Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Aðgerðir lögreglu á Strawberries og horfnu verðmætin: „Í boði var að fara afsíðis í bakherbergi“

Mynd/skjáskot RÚV
Mynd/skjá­skot RÚV

Árið 2013 sætti kampavíns­klúbburinn Strawberries lögreglu­rannsókn vegna meintrar vændis­starfsemi og mansals. Viðar Már Friðfinnsson, eigandi staðarins, var hand­tekinn ásamt fjórum öðrum starfs­mönnum og staðnum lokað. Húsleitir voru framkvæmdar og lagt hald á umtals­verða fjármuni sem og ýmis önnur verðmæti. Staðnum var endanlega lokað árið 2014 en tveimur árum síðar kærði Viðar Már lögreglu til embættis héraðs­saksóknara vegna aðgerð­anna. Þegar skatta­lagabrot Viðars Más var tekið fyrir kom í ljós að þau verðmæti sem höfðu verið gerð upptæk á Strawberries og á heimili hans voru horfin úr hirslum lögreglu.

Grunur um milligögnu um sölu vændis

Í frétt RÚV um tálbeitu­aðgerðir og rassíu lögreglunnar, lokun Strawberries og handtöku ofan­greindra fimm aðila frá 26. október árið 2013 segir:

„Fimm voru í kvöld úrskurðaðir í gæslu­varðhald til 8. nóvember í Héraðs­dómi Reykja­víkur, eftir að lögregla handtók þá á skemmtistaðnum Strawberries í nótt. Mennirnir eru grunaðir um að hafa haft milli­göngu um vændi.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu segir að lögreglan hafi í nótt handtekið fjóra starfs­menn og eiganda veitinga­staðarins Strawberries. Að auki voru þrír hand­teknir grunaðir um kaup á vændi. Staðnum hefur verið lokað um óákveðinn tíma í þágu rann­sóknar málsins. Einnig var gerð húsleit á öðrum stöðum sem taldir eru tengjast eiganda Strawberries. Grunur leikur á að höfð hafi verið milli­ganga um sölu vændis á staðnum undan­farna mánuði og jafnvel misseri. 

Auk þeirra sem hand­teknir voru í nótt var ein kona handtekin grunuð um sölu fíkniefna. Sjö konur voru á staðnum og voru þær yfir­heyrðar sem vitni. 

Í tilkynningunni frá lögreglu segir að leyfi staðarins verði endur­skoðað í ljósi málsins.“

Þegar lögregla lét til skarar skríða hafði starfsemi svokallaðra kampavíns­staða verið töluvert í deiglunni og staðirnir umdeildir. Björk Vilhelms­dóttir, vara­þingmaður Samfylkingarinnar, hafði til að mynda mælt fyrir þings­ályktun um starfsemi staðanna tæpum tveimur vikum fyrr. Tilgangurinn var að koma í veg fyrir rekstur staða sem gerðu út á fáklæddar konur og sölu á þeim í einka­rýmum.

Blaðamenn rannsaka kampavínsstaði

Nokkrum árum áður en handtökur og rassía lögreglu fór fram á Strawberries, hafði staðnum verið lokað nokkrum sinnum vegna brota á vínveitinga­löggjöfinni. Árið 2010 var lögum um starfsemi nektar­dansstaða breytt en kampavíns­klúbbarnir tóku þá að spretta upp í staðinn. Forsvars­menn staðanna sögðu alla starfsemi þeirra vera innan lagalegra marka.

Blaðamenn Frétta­blaðsins heimsóttu tvo þessara staða árið 2013. Í frásögn þeirra sagði meðal annars:

„Það var svipað umhorfs inni á VIP-Club og á Crystal. Þar störfuðu nokkrar stúlkur sem kváðust vera frá Slóveníu. Þær höfðu aðeins búið á Íslandi í eina viku en töluðu eilitla ensku. Þær sögðust búa allar saman í lítilli blokkar­íbúð og því vera mjög nánar. Ein kvennanna var greini­legur yfirmaður þeirra og virtust konurnar leita til hennar eftir samþykki um næstu skref í samskiptunum. Í boði var að fara afsíðis í bakherbergi. Þar gátu þær veitt heimildar­manni „það sem hann vildi“ án þess að frekari útskýringar fylgdu. Tíu mínútur með stúlku þar kostuðu tuttugu þúsund.“

Málið fellt niður og eigandi kærir lögreglu

Lögregla sagði aðgerðirnar, þar sem óeinkennisklæddir lögreglu­menn beittu sér sem tálbeitur, staðfesta grun um vændis­starfsemi á staðnum. Tveimur árum síðar, árið 2015, lýsti ríkis­saksóknari því yfir að málið yrði fellt niður. Það eina sem eftir stóð voru meint skatta­lagabrot eigandans, Viðars Más, sem ákært var fyrir. Viðar Már kærði síðan lögreglu vegna aðgerð­anna á Strawberries árið 2016.

„Í umræddri kæru komu meðal annars fram ásakanir um að lögreglu­menn hefðu setið að sumbli í tálbeitu­aðgerðunum, verið drukknir þegar handtökur hófust inni á staðnum eftir lokun og eytt verulegum fjárhæðum, samkvæmt heimildum DV um 1.100 þúsund krónum, í áfengi á staðnum að því er virðist til að reyna að grípa konur við að bjóða þeim kynlífs­þjónustu gegn greiðslu,“ segir í frétt DV um málið.

Myndband úr eftirlits­myndavél staðarins sýndi nokkra óeinkennisklædda lögreglu­menn sitja og drekka mikið áfengi í félags­skap stúlkna í nokkrar klukku­stundir. Í rann­sóknar­gögnum lögreglu hafði komið fram að lögreglu­mönnunum hefði verið boðin kynlífs­þjónusta gegn greiðslu.

„Mennirnir sjást panta sér og greiða fyrir fjölmarga bjóra og drekka þá. En ekki aðeins bjór, heldur í að minnsta kosti tvö skipti sjást mennirnir, sem fullyrt er að séu lögreglu­menn, fá sér eitthvað sem líklega er koníak eða viskí í glas. Sjást þeir velta glasinu um í lófanum, þefa af því og drekka í botn. Að minnsta kosti einn mannanna, virðist síðar vera orðinn áberandi ölvaður við barinn.“ (Úr frétt DV 24. mars 2017)

Íslenska ríkið dæmt brotlegt gagnvart dyraverði

Árið 2017 var íslenska ríkið svo dæmt til að greiða fyrr­verandi dyraverði á Strawberries 800 þúsund krónur í miska­bætur vegna gæslu­varðhalds sem hann sætti í tengslum við aðgerðir lögreglu.

Í frétt DV frá 2017 um aðgerðirnar segir ennfremur:

„Annar lögreglu­mannanna er með bjór­flösku í hönd þegar þeir ráðfæra sig hvor við annan, og miðað við það sem síðar gerist eru þeir að skipuleggja handtöku­aðgerðir. Lögreglu­maðurinn með bjórinn í hönd, fær sér síðan gúlsopa, leggur flöskuna á barborðið og virðist líta eftir félögum sínum sem von er á. Eftir stutta stund snýr dyra­vörðurinn aftur í mynd eftir að hafa brugðið sér frá, en þá er annar lögreglu­mannanna að handtaka barþjón við barinn og dyra­vörðurinn athugar málið. 

Þá vindur sér upp að honum hinn lögreglu­maðurinn sem nýbúinn var að leggja frá sér bjór­flöskuna, grípur í frakka dyra­varðarins sem bakkar. Einhver orða­skipti verða þeirra á milli en dyra­vörðurinn virðist spakur og lítt ógnandi. Af mynd­bandinu verður ekki annað ráðið en að lögreglu­maðurinn keyri dyra­vörðinn sem var að hörfa aftur á bak í jörðina, með þeim afleiðingum að hann fellur harkalega aftur fyrir sig á gólfið af nokkru afli. Lendir meðal annars illa á litlu sviði sem þar er.“

Verðmætin horfin úr hirslu lögreglu

Þegar meint skatta­lagabrot Viðars Más voru tekin fyrir, kom í ljós að verðmæti sem höfðu verið handlögð við húsleit, bæði á kampavíns­klúbbnum og á heimili hans, voru horfin úr hirslum lögreglu. Samkvæmt Viðari Má og lögmanni hans voru marg­vísleg verðmæti handlögð, meðal annars nokkur Rolex-armbandsúr, bindis­nælur, hringar, hálsmen, annað verðmætt skart, erfða­gripir og nokkuð af reiðufé; bæði evrur og dollarar. Samkvæmt heimildum DV á þessum tíma hlupu verðmætin á mörgum milljónum króna.

Hvarf verð­mætanna kom í ljós þegar lögregla krafðist þess að munirnir, auk fasteigna og annarra stærri eigna, yrðu gerðir upptækir í skatta­máli Viðars Más. Þegar málið var tekið fyrir kom hins vegar í ljós að saksóknari hafði fallið frá þeirri kröfu. Þegar málið var skoðað nánar fékkst það loks staðfest að ástæðan hafði verið sú að umræddir munir voru allir horfnir.

Viðar Már kærði bæði þjófnað á eigum sínum og framgöngu lögreglu­manna við aðgerðir á staðnum, til héraðs­saksóknara. Hvorug kæran leiddi til ákæru. Viðar Már var sjálfur dæmdur í tólf mánaða skilorðs­bundið fangelsi og til að greiða 242 milljónir króna í sekt, fyrir skatta­lagabrot.

„Það hafðist ekki uppi á þeim sem mögulega bar ábyrgð á því að þessir hlutir hurfu. Þeirri rannsókn var því hætt,“ sagði Ólafur Þór Hauksson héraðs­saksóknari, í samtali við Vísi árið 2018. Aðspurður hvort það væri ásættanleg niður­staða sagði Ólafur þetta vissulega bagalegt.

Heimildir:

DV – „Strawberries-rassían: Myndband sýnir lögreglu­menn þamba áfengi“

Vísir – „Selskapur kvenna til sölu fyrir kampavín“, „Kampavíns­klúbbum lokað fyrir fullt og allt“, „Óupplýstur þjófnaður úr hirslu lögreglu“

RÚV – „Fimm í varðhald og Strawberries lokað“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá