Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Edda Sif opnar sig um ofbeldið: „Í dag væri litið á at­vikið sem til­raun til mann­dráps“

Edda Sif Páls­dótt­ir, fjölmiðla­kona opn­ar sig í fyrsta skipti um al­var­lega lík­ams­árás sem hún varð fyr­ir fyr­ir tíu árum. Edda Sif seg­ist aldrei hafa viljað tala um at­vikið op­in­ber­lega fyrr en nú. Í nýj­asta tölu­blaði Vik­unn­ar ræðir hún um ofbeldið sem hún var beitt af fyrr­ver­andi kær­asta og sam­starfs­manni.

Edda Sif starfaði á íþrótta­deild RÚV en það var fyrr­ver­andi kær­asti henn­ar sem beitti hana of­beldi. Hún seg­ir að hún hafi verið í sam­bandi við sam­starfs­fé­laga sem var 14 árum eldri en hún. Hún var rúm­lega tví­tug þegar þau byrjuðu sam­an og þó hún sjái valda­ó­jafn­vægið núna upp­lifði hún sig full­orðna á þess­um tíma.

„Ég komst að því þegar ég byrjaði í EMDR áfalla­meðferð fyr­ir einu og hálfu ári að augna­blikið þegar ég hélt að ég myndi deyja var ekki það versta í þessu öllu sam­an held­ur það sem á eft­ir kom; það sem fólk sagði og sagði ekki,“ seg­ir Edda Sif. Hún seg­ir að fólk ekki vitað hvað gekk á auk þess sem hún seg­ir að blaðamenn hafi ít­rekað reynt að fá hana til að segja sögu sína þegar hún var ekki til­bú­in til þess.

Hún lýs­ir sam­band­inu sem storma­sömu en botn­in­um var náð á Grand Hót­el í janú­ar 2012 eft­ir að kjöri á íþrótta­manni árs­ins lauk.

„Eins og ég segi, þá var margt búið að ganga á sem ég sagði eng­um frá en þarna gat ég ekki verndað hann leng­ur. Sam­starfs­fólk mitt af RÚV fór með mig upp á Bráðamót­töku og þegar lög­regl­an gekk inn á stof­una þar sem ég var, áttaði ég mig svo­lítið á því að þetta var komið úr bönd­un­um.“

Edda Sif varð fyr­ir von­brigðum með vinnu­brögð lög­regl­unn­ar en hún spurði hvort þau myndu ekki bara finna út úr þessu sam­an, Edda Sif og ger­and­inn. Hún leitaði nokkr­um árum seinna til Bjark­ar­hlíðar þar sem hún komst í kynni við lög­reglu­konu sem fór yfir málið með henni.

„Innst inni vissi ég að þetta væri ekki í lagi en ég sagði sjálfri mér að þetta myndi lagast þegar hann væri kominn í gegnum þessa erfiðu tíma og svo framvegis. Síðan heldur þetta áfram að stig­magnast og maður sekkur sífellt dýpra í aðstæður sem er ekki svo auðvelt að koma sér út úr.

Í dag væri líka litið á at­vikið sem gerðist kvöldið sem íþrótta­maður árs­ins var kjör­inn, sem til­raun til mann­dráps,“ seg­ir Edda Sif í viðtal­inu í Vik­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá