Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vytautas Narbutas: „Við fæðumst með bæði paradís og helvíti innra með okkur“

„Ég er manneskja, sextugur og dauðlegur,“ segir lista­maðurinn Vytautas Narbutas þegar hann er beðinn um að lýsa sjálfum sér. Hann opnaði nýlega sýningu sína „Tomorrow, and tomorrow, and tomorrow“ í Gallerí Göng og þar má einmitt sjá dauðlegar manneskjur. Dauðlegar manneskjur og sumar meira að segja dánar. Verkin hans eru full af táknfræði. Trúarbragðasímbólum. Goðsagn­armístík. Heimspeki­legum pælingum.

Hún lét sækja prest svo ég dæi ekki trú­leys­ingi.

Hann fæddist einmitt fyrir sextíu árum síðan, sex áratugum, í Klaipéda í Litháen. Þegar hann var kominn í þennan heim leið ekki langur tími þar til sjálfur dauðinn ætlaði að sækja hann. Lungna­bólga í báðum lungum barnsins. „Læknar sögðu móður minni að það væri engin von og að hún ætti að búast við hinu versta. Hún lét sækja prest svo ég dæi ekki trúleysingi. Ég var þess vegna skírður á sjúkra­húsinu og sem betur fer gerðist krafta­verk: Mér fór að batna. Og ég er enn lifandi og ég vona að svo verði áfram.“

Drengurinn sem var svona ungur við dauðans dyr fór að teikna og sjálfur meistarinn Leonardo da Vinci blés honum í brjóst þótt dáinn væri. „Ég las bækur um hann þegar ég var barn og heillaðist af verkum hans.“

Hann sem lifði var 11 ára þegar hann fór í lista­skóla: Klaipéda-lista­skólann. Síðan var það Kaunas-lista­skólinn í fimm ár og loks Vilnius Academy of Fine Arts á árunum 1982-1990. Lærði myndlist og leikmynda- og búninga­hönnun. Námið í síðastnefnda skólanum tók sex ár en eftir fyrsta árið þurfti Vytautas að fara í sovéska herinn í tvö ár. „Þetta var á þeim tíma þegar Sovét­ríkin höfðu ráðist inn í Afganistan og það kom mér í ógöngur: Gæti ég drepið mann? Sem betur fer kom ekki til þess.“

Upp­setn­ing á TARTUFFE eftir Moliére í leik­húsi í Óðins­véum í Danmörku árið 2013 í leik­stjórn Oskaras Koršu­novas.

Grímuverðlaunahafi

Örlögin urðu til þess að Vytautas, sem gagn­rýnendur í heima­landi hans höfðu kallað „endur­reisnar­manninn“, kom til Íslands í fyrsta skipti þremur árum eftir útskrift: Drauma­lands hans frá æsku­árunum. Landið þar sem álfar, tröll og huldufólk er sagt búa á meðal mannanna sem og í stokkum og steinum og þar sem goð svo sem Óðinn, Frigg og Þór hafa yfir sér ævintýrablæ.

Leik­stjórinn Rimas Tuminas og tónskáldið Faustas Laténas settu þá upp Mávinn eftir Anton Chekhov í Þjóð­leikhúsinu. Vytautas sá um sviðs­myndina. Hann stóð svo að fjórum öðrum sýningum með Rimas hér á landi.

Fékk ég Grímu­verð­launin fyrir Engla alheims­ins.

„Þetta var yfir­skilvitlegt krafta­verk vegna þess að mig hafði dreymt um að fara til Íslands þegar ég var barn. Ég veit ekki hvers vegna. Mig dreymdi hins vegar ekki um að búa á Íslandi en hér hef ég hins vegar búið frá árinu 1998 og ég þori að fullyrða að að ég geti litið á mig sem litháískan-íslenskan listamann. Ég hef unnið meðal annars fyrir Þjóð­leikhúsið, Borgar­leikhúsið, Íslensku óperuna, Loft­kastalann og Gaflara­leikhúsið. Síðasta uppsetning sem ég vann að var Djöfla­eyjan í Þjóð­leikhúsinu og fékk ég Grímu­verðlaunin fyrir Engla alheimsins.“

Sál mannanna

Það er óhætt að segja að verk Vytautas séu eins og úr öðrum heimi. Öðrum heimi þar sem allt getur gerst. Hvernig hefur Ísland blásið honum í brjóst? Landið þar sem eins og þegar hefur komið fram álfar, tröll og huldufólk er sagt búa á meðal mannanna sem og í stokkum og steinum og þar sem goð svo sem Óðinn, Frigg og Þór hafa yfir sér ævintýrablæ? „Stórkostlegt lands­lagið á Íslandi heillaði mig frá fyrstu stundu og gerir enn. Þetta er yfir­náttúrlegur innblástur og það að horfa á þetta landslag er eins og hugleiðsla. Ég bý rétt hjá vita í Gróttu og þaðan sé ég sólar­lagið, sólsetrið, stjörnur og norður­ljósin, fjöll og skip.“

Hann hlustar á nið hafsins. Fugla­sönginn.

Máva­hlátur.

„Ég málaði einu sinni mynd af Maríu mey þar sem íslenskt landslag var á myndinni sem Vilnius MO Museum á.“

Hvernig hafa myndirnar hans þróast í gegnum árin?

„Þær hafa þróast bæði hvað varðar myndefni og tækni.“

Hann talar um Sovét­ríkin fyrr­verandi en þau voru ekki fyrr­verandi þegar hann sem lifði var barn, unglingur og ungur maður. Og hann segir að ekki sé að finna sovésk áhrif í verkunum. „Ég var alltaf á móti hugmynda­fræði kommúnista. Heimur minn var andlegur en síðan fór ég að leggja áherslu á trúarlegt myndefni.“

Sumum finn­ast mynd­irnar mínar vera ógn­vekj­andi.

Hann segist trúa á sál mannanna og allt sem henni tengist. Þessar áherslur má sjá í verkum hans sem látinn meistarinn Leonardo da Vinci blés í brjóst fyrir um hálfri öld. Stundum sést inn í fólk. Inn í líkama fólks. Bein. Hauskúpur. „Sumum finnast myndirnar mínar vera ógnvekjandi. Ég er ósammála. Við fæðumst með bæði paradís og helvíti innra með okkur. Við þurfum að komast út úr göngum andlegs vesaldóms og frelsa okkur sjálf frá myrku horni sálarinnar eins og Jesús gerði í eyði­mörkinni.“

Allt þetta birtist svo í uppbyggingu verkanna. Litum. Táknum.

Hafið bláa hafið, sólarlag og sólsetur og máva­hlátur dáleiða litháíska-íslenska lista­manninn en útlönd kalla líka en Vytautas hefur að undan­förnu unnið mest við sviðs­myndir í erlendum leikhúsum. Síðasta verkefni sem ég vann að var leikrit byggt á Brave New World eftir Huxley í leik­stjórn Gintaras Varnas en það var sett upp í Vilnius Youth Theatre. Leik­myndin var tilnefnd til Golden State Cross-verð­launanna.“ Annars er Vytautas á Íslandi við hafið. „Restina af tímanum mála ég hér á Íslandi og ber út blöð á nóttunni.“

Í fjarbúð

Hann sem lifir segir að heimurinn sem við þekkjum blási honum ekki í brjóst; eins og meistari da Vinci. „Ég les ekki dagblöð,“ segir hann sem ber út dagblöð á nóttunni, „og ég horfi ekki á sjón­varpið þó ég hafi reyndar byrjað að fylgjast með fjöl­miðlum eftir að stríðið í Úkraínu hófst. Frá því ég var barn hef ég haft áhuga á list, sögu og heimspeki. Trú var mér mikilvæg áður en ég gerði mér grein fyrir því. Mig dreymdi um að verða prestur og ganga í klaustur til að forðast þennan heim þótt ég hafi á sama tíma dreymt um að ferðast og skoða heiminn.“

Og hjónin búa ekki saman.

Vytautas er kvæntur Dagbjörtu Ásbjörns­dóttur. Og hjónin búa ekki saman. Heimilin eru tvö. „Það er eitt vandamál; þegar við hittumst þá finnst okkur við ekki geta varið nógu miklum tíma saman.“

Lista­maðurinn sem lifir er spurður hvaða lífs­reynsla hafi haft mest áhrif á líf hans. „Leikhús er mikil­vægur hluti í lífi mínu; leikhúsið er heill heimur út af fyrir sig. Ég fæddist í Sovét­ríkjunum eins og hefur komið fram; búrinu þar sem allt var ritskoðað, bælt niður og afbakað. Leikhúsið var staðurinn þar sem hægt var með mynd­líkingum að tala um það sem ekki hefði annars verið hægt að tala um. Fólk fer í leikhús til að finna frelsi. Upplifa frelsi.

Ef þeir sem fara á sýninguna, og horfa á verkin mín, ná að líta í eigið sjálf og tala við sitt innra sjálf með því að horfa á myndirnar mínar mun það veita mér ánægju því þá veit ég að ég lifi og vinn ekki til einskis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá