Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Einkaskilaboð milli Kanye og Pete birt: „Það sem þú ert að gera fjölskyldunni þinni er hættulegt“

Pete Davidson og Kanye West.
Pete Davidson og Kanye West.

Engar sættir virðast í sjónmáli milli þeirra Kanye West og Pete Davidson. Nú hefur vinur Pete, grín­istinn Dave Sirus, birt röð skilaboða sem hann segir vera á milli Kanye og Pete. Dave Sirus hefur áður birt færslur fyrir hönd Pete, þar sem sá síðarnefndi er ekki á samfélags­miðlum.

Rapparinn Kanye West og grín­istinn og leikarinn Pete Davidson hafa eldað grátt silfur saman í nokkurn tíma. Pete er í ástar­sambandi með fyrrum eiginkonu Kanye, raun­veruleika­stjörnunni og frumkvöðlinum Kim Kardashian, en þau byrjuðu að stinga saman nefjum síðastliðið haust. Kanye hefur ekki farið leynt með óánægju sína með samband þeirra og farið mikinn á samfélags­miðlum síðustu misseri í rógburði gegn þeim. Þykir mörgum nóg um og rætt hefur verið um að hegðun Kanye sé afar eitruð; hún jaðri jafnvel við andlegt ofbeldi, vænissýki og umsátur.

Skilnaður þeirra Kim og Kanye hefur dregist á langinn vegna mótspyrnu hans. Hún hefur þó látið fella niður eftirnafn Kanye úr sínu eigin nafni og fengið dómara til þess að lýsa því yfir að hjúskapar­staða hennar sé einhleyp, þrátt fyrir að enn eigi eftir að ganga frá eigna­skiptum og forsjár­málum vegna barna þeirra, áður en formlegur lögskilnaður getur gengið í gegn.

Dave Siras birti skjáskot af skila­boðunum eftir að Kanye hafði birt nokkrar færslur yfir síðustu helgi, þar sem hann sakaði Kim um að nota dóttur þeirra, North West, gegn honum. Hann sakaði hana einnig um tálmanir og fleira. Kanye deildi einnig myndbandi af sjálfum sér þar sem hann bað til guðs og sagði Pete senda sér skilaboð, ögra sér og monta sig af því að vera uppi í rúmi með eiginkonu sinni. Fyrir rúmri viku gaf Kanye út tónlistar­myndband þar sem hann grefur leir-eftir­líkingu af Pete lifandi.

Nýleg mynd af Kim Kar­dashian og Pete Davidson saman.

„Ég ætla ekki að þegja lengur“

Dave birti skjáskotin með yfir­skriftinni „Skilaboð frá Pete“ og virðist tilgangurinn vera sá að sýna samskipti mannanna tveggja í samhengi.

„Sælinú, þetta er Skete. Geturðu vinsamlegast slakað á. Klukkan er átta um morgun og þetta þarf ekki að vera svona. Kim er bókstaf­lega besta móðir sem ég hef kynnst. Allt það sem hún gerir fyrir börnin er magnað og þú ert svo fjári heppinn með að hún sé barns­móðir þín. Ég hef ákveðið að ég ætla ekki að leyfa þér að koma svona fram við okkur og ég ætla ekki að þegja lengur. Þroskastu,“ segir í skila­boðunum sem eiga að vera frá Pete. Samkvæmt E!News eru þau ósvikin og sannarlega vinur Pete sem á Instagram-reikninginn sem birti skjáskotin. Þess ber að geta að „Skete“ er það uppnefni sem Kanye notar á Pete.

„Ó, ertu að nota blótsyrði,“ er það eina sem Kanye hefur að segja við þessu og spyr síðan: „Hvar ertu núna?“

Pete svarar þá: „Uppi í rúmi með konunni þinni“ og sendir sjálfu af sér liggjandi í rúminu.

„Það gleður mig að sjá að þú sért kominn af spítalanum og úr meðferð,“ segir Kanye þá.

Pete svarar: „Mig líka. Það er ótrúlegt hvað þessir staðir geta gert þegar þú ferð og biður um hjálp. Þú ættir að prófa það. Ég er í LA í dag ef þig langar til að hætta að vera lítill internet-ræfill og eiga samtal.“

„Þú hræðir mig ekki félagi,“ bætir Pete við. „Gjörðir þínar eru svo vandræðalegar. Það er sorglegt að fylgjast með þér eyði­leggja arfleifð þína á hverjum degi.“

„Það sem þú ert að gera fjöl­skyld­unni þinni er hættu­legt“

Kanye svaraði ekki beiðni Pete um að þeir hittust tveir til að ræða málin beint, en bauð honum þess í stað að mæta í kirkju og hitta sig. Um er að ræða „Sunday service“, sem eru trúarlegar athafnir sem Kanye stendur sjálfur fyrir á sunnu­dögum. Þar er ávallt margmenni og fjöl­miðlar stundum á svæðinu.

„Eigum við ekki bara að hittast eftir Sunday service og Saints-leikinn… Ég verð á Beverly Hills hótelinu, við getum borðað og talað saman inni á herberginu mínu. Í einrúmi, undir fjögur augu. Maður á mann,“ segir Pete þá og bætir síðan við: „Það sem þú ert að gera fjöl­skyldunni þinni er hættulegt og mun marka þau fyrir lífstíð. Viltu vinsamlegast vinna úr þessum hlutum í einrúmi félagi, ég bið þig.“

„Ef þú vilt hitta mig þá kemurðu í Sunday service,“ svarar Kanye.

„Leyfðu mér að hjálpa þér“

„Þetta á ekkert erindi við almenning. Ég er ekki að sækjast eftir myndum og fjölmiðla­fári, sem er greini­lega það eina sem þú hugsar um. Boð mitt stendur. Ég vildi að þú myndir manna þig upp, svona einu sinni á ævinni,“ svarar Pete og gerir tilraun til að höfða til Kanye í gegnum sameiginlegan reynslu­heim þeirra af andlegum veikindum. „Leyfðu mér að hjálpa þér. Ég glími við geðræna hluti líka, það er ekki auðvelt ferðalag. Þér þarf ekki að líða svona lengur. Það er engin skömm í því að fá smá hjálp. Þú munt verða svo hamingju­samur og finna frið.“

Að lokum gerir Pete Kanye ljóst að hann sé búinn að vera mun almennilegri við hann en tilefni hafi verið til. „Þú hefur ekki hugmynd um það hversu almennilegur ég hef verið við þig, þrátt fyrir allt sem þú hefur gert á minn hlut. Ég hef komið í veg fyrir að SNL tali um þig og geri grín að þér, sem þau hefur langað að gera mánuðum saman,“ segir Pete og talar þar um skemmtiþáttinn vinsæla Saturday Night Live, en Pete er einn af umsjónar­mönnum þáttarins.

Pete heldur áfram: „Ég hef komið í veg fyrir að uppi­standarar geri grín að þér vegna þess að ég vil ekki að barns­faðir kærustunnar minnar líti illa út. Ég ver þig þrátt fyrir að þú komir ömurlega fram við mig, vegna þess að mig langar til þess að allt gangi vel.“

„En ef þú heldur áfram að ýta á mig eins og þú hefur gert síðustu sex mánuði þá mun ég hætta að vera almennilegur,“ segir Pete að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt