Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hugmyndin kviknaði í Fjarðarkaupum: „Þau sex sem búa í íbúðunum eru miklir vinir“

Stuðlaskarð
Stuðla­skarð Mynd: Kristinn Þeyr Magnússon

„Þau sex sem búa í íbúðunum eru miklir vinir og hafa sum hver verið síðan á leikskóla. Þau hafa því mikinn stuðning hvert frá öðru. Þá eru fjögur þeirra úr Hafnar­firði,“ segir Margrét Vala Marteins­dóttir forstöðu­kona Stuðla­skarðs í samtali við frétta­stofu Stöðvar 2.

Íbúar í Stuðla­skarði nýs íbúða­kjarna fyrir fatlaða í Hafnar­firði fögnuðu því í gær að hafa eignast nýtt heimili. Um mikil tímamót er að ræða fyrir hópinn. Allir sex íbúarnir eru vinir og voru að flytja úr foreldra­húsum. Íbúarnir eru á aldrinum 28 til 32 ára og eru allir með Downs-heilkenni.

Um er að ræða sex nýjar tveggja herbergja íbúðir. Íbúða­kjarninn er einstakur að því leyti að hann verður í eigu íbúanna sjálfra sem er ólíkt því sem áður hefur sést hér á landi.

Spennandi umhverfi

„Virkilega gleðilegt að sjá tíu ára draum bara verða að veruleika. Geta sleppt hendinni af stráknum í öruggt og bara spennandi umhverfi,“ segir Indriði Björnsson faðir eins íbúans og stjórnar­formaður Vinabæjar sem á og rekur Stuðla­skarð.

Mikil áhersla er lögð á sjálfs­ákvörðunar rétt allra íbúanna og koma þeir til með að sitja í stjórn félagsins. Þá komu íbúarnir að ráðningu starfs­fólksins en starfs­manna­hópurinn er nokkuð stór eða tuttugu manns.

Það var byggingar­sjóður Þroska­hjálpar sem byggði húsið en íbúarnir leigja það. Íbúða­kjarninn er rekinn með stuðningi frá Hafnar­fjarðarbæ en rekstrar­samningur er við bæinn.

Margir sem komið hafa að verk­efninu lögðu leið sína í innflutningspartýið í gær en dagurinn var sérstak­lega stór fyrir vinina sex og foreldra þeirra.

Indriði segir miklu máli skipta að íbúarnir sjálfir hafi mikið að segja um starfsemina.

„Félagið sjálft kemur til með að verða í eigu íbúanna sjálfra. Þannig að þeir koma til með að ráða og hafa áhrif á þjónustuna og hvað verður gert og áherslur og svo framvegis.“

Íbúarnir fluttu inn fyrir skömmu og hefur hver og einn þeirra innréttað sína íbúð á sinn hátt.

„Þetta hefur bara farið alveg ofboðs­lega vel af stað. Við erum með öflugt starfs­fólk. Frábæra íbúa og höfum verið að vinna þetta í samvinnu með hérna sjálfs­ákvörðunar­rétt að leiðar­ljósi og sjálf­stæði. Þannig að hér erum við bara mjög ánægð með alla þessa sögu í rauninni og hvernig þetta gengur,“ segir Margrét Vala.

Erfitt að tryggja að vinir geti búið saman

Hugmyndin að þessu búsetu­úrræði vinanna á sér tíu ára sögu og má í raun rekja til samtals á milli foreldra íbúa í hópnum þegar þeir hittust í Fjarðar­kaupum. Á þeim tíma­punkti voru vinirnir allir um tvítugt og foreldrar þeirra farnir að huga að framtíðar­húsnæði fyrir þá.

Biðlistar eftir búsetu­úrræði sem þessu eru jafnan langir og erfitt að tryggja að vinir geti búið saman. Því ákváðu foreldrarnir að fara þá leið að stofna sérstakt félag sem stóð að gerð íbúða­kjarnans.

Daníel Þorbjörnsson einn íbúanna skemmti sér vel í innflutningspartýinu sem haldið var í gær. Hann hefur nú komið sér vel fyrir í íbúðinni sinni og segir að sér líði vel þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá