Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Engin bilun í kosningakerfum þrátt fyrir meiningar á Twitter: „Svarhlutfall símtala var 99,6%“

Sigga, Beta og Elín sigruðu Söngvakeppni sjónvarpsins. Mynd/skjáskot RÚV.
Sigga, Beta og Elín sigr­uðu Söngvakeppni sjón­varps­ins. Mynd/skjá­skot RÚV. Mynd: Mummi Lu / Mummi Lú

Framkvæmda­stjóri Söngva­keppninnar segir ekki að sjá að neitt hafi farið úrskeiðis í síma­kosningu í gærkvöldi. Svar­hlutfall símtala hafi verið 99,6 prósent.

Það hefur líklega ekki farið fram hjá mörgum að systurnar Sigga, Beta og Elín fóru með sigur af hólmi í Söngva­keppni sjón­varpsins í gær og verða þannig framlag Íslands í Eurovision í maí. Lag þeirra, Með hækkandi sól, er samið af tónlistar­konunni Lovísu Elísabetu Sigrúnar­dóttur sem landsmenn þekkja sennilega betur sem LayLow.

Fljótlega eftir að úrslit Söngva­keppninnar voru ljós fór af stað umræða um að ekki hefði verið hægt að hringja inn í ákveðin númer í síma­kosningunni. Hæst í þessari umræðu fóru stuðnings­menn Reykja­víkurdætra, sem hrepptu annað sætið í keppninni. Á Twitter fullyrtu sumir að þeir hefðu ekki náð inn þegar kjósa átti sveitina. Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmda­stjóri keppninnar, segir hins vegar ekki að sjá að neitt hafi farið úrskeiðis.

„Við nánari greiningu núna í morgun þá er ekki að sjá að það hafi verið nein sérstök vandamál við afgreiðslu símtala eða sms-a inn á kosninga­kerfið sjálft. Svar­hlutfall símtala var 99,6% og frávísanir vegna álags voru bara 0,4% og þau voru ekki bundin við ákveðin kosninga­númer,“ segir Rúnar í samtali við RÚV.

Rúnar Freyr Gíslason, fram­kvæmda­stjóri Söngvakeppn­innar.

Venju samkvæmt voru einhverjir sem náðu ekki í gegn með sín atkvæði þegar sem mest álag var á kerfinu. Málið var skoðað með Vodafone, sem sá um atkvæða­greiðsluna og miðað við þá greiningu var ekkert óvenjulegt við svar­hlutfallið. Rúnar segir þetta ekki í fyrsta sinn sem þessi umræða skapist.

Hann nefnir sérstak­lega að fólk sem sé með frelsis­reikninga lendi oft og tíðum í vandræðum í kosningum sem þessari, þegar það eigi ekki næga inneign.

„Sá sem ég talaði við bendir hins vegar á að stundum getur fólk ekki kosið ef það er með svokölluð frelsis­númer og það hefur oft valdið misskilningi hjá notendum; að þeir haldi að þeir eigi inneign fyrir þessu en eiga ekki,“ segir Rúnar í samtali við RÚV.

Hann áréttar að svar­hlutfallið sé í samræmi við það sem venjulega sé og að frávísanir vegna álags, sem voru aðeins um 0,4 prósent, hafi ekki verið bundin við ákveðin kosninga­númer.

Þessi hafði vit á því að reyna ekki:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá