Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

„Ríkisstjórnin vill hengja brotalamir á Bankasýsluna – með því að kasta henni fyrir lestina”

Rík­is­stjórn­in hef­ur ákveðið að leggja það til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og inn­leitt verði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um.

Þar verður lögð áhersla á rík­ari aðkomu Alþing­is og að styrk­ari stoðum verði skotið und­ir að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði, lýðræðis­lega aðkomu þings­ins og upp­lýs­inga­gjöf til al­menn­ings, að því er fram kem­ur á vef Stjórn­ar­ráðsins.

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmann Samfylkingarinnar sagði í samtali við Mannlíf að:

„Ríkis­stjórnin viðurkennir greini­lega að brota­lamir hafi verið á sölu­ferlinu – en vill hengja þær allar um hálsinn á Banka­sýslunni þótt það sé hafið yfir allan vafa að lagalega og pólitíska ábyrgðin liggur hjá fjármála­ráðherra og að það er hann sem ræður ferðinni og fer með endanlegt ákvörðunar­vald um sölu banka. Fjármála­ráðherra virðist hafa umgengist lög um sölu­meðferð eignar­hluta ríkisins í fjármála­fyrirtækjum af léttúð og sett sölu­ferlið á hálfgerða sjálf­stýringu ólíkt því sem núverandi lagarammi gerir ráð fyrir. Þetta er alvarlegt og ríkis­stjórnin getur ekki bara afgreitt þetta með því að kasta Banka­sýslunni fyrir lestina.”

Þar seg­ir að for­menn stjórn­ar­flokk­anna, Katrín Jak­obs­dótt­ir, Bjarni Bene­dikts­son og Sig­urður Ingi Jó­hanns­son séu sam­mála um þessi atriði.

Frum­varp þessa efn­is verður lagt fyr­ir Alþingi svo fljótt sem auðið er.

„Ekki verður ráðist í frek­ari sölu á hlut­um rík­is­ins í Íslands­banka að sinni. Þegar ný lög­gjöf ligg­ur fyr­ir mun ákvörðun um mögu­lega sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka verða tek­in fyr­ir á Alþingi. Rík­is­stjórn­in legg­ur hér eft­ir sem hingað til áherslu á óbreytt eign­ar­hald rík­is­ins á hlut sín­um í Lands­bank­an­um,“ seg­ir á vef Stjórn­ar­ráðsins.

Enn frem­ur seg­ir að traust og gagn­sæi verði að ríkja um sölu á eign­um rík­is­ins. Al­menn­ing­ur eigi skýra og óum­deilda kröfu um að all­ar upp­lýs­ing­ar séu uppi á borðum um slík áform, mark­mið þeirra og áhrif.

Til­kynn­ing­una má sjá í heild sinni hér að neðan:

For­menn stjórn­ar­flokk­anna eru sam­mála um eft­ir­far­andi atriði í tengsl­um við sölu á 22,5% hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem fram fór í mars.

Við sölu á eign­ar­hlut­um rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um er gerð rík krafa um gagn­sæi, jafn­ræði og ít­ar­lega upp­lýs­inga­gjöf til al­menn­ings. Ljóst er að fram­kvæmd söl­unn­ar stóð ekki að öllu leyti und­ir vænt­ing­um stjórn­valda, m.a. um gagn­sæi og skýra upp­lýs­inga­gjöf.

Þá hafa komið upp spurn­ing­ar, álita­mál og gagn­rýni um fram­kvæmd söl­unn­ar sem fór fram sem nauðsyn­legt er að rann­saka og upp­lýsa al­menn­ing um.

Rík­is­end­ur­skoðun hef­ur þegar hafið út­tekt á því hvort sal­an hafi sam­rýmst lög­um og góðum stjórn­sýslu­hátt­um. Þá hef­ur fjár­mála­eft­ir­lit Seðlabank­ans hafið rann­sókn á til­tekn­um þátt­um tengd­um söl­unni.

Komi fram þörf fyr­ir frek­ari rann­sókn­ir þegar niður­stöður Rík­is­end­ur­skoðunar og Seðlabank­ans liggja fyr­ir mun rík­is­stjórn­in beita sér fyr­ir slíku á vett­vangi Alþing­is.

Þeir ann­mark­ar sem í ljós hafa komið við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd sölu á eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um hafa leitt í ljós þörf­ina fyr­ir end­ur­skoðun á lagaum­gjörð og stofnana­fyr­ir­komu­lagi.

Rík­is­stjórn­in hef­ur því ákveðið að leggja það til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og inn­leitt verði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Þar verður lögð áhersla á rík­ari aðkomu Alþing­is og að styrk­ari stoðum verði skotið und­ir að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði, lýðræðis­lega aðkomu þings­ins og upp­lýs­inga­gjöf til al­menn­ings. Frum­varp þessa efn­is verður lagt fyr­ir Alþingi svo fljótt sem auðið er.

Ekki verður ráðist í frek­ari sölu á hlut­um rík­is­ins í Íslands­banka að sinni. Þegar ný lög­gjöf ligg­ur fyr­ir mun ákvörðun um mögu­lega sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka verða tek­in fyr­ir á Alþingi. Rík­is­stjórn­in legg­ur hér eft­ir sem hingað til áherslu á óbreytt eign­ar­hald rík­is­ins á hlut sín­um í Lands­bank­an­um.

Traust og gagn­sæi verður að ríkja um sölu á eign­um rík­is­ins. Al­menn­ing­ur á skýra og óum­deilda kröfu um að all­ar upp­lýs­ing­ar séu uppi á borðum um slík áform, mark­mið þeirra og áhrif.

Hluta­fjárút­boð Íslands­banka og skrán­ing á markað í fyrra skilaði mark­miðum stjórn­valda, svo sem eins og dreifðu eign­ar­haldi og fjöl­breytni í eig­enda­hópn­um. Þá hef­ur mik­il aukn­ing á verðmæti fjár­mála­fyr­ir­tækja í rík­is­eigu und­an­farið ár styrkt stöðu rík­is­sjóðs til að gera enn bet­ur og fjár­festa til framtíðar.

Rík­is­stjórn­in hef­ur haft það leiðar­ljós að ávinn­ing­ur af eign­ar­hlut­um rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um og sölu þeirra sé nýtt­ur í þágu al­menn­ings. Meðal ann­ars með því að nýta hann með bein­um hætti til upp­bygg­ing­ar innviða í al­mannaþágu eða til að styrkja stöðu rík­is­sjóðs til að veita mik­il­væga þjón­ustu.

Ríkis­stjórnin fundar ekki í dag, en alla jafna eru ríkis­stjórnar­fundir haldnir þriðjudaga og föstudaga. Síðast var ríkis­stjórnar­fundur fyrir ellefu dögum, þann 8. apríl.

Samkvæmt upplýsingum frá aðstoðar­manni forsætis­ráðherra er enginn ríkis­stjórnar­fundur í dag.

Mörg spjót standa á ríkis­stjórninni þessi dægrin. Sala á hluta­bréfum ríkisins í Íslands­banka stendur þar hæst. Ríkis­endurskoðun hefur verið falið að skoða sölu­ferlið, Fjármála­eftirlit Seðla­bankans hefur hafið frumkvæðis­rannsókn á ákveðnum þáttum sölunnar, og stjórnar­andstaðan á þingi hefur krafist þess að sett verði á fót sérstök rann­sóknarnefnd sem hafi víðtækari heimildir til rann­sóknar ef Ríkis­endur­skoðandi hefur lögum samkvæmt.

Á föstudag voru fjölmenn mótmæli á Austur­velli þar sem afsagnar fjármála­ráðherra var krafist vegna málsins.

Formenn stjórnar­flokkanna; Katrín Jakobs­dóttir, Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, hafa ekki gefið kost á viðtali í meira en viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá