Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kóngurinn og drottningin af Staten Island: „Hann er sannarlega yndisleg mannvera“

Pete Davidson og Kim Kardashian eru hamingjusöm saman.
Pete Davidson og Kim Kar­dashian eru ham­ingju­söm saman.

Raun­veruleika­stjarnan og frumkvöðullinn Kim Kardashian mætti á dögunum í þáttinn Live With Kelly and Ryan, þar sem hún talaði um góð kynni sín af heimabæ kærasta síns, Pete Davidson. Pete ólst upp á Staten Island í New York-fylki.

Þau Kim og Pete byrjuðu að stinga saman nefjum síðasta haust og hefur sambandið þróast og orðið alvarlegra eftir því sem liðið hefur á. Kim er 41 árs og Pete 28 ára.

Parið hefur aldeilis þurft að takast á við hindranir á þeim stutta tíma sem þau hafa verið saman. Kanye West, rapparinn heims­frægi og fyrr­verandi eigin­maður Kim, hefur áreitt parið, lagt Pete í einelti á samfélags­miðlum og haft uppi ýmis gífuryrði um þau, bæði á samfélags­miðlum sínum og í fjöl­miðlum. Málið færðist úr gulu pressunni yfir á stærri frétta­miðla eftir því sem leið á og þótti málið lýsandi dæmi um fyrrum maka sem áreita og beita andlegu ofbeldi þegar hinn aðilinn slítur sambandinu. Svo fór að Instagram setti hann í sólarhrings­bann fyrir áreitni, haturs­orðræðu og einelti.

Þrátt fyrir mótlætið virðist sambandið aðeins hafa orðið sterkara.

„Staten Island er frábær staður,“ sagði Kim í viðtali við þau Kelly Ripa og Ryan Seacrest. „Við skemmtum okkur konunglega í ferð okkar þangað. Mig langaði til að skoða bæinn.“

Aðspurð hvernig parið ferðist til og frá bænum án þess að lenda í öngþveiti fjölmiðla og svokallaðra „pappa­rassa“, sagði Kim þau einfald­lega ferðast um eins og hver annar heima­maður.

„Við tökum ferjurnar hvert sem við förum. Þetta hefur alltaf verið mjög óeftirtektarvert. Það er skemmtilegi parturinn. Við getum bara slakað á og verið lítið áberandi, ferðast um, skoðað allt það skemmtilega í bænum og laumast inn og út af stöðum. Það kom á óvart hversu laumuleg við höfum getað verið á Staten Island,“ sagði Kim.

Pete skrifaði handritið fyrir kvik­myndina The King of Staten Island, ásamt þeim Judd Apatow og Dave Sirus. Hann lék einnig aðal­hlutverkið í myndinni, sem er lauslega byggð á hans eigin uppvexti á Staten Island. Tenging hans við staðinn er því augljós­lega afar sterk. Það má því ef til vill segja að kóngur Staten Island hafi fundið drottningu sem geti stjórnað ríki­dæminu með honum.

Dálítið krútt­leg saman á frum­sýn­ingu The Kar­dashi­ans á dög­unum.

Síðan parið byrjaði fyrst að hittast, í nóvember síðastliðnum, hefur Kim einungis haft góða hluti um Pete að segja. Hún tjáði sig ekki opinber­lega um sambandið í upphafi, en síðustu misseri hefur hún komið fram í viðtölum þar sem hún talar á einlægan og fallegan hátt um kærastann og sambandið þeirra á milli. Í viðtalinu við þau Kelly og Ryan var ekkert lát þar á. Hún sagði Pete einstak­lega einlæga manneskju.

„Ég vissi alls ekkert svo mikið um hann áður,“ sagði Kim. „Ég sá hann nokkrum sinnum á viðburðum og svoleiðis. Spjallaði við hann. Og hann virtist alltaf rosalega almennilegur. En ég bara vissi ekki margt um hann. Nú þegar ég hef kynnst honum veit ég að hann er sannarlega, svo innilega, yndisleg mannvera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt