Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Auður Jónsdóttir: „Ég stakk upp á því að við giftum okkur, þá gæfu allir okkur sígarettur og kaffi“

Kvik­myndin Skjálfti er byggð á bók Auðar Jóns­dóttur Stóra skjálfta. Myndin er um floga­veika konu og sjálf fékk Auður flogaköst um árabil. Í viðtali við Reyni Traustason í Mann­lífinu talar hún meðal annars um þennan tíma í lífi sínu, ömmu og afa á Gljúfra­steini og hún talar um tímann á Flateyri þar sem hún bjó um tíma meðal annars í verbúð og giftist svo beitningar­formanninum sem var um 20 árum eldri og hvarf jafnvel í tvo daga þegar hann datt í það. Svo fór hún til Svíþjóðar og hún segir að þar í sólinni hafi hún gleymt að hún væri gift. Auður skildi og giftist svo aftur. Hún býr í dag í Vestur­bænum með syni sínum og er ný bók á leiðinni.

Hún vann í frysti­húsinu, en svo fór hún að vinna í beitningar­skúr. Fór að beita.

Hún talar um hve dimmt hafi verið í frysti­húsinu. „Þá byrjaði vinnslan alltaf fimm á morgnana. Þá kom maður inn í myrkri og um veturinn var þessi bláleita birta í hádeginu og svo var orðið dimmt þegar maður kom út aftur. Þannig að ég fór að vinna í beitningunni hluta úr degi til að fá einhverja dagsbirtu.“

Þetta var leitin að birtunni.

„Ég man að það var rosaflott mynd af Pamelu Anderson á glugganum; maður sá snjóinn úti og svo var hún í sundbol og brjóstin upp úr.“

Hvað var hún lengi með balann?

„Ég var frekar hæg, held ég.“

Þarna kynntist Auður beitningar­formanninum. „Ég fór heim með honum eftir ball á gamlárs­kvöld og endaði með að giftast honum.“

Peningaleysi og brúðkaup

Beitningar­formaðurinn var Þorsteinn Arnberg Jónsson. Aldurs­munurinn á honum og Auði tæp 20 ár.

„Þetta var kannski ekki ást. Hann drakk mjög hressilega. Og ég var meðvirkur unglingur.“ Hún var þó þarna orðin rúmlega tvítug. „En það var skemmtilegra að hanga með honum en í verbúðinni. Hann var líka mjög flinkur teiknari. Allt í einu var ég farin að gista frekar hjá honum en í verbúðinni. Svo vantaði okkur einu sinni pening þannig að ég stakk upp á því að við giftum okkur, þá gæfu allir okkur sígarettur og kaffi; þetta var morgun  sem við vöknuðum rosablönk. Svo ég hringdi í Ólaf, sýslumann á Ísafirði, og spurði hvort hann gæti gift mig. Hann spurði hvenær ég vildi gifta mig. Ég sagðist vilja gera það þann daginn. Þetta var af því að mig vantaði svo pening; ef ég tilkynnti fólki að ég væri að gifta mig þá gæfu allir mér eitthvað og gerðu eitthvað fyrir mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt