Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lögmaður föðurins í Noregi: „Hann hefur frekar viljað skapa ró og næði“

Samsett mynd:Edda með börnin sín og Leifur Runólfsson
Samsett mynd:Edda með börnin sín og Leifur Run­ólfs­son

„Það er ekkert nýtt í þessu máli, ég get staðfest það,“ sagði Leifur Runólfsson, lögmaður föður barnanna sem Edda Björk Arnar­dóttir, móðirin, nam á brott með einka­flugvél frá Noregi í síðustu viku. Edda steig fram í viðtali í hlaðvarps­þættinum Eigin konur, en þar lýsti hún meðal annars meintum hótunum og ofbeldi af hálfu föðursins. Leifur, lögmaður föðursins, sendi frá sér yfir­lýsingu í gær þar sem hann segir það miður að forsjás­deilur foreldranna hafi ratað í fjölmiðla. Mannlíf fjallaði í gær um ásakanir Ragn­heiðar, dóttur mannsins, eftir að hún kom fram í viðtali í hlaðvarps­þættinum Eigin konur. Þar sagði hún föður sinn hafa brotið á sér og slegið sig.

Aðspurður út í ásakanirnar sagði Leifur þær hafa komið upp fyrir tveimur til þremur árum síðan. Málið hafi ekki farið fyrir dóm og sagðist hann ekki vita betur en það væri búið að fella það niður. Lögmaðurinn vildi ekki tjá sig um málefni barnanna en sagði hann föður þeirra reyna skapa ró í aðstæðunum.
„Hann hefur frekar viljað skapa ró og næði,“ sagði hann undir lok samtalsins.

Yfir­lýsingu Leifs má lesa í heild hér að neðan.

„Því miður hafa efnis­atriði í erfiðri og viðkvæmri forræðis­deilu foreldra sem búsettir eru í Noregi annars vegar og á Íslandi hins vegar ratað í íslenska fjölmiðla. Norskir dómstólar hafa úrskurðað um fyrir­komulag forræðis og umgengnis­rétt foreldranna og íslenskir dómstólar um ólögmætt hald móður á börnum þeirra. Fyrir það hlaut hún sex mánaða fangelsisdóm.

Kastljós fjölmiðla hefur síðustu dagana einkum beinst að brottnámi drengjanna þriggja á nýjan leik. Hefur móðir þeirra stigið fram í fjöl­miðlum og tjáð sig um sína hlið málsins með ítarlegum hætti. Í þeim viðtölum ber hún föður drengjanna þungum sökum. Sömuleiðis hefur elsta dóttir þeirra hjóna, 15 ára gömul, verið leidd fram með þungar ávirðingar í garð föður síns. Norsk yfirvöld hafa að lokinni vandlegri rannsókn úrskurðað að ásakanirnar séu tilefnis­lausar.

Faðir drengjanna og tveggja systra þeirra sem búa hjá móður sinni á Íslandi hefur af tillitsemi við börnin forðast að að segja sína hlið málsins á opinberum vettvangi. Í lengstu lög mun hann kappkosta að halda því striki. Einungis önnur hliðin í þessari deilu, þ.e. sjónar­hóll móðurinnar, verður því sýnileg og vonandi er að fjöl­miðlar nálgist umfjöllun sína bæði með það í huga og einnig hitt að börn eiga í hlut.

Vakin er athygli á þeirri staðreynd að réttar­ríki beggja viðkomandi landa teljast í fremstu röð og ekki síst þegar réttindi og velferð barna eru annars vegar. Þess vegna mun faðir barnanna, skjólstæðingur minn, hér eftir sem hingað til hlíta eftir bestu getu þeim niður­stöðum og fyrir­mælum sem þar til bær yfirvöld úrskurða um.

Reykjavík 5. apríl 2022

Leifur Runólfsson

lögmaður“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá