Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Neysla, lygar og ofbeldi – Batasaga fíkils

Ég hef aldrei áttað mig á því hvað gerðist, hvernig ég komst á þennan stað. Þarna sat ég, rétt skriðin yfir tvítugt og beið eftir innlögn á Vog í afeitrun. Mörgum árum síðar man ég enn vel eftir þessum degi, biðstofan var furðulega lífleg miðað við aðstæður, skær­grænir sófar og litríkar skreytingar í björtu herbergi sem hafði að geyma brotna einstaklinga sem höfðu glatað lífs­orkunni, þetta passaði ekki.

Ég hafði lengi glímt við einhvers konar blekkingar­heilkenni, ég lifði í sjálf­sköpuðu leikriti sem snerist um að stjórna öllu og öllum í kringum mig, ég þurfti efnið mitt og annað skipti ekki máli. Löngu hætt að sýna raun­verulegar tilfinningar var ég orðin vofa af eigin sjálfi. Svik, lygar og stuldur var orðið það sem einkenndi líf mitt, fyrir utan neysluna auðvitað.

Hver dagur var stríð við mig sjálfa, innst inni vildi ég hætta, mig dreymdi um eðlilegt líf hins hversdags­lega Íslend­ings, en fíkillinn var mun stærri en sá draumur. Ég gerði heiðarlegar tilraunir til að hætta neyslunni, en þær enduðu allar í uppgjöf og niður­broti, sumar í geðrofi, en þá reyndi ég ítrekað að fremja sjálfsvíg. Þrátt fyrir þennan drunga­lega veruleika leit ég ekki á mig sem einstakling með fíkni­sjúkdóm, miklu frekar var ég aumingi, af hverju gat ég ekki bara hætt?

Eftir nokkur ár af afneitun og sjálfs­hatri endaði ég inni á vefsíðu SÁÁ, ég man að ég passaði að eyða öllum sönnunar­gögnum um að hafa farið inn á þá síðu, ekki vildi ég að nokkur maður kæmist að því að ég væri nálægt því að viðurkenna ósigur, ég var búin að ákveða að ég væri einfald­lega aumingi, ekki fíkill, og ég hélt fast í þann tilbúna veruleika.

Ég sat úti í bíl, fyrir utan Bónus, eftir enn aðra ferðina á almanna­færi sem ég þurfti að undirbúa mig andlega fyrir. Ég gæti hitt einhvern sem þekkti mig, fólk gæti séð á mér að ég væri undir áhrifum, ég hataði Bónus­ferðir og ég var þreytt.

Lesa meira..

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá