Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Pistlar Páls fordæmdir – Skólameistari stendur vörð um Pál – Kennarar æfir

Á annan tug kvartana bárust skóla­meistara FG í október eftir blogg­færslu Páls sem sneri að frétta­manninum Helga Seljan. Fullyrti Páll að frétta­flutningur Helga væri ómark­tækur af þeirri ástæðu að Helgi hefði greint frá því að hafa farið á geðdeild. Samfélags­miðlar og athugasemda­kerfi loguðu í kjölfarið.

„Þetta er erfitt viðfangs. Hvar lýkur vinnunni og hvar ekki? Það er alltaf að trufla menn svolítið. En við erum að skoða málið og erum rétt byrjuð á því. En erindunum hefur öllum verið svarað á sama veg; að málið sé til skoðunar,“ sagði Kristinn Þorsteinsson skóla­stjóri við það tilefni.

Um þrjátíu kennarar og starfs­fólk við Fjölbrautar­skólann í Garðabæ lýsa nú andstöðu við málflutning Páls Vilhjálms­sonar, sögu­kennara við skólann, á bloggsíðu hans. Skóla­stjóri segir skrif hans valda skólanum tjóni og kennari segir skrifin hafa áhrif á andrúms­loftið á kennara­stofunni.

Páll hefur kennt við skólann um árabil og samhliða verið virkur í skrifum sínum á Mogga­blogginu. Skrif hans hafa í gegnum tíðina þótt umdeild en ritsjórar Morgun­blaðsins, Haraldur Johannesen og Davíð Oddsson, hafa endur­tekið tekið skrif Páls upp og birt í Staksteinum Morgun­blaðsins.

Pistlar Páls fordæmdir 

Kristinn skóla­stjóri stað­festir í samtali við Vísi að tvö erindi hafi borist vegna pistilsins sem var lagður fyrir skóla­nefnd í dag. Annars frá heilsu­nefnd skólans, þar sem blogg­skrifunum var mótmælt, og hins vegar frá þrjátíu starfs­mönnum og kennurum við skólann. Þar sé fyrr­nefndur pistill Páls fordæmdur.

„Ég skil starfs­menn á þann hátt að þeir vilji leggja áherslu á að þeir eru ósammála blogg­skrifum Páls og vilja ekki að skólinn sé dæmdur af þeim skrifum. Aðrir starfs­menn skólans fordæma þessi skrif,“ segir Kristinn. Skólinn hafi lagt áherslu á frjáls­lyndi, vilji vera staður fyrir alla nemendur og starfs­fólki finnist þetta ekki í takti við þau gildi.

„Að sama skapi er mér full­frjálst að segja að þetta sé óheppilegt fyrir skólann og valdi honum tjóni,“ segir Kristinn. Hann hafi rætt við Pál oftar en einu sinni, nú síðast um erindið frá starfs­fólki.

„Ég sagði honum að ég væri ósammála -skrifum hans. Þetta valdi okkur tjóni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég ræði við Pál og eflaust ekki það síðasta.“

Skrif Páls sverta ímynd skólans

Petrún Björg Jóns­dóttir, kennari við FG, er hinsegin fulltrúi skólans og segist hafa verið ein þeirra sem stóð fyrir undir­skriftar­söfnuninni. Henni hafi runnið blóðið til skyld­unnar, sem starfs­maður skólans og femínisti.

Hún segist vinna með ungu fólki af ólíkum kynjum í hinsegin félagi skólans. Þar séu krakkar með persónu­fornöfnin hann, hún og hán. Þau séu nokkuð mörg með kynhlutlausa persónu­fornafnið hán. Nemendurnir taki eftir og finni fyrir skrifum Páls.

„Algjör­lega, það er alveg á hreinu. Mér finnst það hafa verið óþægilegt undan­farið. Það er sama hvar þú talar um þennan skóla. Þetta er haft á orði.“

Það sé hennar upplifun að skrif Páls hafi svert ímynd skólans. Þá hafi skrifin haft slæm áhrif á andrúms­loftið á kennara­stofunni.

Í samtali við Vísi eru hún spurð hvað muni gerast næst?

„Við höfum ekkert að gera með fram­haldið. Það þurfti bara að koma þessu á blað,“ segir Petrún. Kristinn skóla­stjóri talar á svipuðum nótum. Hans samtöl við Pál muni halda áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá