Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lilja Dögg: „Lagt til að starfslaunum listamanna verði fjölgað“

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menningar og viðskipta­ráðherra, hefur mælt fyrir frumvarpi um tíma­bundna fjölgun starfs­launa til handa sviðs­listafólki og tónlistar­flytjendum. Nánar tiltekið er um að ræða, breytingu á lögum um listamanna­laun, nr. 53/2009.

Með frum­varpinu er lagt til að starfs­launum lista­manna í gegnum launasjóð sviðs­listafólks verði fjölgað um 50 og þau viðbótar­mánaðarlaun sérstak­lega skilyrt ungu sviðs­listafólki undir 35 ára aldri. Svipað er uppi á teningnum fyrir launasjóð tónlistar­flytjenda sem fær 150 viðbótar­mánaðarlaun til úthlutunar. Þar af verða 50 sérstak­lega skilyrt ungu tónlistar­fólki undir 35 ára.

Þá mun Sviðslista­sjóður fá aukið fjármagn sem nemur 50 m.kr., en Sviðslista­sjóður er verkefna­sjóður sem styður við uppsetningu og starfsemi sviðs­listaverka.

„Listalíf er hverri þjóð gríðar­lega mikilvægt og styrkir til lista­manna eru í mörgum tilvikum alger forsenda þess að grósku­mikið listalíf geti þrifist og dafnað,“ sagði ráðherra, en frum­varpið er lagt fram sem hluti af viðspyrnu­aðgerðum ríkis­stjórnarinnar vegna COVID-19 heims­faraldursins.

„List­sköpun er gríðar­lega mikilvæg fyrir þjóðina og mikilvægt að ríkis­valdið styðji við hana með myndar­legum hætti. Það á sérstak­lega við nú þegar menningar­geirinn er að taka við sér eftir afleitan tíma undan­farið. Með þessari breytingu erum við feta okkur inn á nýjar og spennandi slóðir og styðja markvisst við list­sköpun á ólíkum aldurs­bilum.“

Heims­faraldur kórónu­veiru hefur haft afar mikil og neikvæð áhrif á hagkerfið og einstaka atvinnu­greinar, en samkvæmt tölum Hagstofunnar dróst lands­framleiðsla saman um 6,5% á árinu 2020. Samdráttur í verðmæta­sköpun í menningar­geiranum, sérstak­lega þeim greinum hans sem byggja tekju­öflun sína að mestu á viðburða­haldi, var gríðar­legur. Þannig voru greiðslur til rétthafa í tónlist vegna tónleika­halds á árinu 2021 t.a.m. 87% lægri en samsvar­andi tekjur árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá