Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vinátta Bill Gates við Epstein ein af ástæðunum fyrir skilnaðinum: „Hann var viðbjóðslegur“

Melinda French Gates, fyrr­verandi eiginkona eins ríkasta manns heims, Bill Gates, tjáði sig í fyrsta skipti um skilnað þeirra hjóna í viðtals­þætti Gayle King, CBS This Morning í morgun. Vinátta hans við barna­níðinginn Jeffrey Epstein var partur af ástæðu þess að hún sótti um skilnað.

Melinda og Bill Gates voru gift í 27 ár og eiga þrjú börn saman en skildu í fyrra. Margir hafa velt sér því fyrir sér hver ástæðan var að Melinda sótti um skilnað, hún hafi í raun haft allt það sem peningar geta keypt. Nema eitt, eins og fram kom í viðtali Gayle King við hana í morgun. Það er ekki hægt að kaupa traust. Bill hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá henni einu sinni en sögu­sagnir um fleiri fram­hjáhlaup hafa verið á sveimi. „Það var ekki eitthvað eitt augnablik eða einn ákveðinn hlutur sem gerðist. Það kom bara sá tími að ég áttaði mig á að sambandið var ekki heilbrigt og ég gat bara ekki treyst því sem ég hafði,“ sagði Melinda. Aðspurð hvort Bill hafi haldið oftar framhjá henni sagði hún að það væri spurning sem Bill þyrfti sjálfur að svara.

Þá sagði Melinda einnig í viðtalinu að eitt af því sem varð til þess að hún sótti um skilnað hafi verið vinátta Bill við barna­níðinginn Jeffrey Epstein. „Mér líkaði það ekki að hann hitti Jeffrey Epstein, nei. Ég sagði honum það skýrt,“ sagði hún og bætti við að hún hafi hitt Epstein „nákvæmlega einu sinni“ því hún vildi sjá hverslags maður hann væri. „Ég sá eftir því um leið og ég gekk inn um dyrnar. Hann var viðbjóðs­legur. Hann var illskan í mannsmynd. Ég sárvorkenni þessum konum,“ sagði Melinda og átti þá við fórnar­lömb Jeffrey Epstein.

Jeffrey Epstein er sagður hafa framið sjálfs­morð í fanga­klefa sínum en um það eru skiptar skoð­anir.

Vanity Fair fjallaði um málið í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá