Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Biðja íslenska ráðherra um hjálparhönd – Blaðamenn í Rússlandi ofsóttir

Vladimir Putin
Vladimir Putin

Blaðamanna­félag Íslands sendi þremur ráðherrum í ríkis­stjórn Íslands bréf fyrr í vikunni. Í bréfinu var óskað eftir því að ríkis­stjórnin auðveldaði blaða­mönnum frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi og fjöl­skyldum þeirra að fá vegabréfs­áritun, í því skyni að aðstoða þau við flótta úr landinu vegna ofsókna gegn blaða­mönnum.

Bréfið var sent á Katrínu Jakobs­dóttur, forsætis­ráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfa­dóttur utan­ríkis­ráðherra og Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra.

„Alþjóða­samtök blaða­manna, IFJ, sem Blaðamanna­félag Íslands er aðili að hafa sent út ákall til aðildar­félaga sinna vegna stöðunnar í Rússlandi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu og nýrra laga í Rússlandi gegn tjáningar­frelsinu og frjálsri fjöl­miðlun. Eins og þekkt er varðar það nú fimmtán ára fangelsi, fjár­sektir og lokun fjölmiðla að fjalla um stríðið í Úkraínu á annan hátt en rússnesk yfirvöld heimila.

Mörg hundruð rússneskra blaða­manna hafa lýst yfir vilja til að yfirgefa Rússland, samkvæmt upplýsingum IFJ. Margir eru þegar á flótta í Helsinki í Finnlandi, Istanbúl í Tyrklandi og Tbilisi í Georgíu. Þeir geta fengið aðstoð frá öryggis­sjóði IFJ en samtökin óska eftir því við aðildar­félögin að biðla til yfirvalda í viðkomandi ríki að veita þeim blaða­mönnum sem eru fastir í Georgíu og Istanbúl neyðar­vegabréfs­áritun.

Í síðustu viku stóðu IFJ ásamt Evrópu­samtökum blaða­manna, EFJ, Evrópu­ráðið, CoE, Framkvæmda­stjórn ESB og fleiri stofnunum fyrir ráðstefnu um fjölmiðla­frelsi í Evrópu sem haldin var í Gdansk í Póllandi. Í ályktun ráðstefnunnar kom meðal annars fram ákall til stjórn­valda í ríkjum Evrópu að veita neyðar­vegabréfs­áritanir eða dvalar­leyfi á grund­velli mannúðar­sjónarmiða til handa rússneskum og hvítrússneskum blaða­mönnum og fjöl­skyldum þeirra.

Blaðamanna­félag Íslands fer þess því á leit við íslensk stjórn­völd að þau verði við þessu ákalli og veiti rússneskum og hvítrússneskum blaða­mönnum neyðar­vegabréfs­áritun og/eða dvalar­leyfi af mannúðar­sjónarmiðum. Þannig stuðli íslensk stjórn­völd að öryggi þeirra blaða­manna sem eru í lífshættu á flótta fyrir það eitt að reyna að upplýsa almenning um þá hryllilegu atburði sem eiga sér stað um þessar mundir í Úkraínu.“

Mannlíf hyggst fylgja bréfinu eftir og sjá hver viðbrögð ráherranna verða á komandi dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá