Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Umhverfissóðar í Breiðholti: „Mér er eiginlega orða vant“

Ekki er fallegt um að litast við grenndargámana á Seljabraut.
Ekki er fal­legt um að lit­ast við grennd­ar­gámana á Selja­braut.

„Vandinn er umgengni sóðanna, þetta kemur alltaf aftur,“ segir íbúi í Selja­hverfi um sóðaskap og rusl við gáma í hverfinu.

Við Selja­braut í Breið­holti eru grenndar­gámar stað­settir, þar sem fólk getur komið með pappa, plast og gler til endur­vinnslu, og fatnað til þess að gefa í söfnun. Umgengni við gámana hefur verið afar slæm og er íbúum á svæðinu mörgum nóg boðið.

Þessi var tekin nýlega við gámana.

Íbúar sem blaða­maður Mannlífs ræddi við segja að um sé að ræða stórt vandamál þar sem ákveðið fólk hlaði rusli á svæðið, löngu eftir að gámarnir eru orðnir fullir. Þannig safnist upp rusl sem síðan á það til að fjúka út um allt svæðið í vindasömu veðri, eins og mikið hefur verið um í vetur.

Umhverfis­sóðarnir hafa þó ekki látið það duga að hrúga upp endur­vinnanlegu rusli í kringum gámana, eftir að allt er orðið fullt. Þannig hefur rusl af ýmsu öðru tagi skotið upp kollinum á svæðinu. Þar er meðal annars um að ræða barna­bílstóla, þvotta­vélar og fleira sem ætti að vera öllum ljóst að eigi þar engan samastað.

„Það er alveg stór­merkilegt að fólk fari ekki bara með þetta drasl sitt á Sorpu,“ segir einn íbúanna í samtali við blaðamann. Flokkunarstöð Sorpu er staðsett rétt fyrir ofan svæðið, í Jafnaseli, eða í um 800 metra fjarlægð. Það gerir um það bil þriggja mínútna akstur. Ef fólk fer gangandi með pokana sína, er aðeins um tíu mínútna göngu að ræða og má ætla að ef fólk geti gengið að grenndar­gámunum geti það sömuleiðis gengið í Sorpu.

Ástandið við gámana var orðið verulega slæmt í gær, annan í páskum, en í dag var búið að tæma gámana og hreinsa í kring um þá. Þó ekki það rusl sem hafði fokið, sem enn er á víð og dreif um svæðið.

Rusl sem fokið hefur um svæðið í kringum gámana, sem vit­an­lega hverfur ekki þegar gám­arnir eru tæmdir.

„Það er búið að kvarta undan umgengni við grenndar­stöðvarnar í Breið­holti í þó nokkurn tíma,“ segir annar íbúi. „Ein stöðin við Arnar­bakka var fjarlægð vegna þessa en það dugði ekki til. Rusl er enn skilið eftir þar.“

Svona er iðu­lega um að lít­ast við Arn­ar­bakka, þótt gám­arnir hafi verið fjar­lægðir. Fólk kemur samt sem áður með hina ótrú­leg­ustu hluti þangað.

Þegar Facebook-síða íbúa Breið­holts er skoðuð kemur í ljós að málið er mikið til umræðu þar. Þar vill einn íbúi meina að þetta komi til vegna gjaldskrár­hækkunar og þeirrar stað­reyndar að nú fái fólk sektir fyrir að koma með svarta poka á Sorpu. Annar íbúi gefur lítið fyrir þá skýringu og segir vanda­málið hafa verið til staðar löngu áður en sú reglugerð var samþykkt. „Svona sóða­skapur frá fíflum er ekki tilkominn vegna einhverra sekta.“

„Mér er eiginlega orða vant,“ segir annar íbúi á síðunni. Af hverju er fólk svona miklir sóðar? Sorpa nokkur hundruð metra frá þessum gámum við Selja­brautina – ef fólk heldur áfram að skilja draslið sitt eftir á þennan hátt verða þessir gámar fjar­lægðir eins og gerðist við Arnar­bakkann – viljum við það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá