Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kona stakk mann sinn til bana eftir að hann barði hana: „Gerði hrottalega á hlut hennar“

Steindór var stunginn í bringu og kvið og lést 18 dögum síðar af lungna­bilun vegna bráðrar lungna­breytingar og lungna­bólgu í kjölfar þess. Steindór er talinn hafa barið sambýlis­konu sína Sigurhönnu í andlitið að kvöldi árásarinnar. Sigur­hanna, er sögð hafa reiðst heiftar­lega og ráðist á Steindór eftir að hann barði hana. Sigur­hanna bar við minnis­leysi sökum ölvunar, en hún hlaut 8 ára dóm í Héraðs­dómi Reykja­víkur þann 25. október 2002.

Atburða­rásin átti sér stað á heimili þeirra á Grettis­götu í mars sama ár.

Mundi ekki eftir atburðinum vegna ölvunar

Héraðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Sigurhönnu sem þá var 39 ára, í 8 ára fangelsi fyrir manndráp að kvöldi 6. mars, árið 2002.

Ákærðu var gefið að sök að hafa ráðist á sambýlis­mann sinn, Steindór, sem var nýorðinn 50 ára, á heimili þeirra á Grettis­götu. Steindór var stungin þrisvar sinnum með hnífi í brjóst­kassa og kvið, þar af tveimur djúpum stungum, með þeim afleiðingum að hann lést hinn 24. mars af lungna­bilun vegna bráðrar lungna­breytingar og lungna­bólgu sem var afleiðing atlögu ákærðu.

Í niður­stöðum dómsins segir að ákærða muni ekki eftir því vegna ölvunar þegar Steindór fékk áverkana af hnífnum og taldi dómurinn ljóst að hún hefði verið mjög ölvuð þegar atburðurinn varð. Fyrir dómi sagði hún sambýlis­mann sinn hafa barið sig í andlit fyrr um kvöldið og studdist það við annað í málinu.

Reiddist heiftarlega eftir að henni var sagt að hann hefði slegið dóttur sína

Dómurinn taldi ljóst að ákærða hefði reiðst sambýlis­manni sínum heiftar­lega þegar henni var sagt að hann hefði slegið dóttur hennar. Samkvæmt frásögn vitna taldi dómurinn sannað að ákærða hefði í mikilli reiði tekið morð­vopnið í eldhúsinu og síðan veist að Steindóri með því þar sem hann sat í sófa í stofunni og stungið hann þrisvar á hol.

Af því sem tveir lögreglu­menn höfðu eftir ákærðu eftir verknaðinn taldi dómurinn ljóst að fyrir henni hefði vakað beinlínis, meðan á árásinni stóð, að bana Steindóri. Dómurinn taldi þó að þessi ásetningur hefði ekki vaknað með henni fyrr en rétt áður en hún framdi verknaðinn.

Við ákvörðun refsingar taldi dómurinn að ekki yrði litið framhjá því að verkið var unnið í snöggu heiftar­kasti og að ákærða hefði mátt þola viðvarandi kúgun og ofbeldi af hendi hins látna. Dómurinn taldi ennfremur að byggja yrði á þeirri frásögn ákærðu að í eitt skipti, hálfum mánuði fyrir atburðinn, hefði hinn látni gert hrotta­lega á hlut hennar.

Heimildir:

Innlendar fréttir. 26. október 2002. Banaði sambýlis­manni sínum með hnífi á heimili þeirra. Dæmd í átta ára fangelsi fyrir manndráp. HÉRAÐSDÓMUR Reykja­víkur dæmdi í gær Sigurhönnu Vilhjálms­dóttur, 39 ára, í 8 ára fangelsi fyrir manndráp að kvöldi 6. mars sl. Morgun­blaðið.

Ótt. 26. október. 2002. Kona dæmd fyrir manndráp. Mildandi áhrif í dómi í Grettis­götumálinu – mið tekið af kúgun og hrotta­skap. DV

Sunna Karen Sigurþórs­dóttir. 10. júlí 2015. Þyngsti dómur yfir kvenmanni í 34 ár. Vísir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá