Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Íslendingar eiga einu stærstu vatnsauðlind á mannsbarn í heiminum: „Gerum hið ósýnilega sýnilegt“

„Alþjóð­legur dagur vatnsins var haldin í gær 22. mars. Dagurinn er haldinn ár hvert til að minna á mikilvægi vatns­auðlindarinnar.  Íslendingar eru svo heppnir að eiga einhverja stærstu vatns­auðlind á mannsbarn í heiminum. Við búum við líklega eitt tærasta grunnvatn á Vestur­löndum, sem má rekja til stórra – grunn­vatnsgeyma fjarri byggð og umsvifum mannsins.  Á Íslandi er grunn­vatnið nýtt til drykkjar, matvæla­framleiðslu og iðnaðar.

Athyglin í ár beinist einmitt að grunn­vatni með slag­orðinu „gerum hið ósýnilega sýnilegt.“ Þetta segja Hrund Ó. Andra­dóttir, prófessor í umhverfis­verkfræði við Háskóla Íslands, og María J. Gunnars­dóttir, sérfræðingur við Vatna­verkfræði­stofu skólans sem rituðu saman grein í tilefni Alþjóð­legs dags vatnsins.

„Undir fótum okkar liggur falinn fjár­sjóður sem auðgar líf okkar. Næstum allt fljótandi ferskvatn í heiminum er grunnvatn, sem verður sífellt mikil­vægara með loftslags­breytingum. Því er mikilvægt að vinna að sjálf­bærri stjórnun þessarar dýrmætu auðlindar, að vernda hana og nýta skyn­samlega. Grunnvatn er hulið, en ætti ekki að vera úr huga, eins og Sameinuðu þjóðirnar komast að orði.“

Í tilkynningu í tilefni dagsins segja þær að mikilvægt sé að gera sér grein fyrir því að það sem við gerum ofanjarðar skiptir máli neðanjarðar. Merkja má athafnir mannsins og umsvif mann­virkja í vatninu í nærumhverfi okkar. Sem dæmi, þá er slit malbiks og dekkja ein stærsta uppspretta örplasts í vatna­vistkerfum. Nýleg rannsókn við Verkfræði- og náttúru­vísindasvið Háskóla Íslands ályktaði að helsta ástæða fyrir myndun göturyks í Reykjavík er að nær annar hver bíll er á nagla­dekkjum á veturna. Helmingur ryksins sem nagla­dekkin spæna upp ratar í vatna­vistkerfin okkar, hinn helmingurinn veldur ítrekuðum svifryks­dögum sérstak­lega þegar snjóa leysir á vorin.

Örmengunarvaldar hafa mælst erlendis í grunn­vatni, í fisk­afurðum og í manns­líkamanum. Efnin eru oftast þrávirk, safnast upp í lífkeðjunni, og talin valda hormóna­röskunum og/eða alvarlegum sjúkdómum. Sum efnin skolast af þökum, klæðningum og gróðri eins og t.d. þung­málmar, plastefni, eld- og rotvarnar­efni, sveppa- og skor­dýraeitur. Önnur skolast af götum, eins og t.d. fjöl­hringa arómatísk kolvetni sem myndast við bruna eldsneytis. Þá berast leifar lyfja, snyrti- og hreinsi­vara með heimilis­skólpi í vötn. Þótt efnin séu í litlu magni, þá gætir áhrifa þeirra engu að síður, og jafnvel eftir að notkun þeirra er hætt. Til dæmis eru vatns- og fitu­fráhrindandi PFAS efni, sem notuð eru í ýmsum varningi innan og utan heimilis, nánast óniður­brjótanleg, svokölluð eilífðar­efni.

Skila­boðin frá þeim til Íslendinga á degi vatnsins í gær eru:
•    Nálgumst vatnið okkar með aðgát og virðingu
•    Notum efni varlega og sparlega
•    Hættum að keyra á nagla­dekkjum
•    Fylgjumst vel með vatninu okkar með reglu­bundnum mælingum“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá