Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Brynjar og Sveinn Andri deila: „Nefndi málefni Samherja máli sínu til stuðnings“

Fjörugar samræður hófust á milli hæstaréttar­lögmannanna Brynjars Níels­sonar og Sveins Andra Sveins­sonar eftir að sá fyrr­nefndi birti ummæli á Facebook-síðu sinni síðdegis í gær.

Í pistli sínum sagði hann að þjóðar­íþrótt Íslendinga væri almennt fjas út af engu og önnur íþrótt, ásakanir um lögbrot annarra manna, hafi sótt mjög í sig veðrið að undan­förnu.

Nefndi Brynjar máli sínu til stuðnings frétta­flutning af málefnum Samherja og ásakanir um að forsvars­menn fyrir­tækisins hafi staðið í lögbrotum og saknæmu misferli sem ekki hafi reynst vera fótur fyrir.

„Hafa þeir blaðamenn verið verð­launaðir hvað eftir annað fyrir að fara með fleipur,“ sagði Brynjar meðal annars.

Sveinn Andri gerði athugasemd við orðalag Brynjars og velti því upp hvort aðstoðar­maður dómsmála­ráðherra, sem Brynjar sannarlega er, ætti að tjá sig um sekt eða sakleysi manna í málum sem enn eru til rann­sóknar.

Sveinn Andri vísaði í orð Brynjars úr pistlinum og sagði:

„„Í meira en áratug hafa nokkrir fjöl­miðlar fullyrt að Samherji hafi staðið í ýmsum lögbrotum og saknæmu misferli, sem hingað til hefur ekki reynst fótur fyrir.“ Ertu nú alveg viss um? Og er ekki dálítið bratt að slík yfir­lýsing komi frá aðstoðar­manni dómsmála­ráðherra?“

Brynjar svaraði Sveini Andra og sagði:

„Nú, hvað varð um gjaldeyris­brotin og Seðla­bankamálið allt og peninga­þvættið í Noregi og víðar? Það hefur ekkert með aðstoðar­mann dómsmála­ráðherra að gera að þau mál fóru eins og þau fóru.“

„Verra ef reyndir lögmenn taki þátt í slíku“ 

Sveinn Andri spurði Brynjar hvort hann væri ekki að gleyma mútu­greiðslunum sem enn væru til rann­sóknar. „Þess vegna sagði ég hingað til,“ svaraði Brynjar. Sveinn Andri sagði aftur á móti að orð hans mætti skilja sem yfir­lýsingu um að ekkert sé hæft í ásökununum. Því var Brynjar ósammála:

„Nei, en það er almennt skynsamt og gott að menn fullyrtu ekki um saknæma háttsemi annarra áður en mál fá afgreiðslu í réttar­vörslu­kerfinu. Að minnsta kosti kynni sér málin almennilega áður og hafi einhverja forsendur til að fullyrða um sök. Veit að það er ekki vinsælt núna en mér þætti verra ef reyndir lögmenn taki þátt í slíku,“ sagði Brynjar og beindi pillunni til Sveins Andra.

Sveinn Andri svaraði Brynjari fullum hálsi:

„Reyndur lögmaður eins og þú og atvinnu­stjórn­málamaður átt að vita að fulltrúi dómsmála­ráðuneytisins á ekki mikið að vera að tjá sig um sekt eða sakleysi sakborninga í yfir­standandi rannsókn stofnana sem óbeint heyra undir ráðherra.“

„Ég hef áhyggju af þér“

Brynjar þvertók fyrir það að hann væri að tjá sig um sekt eða sakleysi manna heldur minna á málin sem lokið er í réttar­vörslu­kerfinu og hvernig þau enduðu.

„Í öðru lagi er ég ekki fulltrúi dómsmála­ráðuneytisins heldur pólitískur aðstoðar­maður ráðherra. Í þriðja lagi hef ég áhyggjur af þér en þær eru af ýmsum toga.“

Sveinn Andri benti Brynjari á að hann væri aðstoðar­maður ráðherra. „Punktur. Stundum þarf maður stöðu sinnar vegna að gæta að orðum sínum, þó að það sá gaman að gjamma. Það má hæglega skilja þessa færslu sem svo að þeir Samherja­menn sem séu saklausir af öllu sem áður hefur verið borið á þá.“

Samskipti þeirra Brynjars og Sveins Andra má sjá í heild sinni í færslu Brynjars hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá