Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tjón vegna fjárfestasvindls komið upp í hálfan milljarð frá 2017: „Sérhæfðir glæpamenn að störfum“

Í frétta­skýringa­þættinum Kveik í kvöld var fjallað um svokallað fjárfesta­svindl, sem hefur færst mikið í aukana síðustu ár. Gísli Jökull Gíslason, rannsóknar­lögreglu­maður, sagði í þættinum að fjárhæð tjóns úr þess konar svindli sér komið upp í næstum hálfan milljarð hér á landi, frá árinu 2017.

Um er að ræða skipulagða glæpa­starfsemi á netinu sem leiðir venjulegt fólk í gildrur, með ýmsum gylli­boðum um vænlegar fjár­festingar. Oft birtast svindl af þessu tagi uppruna­lega sem auglýsingar, sem líta út fyrir að vera fréttir af þekktum frétta­miðlum. Gjarnan má þar sjá þekkta Íslendinga, sem fullyrt er að hafi þénað vel á umræddri fjár­festingu. Ef smellt er á „fréttina“ færast notendur yfirleitt næst inn á síður sem virðast tilheyra hinu og þessu fjár­festingar­fyrirtækinu, sem mælt var með í „fréttinni“. Þar geta notendur síðan tekið þátt í umræddri drauma­fjár­festingu, með því að leggja til svo og svo mikið upphafsfé.

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hefur nú birt færslu á Facebook-síðu sinni vegna þáttarins, en lögreglan var í samstarfi við Kveik til að vekja athygli á þessum ört vaxandi flokki netglæpa, „sem er einn sá skæðasti í dag“.

Hér að neðan má lesa verknaðar­aðferð umræddra svindlara, sem lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hefur birt, almenningi til varnar og fræðslu. Þar segir að aðferðin sé oftast sú sama, með nokkrum blæbrigðum.

1. Veiði glæpa­mannanna:

Auglýsingar á samfélags­miðlum eins og Facebook. Þessar auglýsingar gefa til kynna mikinn gróða, oftast með fjár­festingum í rafmynt. Stundum er líka hringt beint í fólk.

2. Brotaþoli leiddur áfram:

Í auglýsingunni er tengill sem leiðir oft á falska síðu sem er látin líta út fyrir að vera íslensk frétta­síða. Þar má sjá myndir af frægum Íslendingum, misnotaðar til að telja fólki trú um að þetta sé raun­verulegt.

3. Netsíða „fjárfesta­fyrirtækis“:

Það þarf ekki mikla kunnáttu til að búa til hvers kyns netsíðu og láta hana líta út fyrir að vera raun­verulega. Á slíkum síðum er fólk hvatt til að skrá sig og sína. Síðan er stungið upp á því að fjárfesta fyrir viðráðanlega upphæð, eins og 200 evrur og fara að græða.

4. Fylgt eftir með símhringingum:

Þetta er lykil­atriði í svindlinu. Vinalegur „ráðgjafi“ sem heitir þægilegu nafni leggur sig fram við að vera besti þjónustu­aðilinn en allt er það hluti af svindlinu. Þegar þeir hafa komið upp traust-sambandi (á ensku kallað con) þá fara þeir að hringja og segja að nú séu frábær tækifæri á markaðnum og hvetja þig til að fjárfesta meira og meira. Í sýndar­veruleika heima­síðunnar virðist viðkomandi vera að græða en svo er ekki. Einu peningarnir eru þeir sem þeir eru að stela, engin fjár­festing á sér stað. Þessu tímabili fylgir oft tíma­bundin vellíðan sem dregur brotaþola enn lengra inn í svindlið.

5. Ný og ný flækju­stig:

Hunang og svipa, þeir nota ýmist gullin loforð eða tilkynna að nú sé allt að tapast nema fólk fjárfesti enn meira. Svo koma alls kyns skrýtin gjöld, jafnvel þegar fólk vill fara að fá peninga til baka er þeim sagt að það sé einungis hægt ef það sendir inn greiðslu.

Allt er þetta hluti af svika­myllunni og þeir hætta ekki á meðan það er von á að ná meiri peningum.

6. Nýjar nálganir:

Þegar þetta gengur ekki lengur þá reyna þeir nýjar aðferðir. Hótunar­póstar um að það eigi að handtaka þolendur fyrir þátttöku í svindlinu af því þau tóku þátt í peninga­þvætti, nema þau greiði sekt. Eða þeir bíða um tíma og segjast svo vera fyrirtæki sem getur endur­heimt peningana, gegn fyrir­fram­greiðslu auðvitað.

Allt þetta fer mjög illa með brotaþola, sem eru sendir í tilfinninga­lega rússíbanareið og það til viðbótar við peningana sem búið er að stela af þeim.

Aðferða­fræðin er mjög þróuð og glæpa­mennirnir eru vel skipulagðir. Einstaklingar sem þeir ná að grípa eru að keppa við skipulögð glæpa­samtök sem sérhæfa sig í þessu.

Sumir hafa fordóma gangvart brota­þolum í þessum málum. Það er röng nálgun. Svona glæpum fylgir oft mikil skömm hjá brota­þolum en munið að þarna eru sérhæfðir glæpamenn að störfum og hluti vinnu þeirra er að greina þá sem eru líklegri til að falla fyrir þessum glæpum og það eru svindl­ararnir sem hafa ásetning til að svíkja fé miskunnar­laust út úr fólki. Lögregla vill því brýna að það ætti engin skömm að felast í því að festast í hringiðu fjárfesta­svindls.

Endilega hafið samband ef þið haldið að þið eða einhver sem þið þekkið séu brota­þolar í netsvikum í [email protected]

(Tekið frá lögreglunni á höfuðborgrasvæðinu)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá