum sama banka. Sá banki, ásamt nokkrum öðrum, tók eftir­minnilega koll­steypu eftir glæfra­legan banka­rekstur Jóns og félaga hans. Jón gerði sér lítið fyrir og stakk af úr landi með fenginn, og skildi heilt þjóðfélag eftir í sárum.

Litlar heimtur voru frá honum og félögum hans upp í þann skaða sem þeir höfðu valdið, en hitt er ljóst að ekki hafa þeir liðið skort síðan og komið ár sinni ágætlega fyrir borð á ný, eins og fréttir síðustu vikna og dagsins í dag bera með sér.

Það sama verður ekki sagt um þá sem sátu í illa þefjandi súpunni sem Jón og félagar hans í hinum bönkunum skildu eftir.

Þúsundir heimila sátu uppi með reikninginn frá Jóni og félögum og að minnsta kosti 15.000 fjöl­skyldur misstu heimili sín vegna þess skaða sem hann og nokkrir aðrir ollu og þá eru enn ótaldar þær þúsundir sem rétt náðu að halda heimili sínu með því að gera nauða­samninga við bankann sem setti þau í klafa fátæktar og skorts.

En „Jón er kominn heim“ eins og segir í gömlu dægurlagi og hann er kominn með stæl.

Ekki til að biðjast afsökunar á misgjörðum sínum og skaðanum sem hann olli. Nei, hann er kominn til að taka meira. Hann er kominn til baka með peningana sem hann, með beinum eða óbeinum hætti, fékk úr bankanum til að kaupa hann aftur.

Jón Ásgeir ætlar sér stóra hluti og slær um leið blautri tusku fast í andlit fórnar­lamba sinna.

Gríðar­legur hagnaður Íslands­banka á undan­förnum árum byggir á lífs­starfi þeirra sem var fórnað til að bæta skaðann sem Jón Ásgeir olli.

Jón Ásgeir keypti banka, setti hann á hausinn, skeytti engu um afleiðingarnar, kom aftur, keypti bankann, seldi bankann og keypti trygginga­félag fyrir bréfin í þessum banka.

Geri aðrir betur.

Engin skömm, engin auðmýkt, hvað þá að hann biðji fórnar­lömb sín afsökunar.

Bara hroki, ÉG á þetta, ÉG má þetta, ÉG get þetta.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá