Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Andrea er glöð að geta þeytt skífum aftur: „Þetta er mjög pent og huggulegt fyrir eldri borgara“

Sá síungi töffari, Andrea Jóns­dóttir, útvarps­kona og plötu­snúður á afmæli í dag. Telja árin nú 73 ár.

Andrea Jóns­dóttir, sem oft er titluð „rokk-amma Íslands“ byrjaði útvarps­feril sinn á Rás tvö 1970 þar sem hún stjórnaði þættinum Á nótum æskunnar ásamt Pétri Steingrímssyn en svo tók hún sér hlé og fór að vinna sem prófarka­lesari á Þjóð­viljanum 1972 en þar var hún í meira en áratug. Hóf hún aftur störf á Rás 2 árið 1984 með sinn eigin þátt og hefur hún unnið í útvarpinu síðan með hina ýmsu þætti. Nú um stundir er hún með þáttinn Pressan á sunnu­dögum. Þá hefur Andrea einnig verið plötu­snúður á Dillon hverja einustu helgi síðustu 25 árin, að Covid-lokunum frátöldum.

Andrea hlaut riddara­kross Hinnar íslensku fálkaorðu árið 2018 fyrir framlag sitt til kynningar á íslenskri og erlendri dægur­tónlist.

Mannlíf hringdi í hvíthærða töffarann og spurði hana hvort og þá hvernig hún ætlaði að halda upp á afmælið.

„Börnin mín ætla að bjóða mér út að borða. Þannig að það er varla hægt að segja að ég ætli að halda upp á það eins og hefur reyndar verið gert mjög oft á minni ævi, þá er ég látin halda upp á afmæli,“ svaraði Andrea og hló. „Eða þá að mér er boðið í eigið afmæli, sem er mjög þægilegt.“

Aðspurð um það hvort hún hafi annars ekki nóg fyrir stafni þessa dagana sagði Andrea svo vera. „Jú, ég vinn svona smá í útvarpinu og svo DJ um helgar þannig að þetta er mjög pent og huggulegt fyrir eldri borgara,“ svaraði Andrea og sagði það gott að vera komin aftur á kreik eftir Covid-lokanirnar. „Jú, það er voða fínt sko, þetta var erfitt þarna, þetta ár sem allt var lokað en þetta var sjálfsagt verra hjá mörgum en mér.“

Mannlíf óskar afmælis­barninu síunga innilega til hamingju með daginn!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá