Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Karlar hafa lúmskt gaman af Saumaklúbbnum: „Fanney fyrir fimm árum var reiðari og hræddari“

Ljósmyndari: Kristbjörg Kamilla Sigtryggsdóttir – KKamilla Photography.
Ljós­mynd­ari: Krist­björg Kamilla Sig­tryggs­dóttir – KKamilla Pho­tography.

„Markmið mitt er að vera mín eigin fyrirmynd og vera þekkt af góðu. Auk þess að vera mamma dásamlegra barna minna og eiginkona Ara míns, þá er Fanney í dag ekki sú sama og Fanney fyrir fimm árum. Fanney fyrir fimm árum var t.d. oft reiðari og hræddari en Fanney í dag. Lífið er jú alls konar og við erum alltaf að mótast í takt við þær áskoranir og uppákomur sem lífið færir okkur,“ segir Fanney Marín Magnúsdóttir, eigandi heilsu- og samfélags­síðunnar Mín Leið Upp.

„Mín Leið Upp er hugmynd sem fæddist eina andvöku­nótt og varð til samhliða BA-ritgerðinni minni. Markmið mitt var að búa til vettvang sem ég hefði vilja hafa aðgang að þegar ég tók mín fyrstu skref á leið minni upp. Vettvangur þar sem við getum aðstoðað hvert annað á okkar leið upp.

Ég var hikandi og feimin fyrst, en byrjaði að setja #minleidupp á Instagram og þá fór boltinn að rúlla.“

Reynslusögur ólíkra

Á heimasíðunnni er hægt að nálgast reynslu­sögur ólíkra reynslu­bolta og verkfæra­kistu sem leiðir fólk áfram í sjálfs­vinnu og hún segir okkur að það hafi glatt hana óskaplega þegar hún heyrði af kennara sem hvatti nemendur sína til að fara á heima­síðuna og nýta sér verkfæra­kistuna. 

Mín Leið Upp er einnig með vefverslun sem vex og dafnar. Í henni eru m.a. til sölu skart­gripir og bækur sem hún sjálf hannar og lætur gera fyrir sig. 

Stemmingin er létt og vinaleg

Ljós­mynd­ari: Krist­björg Kamilla Sig­tryggs­dóttir – KKamilla Pho­tography.

„Við Karlotta Ósk Jóns­dóttir, vinkona mín, fórum af stað með hlað­varpið „Sauma­klúbburinn“ þann 17. nóvember 2021 og eru þættirnir nú orðnir 17 talsins. 

Sauma­klúbburinn er hlaðvarp fyrir konur, þó svo að við höfum áreiðanlegar heimildir fyrir því að það séu karlar þarna úti sem hafa lúmskt gaman af því að hlusta líka.“

Hlustenda­hópurinn er á mjög breiðu aldurs­bili en mark­hópurinn er 35 ára og eldri.

Í Sauma­klúbbnum er spjallað um allt sem tengist því að vera kona, móðir og eiginkona og rætt er af einlægni um þær skyldur og áskoranir sem konur eru að takast á við hverju sinni. 

alveg eins og alvöru, góður sauma­klúbbur

„Stemmingin er létt og vinaleg, mikið hlegið en líka alveg stundum grátið. Einnig fáum við reglulega til okkar gesti sem hafa sögur að segja, bæði lands­þekkta og ekki.“

Það kemur alltaf nýr þáttur út á mánudögum og fara upptökurnar fram í kósí­heitum í sófanum heima hjá Karlottu, alveg eins og alvöru, góður sauma­klúbbur.

Vinkonur sem ég get grátið og hlegið með

Helsta áskorun Fanneyjar hefur verið að finna þetta vandfundna, gullna jafnvægi í daglegu einkalífi og starfi og muna eftir sjálfri sér í leiðinni. 

Það koma auð­vitað á milli, minna hressi­legir dagar

„Undan­farin fimm ár hafa verið krefjandi. Að halda saman námi, styðja við drenginn minn, sem spilar fótbolta í Englandi, sinna heimili og börnum á Íslandi, finna tíma fyrir eigin­manninn, vinna að Mín Leið Upp og vera til staðar fyrir vini og fjöl­skyldu hefur vissulega verið krefjandi, en yfirleitt hrikalega skemmtilegt. 

Það kom mér á óvart hvað það hefur tekist vel að halda öllum boltum á lofti og skipuleggja mig, án þess að finnast ég vera stöðugt á örmögnunar­stigi og vera í rauninni frekar hress flesta daga. Það koma auðvitað á milli minna hressilegir dagar og þá er ég bara minna hress í smá tíma og leyfi mér það.

En þetta mikla púsl myndi auðvitað ekki ganga upp nema með aðstoð góðra vina og fjöl­skyldu. Ein af stærstu áskorununum þegar kemur að Mín Leið Upp er eflaust vinnan í kringum heima­síðuna sjálfa en þar hafa Thury Hannesdóttir og maðurinn minn reynst mér einstak­lega vel. 

Ég á ómetanlegar vinkonur sem ég get grátið og hlegið með og við grípum hver aðra til skiptis. Mamma hefur líka einstakt lag á að hvetja mig áfram og hjálpa mér að finna sjálfs­öryggið í því sem ég er að gera og hjálpar mér að taka rökréttar ákvarðanir.“

Lífið er gott

„Næst á döfinni hjá mér er að halda áfram með með Mín Leið Upp, en það hefur gengið vel og það gerir hlað­varpið okkar Karlottu, „Sauma­klúbburinn“, líka. Ég er komin í gott samstarf við aðila sem vinna með mér að sjálf­styrkingar­námskeiði „Minnar Leiðar Upp,“ en ég vinn einnig að fyrirlestraröð sem snýst um að vera sín eigin fyrirmynd.

Lífið er frekar gott sjáðu til.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá