Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Þróa tölvuleik til hjálpar börnum: „Mikill kvíði getur haft mjög neikvæð áhrif á barnið“

Brynja Ingadóttir, dósent í hjúkrunarfræði. Mynd. Háskóli Íslands
Brynja Inga­dóttir, dós­ent í hjúkr­un­ar­fræði. Mynd. Háskóli Íslands

Brynja Inga­dóttir, dósent í hjúkrunar­fræði segir í samtali við Háskólann að:

„Hjúkrunar­fræðingar sem sinna ungum börnum þekkja vel af eigin reynslu að börn geta verið mjög hrædd og kvíðin fyrir því að fara í svæfingu. Bæði er það ókunnugt umhverfi, starfs­fólkið og ótti við sársauka og aðskilnað frá foreldrum sem veldur þeim vanlíðan. Mikill kvíði getur haft mjög neikvæð áhrif á barnið sjálft og líðan þess en einnig á árangur og útkomu meðferðarinnar.“

Vegna þessara áhrifa hefur Brynja ásamt samstarfs­fólki þróað tölvuleik til þess að hjálpa börnum við að takast á við þennan ótta.

Mína og Draumlandið

Leikurinn heitir Mína og Drauma­landið (e. Mina and the Land of Dreams) og er ætlaður börnum á aldrinum 4-8 ára. Hann er aðgengi­legur bæði á AppStore og Google Play og hefur þegar verið gefinn út á þremur tungu­málum: íslensku, finnsku og ensku, en Brynja segir mögulegt að bæta fleiri tungu­málum við.

Brynja segir að leikurinn geti gagnast þeim sem glíma við þroska­hömlun, en: „Leikinn geta börn spilað með eða án aðstoðar foreldra sinna nokkrum dögum áður en kemur að svæfingunni.

Þau læra um undir­búning (t.d. föstu á mat og drykk, bað), kynnast umhverfi á spítala (stutt myndbönd tekin á skurð­stofu), læra slökunar­æfingar, fá jákvæða styrkingu og hvatningu til að efla hugrekki og svo verðlaun í lokin.“

Tölvuleikir góð leið til fræðslu og þjálfunar

Brynja segir markmiðið með þróun leiksins sé að hanna úrræði sem fræðir börn og kennir þeim að takast á við kvíða og hræðslu. Leikur sem er byggður á gagn­reyndri þekkingu og tækni.

Brynja lýsir því að: „Fyrri úrræði, eins og heim­sóknir á spítala, leik­úrræði, notkun trúða, hafa reynst dýr, ekki aðgengileg öllum og ekki fýsileg þótt þau hafi borið ágætan árangur.“

En hún hefur stofnað fyrir­tækið NúnaTrix ehf. ásamt samstarfs­konu sinni, Katrínu Jóns­dóttur hjúkrunar­fræðingi, utan um þróun hugmyndarinnar og fleiri kennslu­tölvuleikja.

Leikskólabörn aðstoðuðu við hönnun 

Brynja segir enn fremur að tölvu­leikurinn hafi verið hannaður með aðstoð leik­skólabarna sem tóku þátt í vinnu­smiðjum og nothæfni­prófunum, en tölvu­leikir til kennslu séu áhugaverð viðbót við hefð­bundnar kennslu­aðferðir.

„Þeir búa yfir mörgum eigin­leikum sem geta stutt við áhugahvöt og nám, jafnt barna sem full­orðinna. Innan heilbrigðis­geirans eru hannaðir leikir fyrir börn og fullorðna sjúklinga en einnig til að þjálfa heilbrigðis­starfsfólk. Þetta er ung grein og það hefur verið gagnrýnt að ekki skuli vera gerðar vandaðar rann­sóknir samhliða gerð þeirra og útgáfu.“

Nýtist vel í undirbúningi fyrir svæfingu

Það á þó ekki við í þessu tilviki því Brynja og samstarfs­fólk vinna að rann­sóknum sem lýsa þróun og gerð leiksins, notagildi hans og áhrifum á kvíða, þekkingu og trú á eigin getu og fýsileika þess að innleiða hann í klíníska starfsemi. Hópurinn hefur þegar fengið eina ritrýnda grein birta í vísinda­tímariti en þar er þróun og prófun á notagildi leiksins lýst.

„Prófanir leiddu í ljós að leikurinn nýtist vel í undir­búningi fyrir svæfingu en um leið fengum við mikil­vægar upplýsingar sem við nýttum til að breyta leiknum áður en við gerðum hann aðgengi­legan,“ segir Brynja og bætir við: „Við höfum einnig gert forrannsókn á leiknum með þátttöku barna sem fóru í svæfingu á Land­spítala og foreldra þeirra og sambærileg rannsókn var gerð í Finnlandi. Þá erum við að undirbúa íhlutunar­rannsókn í báðum löndum þar sem áhrif leiksins á kvíða, þekkingu og fleira verður könnuð.“

Fjölbreytt og þverfræðilegt þróunarverkefni

Brynja segir að tónlistin við leikinn sé frumsamin og tekin upp á Íslandi. En vinna við tölvu­leiki sem þennan er afar umfangs­mikil og krefst fjöl­breyttrar og þver­fræðilegrar þekkingar. Að verk­efninu koma bæði fulltrúar Háskóla Íslands og Land­spítala og fræðafólk frá Háskólanum í Turku í Finnlandi.

„Í rannsóknar­hópunum eru rann­sakendur, sérfræðingar í sjúklinga­fræðslu, barna­hjúkrun og svæfinga­hjúkrun, marg­miðlunar­fræðingur, sálfræðingur og leik­skóla­kennari. Finnskt tölvuleikja­fyrirtæki hannaði leikinn og frá því komu leikja­hönnuðir, tölvunar­fræðingar, menntunar­fræðingar og fleiri.“

Brynja segir nánar frá verk­efninu og Núnatrix ehf. á hádegis­viðburði í Háskóla Íslands sem nefnist Skyndi­kynni af sprota­fyrirtækjum Háskóla Íslands þann 19. maí. Viðburðurinn er hluti af Nýsköpunar­viku sem stendur dagana 16.-20. maí og Háskólinn tekur virkan þátt í

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá