Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir: „Ég lamdi engan með þessum staf, en ég var andskoti vígaleg“

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir

Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir talar í viðtali við Reyni Traustason meðal annars um árin á þingi, þar sem hún hún vildi koma á réttari og eðlilegri fisk­veiði­stjórnun, hún, sem hefur sagt sig úr Samfylkingunni, talar um skoðun sína á flokknum í dag, banka­söluna, aðra flokka, áhrif erjanna í Mennta­skólanum á Ísafirði þegar hún var þar skóla­meistari og ákvað að segja upp, umsókn sína um starf þjóðgarðs­varðar á Þing­völlum, sem endaði á því að hún fékk 20 milljónir eftir að kærunefnd jafnréttis­mála komst að því að Þingvalla­nefnd hefði brotið jafnréttislög eftir að annar, karl, hafði verið ráðinn í starfið og hún talar um björgunar­sveitar­störfin, hundinn sinn og uppáhalds­staðinn á Íslandi.

Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir sat á Alþingi 2009-2013 og 2015-2016 fyrir Samfylkinguna í Norðvestur­kjördæmi.

Það eru ekkert allir sem taka þennan slag eins og þegar hún var á þingi og tók slaginn við Samherja. Þetta var ekki til vinsælda fallið en hún var föst fyrir og gaf ekki eftir.

Flokk­ur­inn minn var ekki til­bú­inn að stíga þau skref sem stíga þurfti.

„Ef maður hefur trú á því sem maður er að gera þá finnst mér manni bera skylda til þess að standa með þeim málstað og ég hef alltaf verið föst fyrir þannig. Auðvitað hafa allir réttlætis­kennd. Ég ætla ekkert að halda því fram að ég hafi meiri réttlætis­kennd en aðrir. Við höfum hana öll. En það er misjafnt hvernig fólk gengur fram á því sviði. Ég bauð mig fram til að beita mér fyrir breytingum á fiskveiði­stjórnunar­kerfinu og eitt og annað sem ég lagði fram sem áherslur í mínum málflutningi áður en ég var kosin á þing og mér hefði fundist það alveg fráleitt ef ég hefði ætlað að víkja frá því þegar á hólminn var komið. Hins vegar lenti ég í því, þó ég væri í stjórnar­liði inni á þingi, að ég var í minni­hluta í raun og veru. Flokkurinn minn var ekki tilbúinn að stíga þau skref sem stíga þurfti þegar á hólminn var komið. Það náðist aldrei eining innan þing­flokksins um það sem þyrfti að gera þó að forysta flokksins væri á sama máli og ég. Kvóta­greifarnir hafa bara svo sterk ítök í öllum stjórn­málaflokkum. Þeir eiga sína fulltrúa inni í öllum flokkunum; það var kannski sárasta uppgötvunin sem ég gerði, sem bjartsýnn og vongóður þingmaður, að koma glæný inn eftir hrun og hélt nátt­úrlega að ég og mínir samferða­menn sem voru að koma nýir inn myndum öllu breyta og allt bæta. En svo nátt­úrlega gengur maður á vegginn og áttar sig á því að það er undirgerð, það er svona djúpgerð á bak við öll stjórnmál og alla stjórn­sýslu, þar sem ráðum er ráðið algerlega á bak við leiktjöld eða á bak við hinn opinbera vettvang lýðræðisins. Og það var bara það sem átti sér stað þarna. Og það er til dæmis ástæðan fyrir því að það er ekki enn þá búið að leiða til lykta þetta stjórnar­skrármál. Það er bara vegna þess að það er ekki hægt að koma auðlinda­ákvæðinu inn í stjórnar­skrá vegna þess að hagsmuna­öflin sem stýra útgerðinni í landinu ætla bara ekki að sætta sig við það.“

Kvótinn varð takmörkuð auðlind

Ólína segist hafa viljað koma á réttlátri og eðlilegri fisk­veiði­stjórnun. Segir að þetta kerfi sé harðlæst. „Því var bara skellt í lás þegar frjálsa framsalinu var komið á og mönnum var eiginlega afhent auðlindin; þeim sem höfðu þá verið þrjú ár eða lengur í greininni. Síðan lokaðist kerfið; nýir menn komast ekki inn nema þá sem leigu­liðar hinna sem fyrir eru sem fengu þetta upp í hendurnar. Kvótinn varð við þetta takmörkuð auðlind sem varð bara verð­mætari og verð­mætari og er farin að ganga í erfðir og verða andlag í hjóna­skilnaðar­málum og þegar verið er að skipta dánarbúum. Þetta er nátt­úrlega alls ekki eðlilegt. Þarna er búið að taka auðlindina og gera hana að ígildi einka­eignar. Og eftir því sem lengra líður án þess að þetta sé leiðrétt þá munu þeir standa fastar á því að það sé kominn hefðar­réttur og þetta sé stjórnar­skrár­varin eign sem þeim beri. Um það stendur styrinn.“

Að gerðir yrðu tíma­bundnir nýt­ing­ar­samn­ingar.

Ólína segist hafa viljað ná fram kerfis­breytingum sem fælu það í sér að kvótanum væri úthlutað á grund­velli nýtingar­samninga: Að gerðir yrðu tíma­bundnir nýtingar­samningar þannig að í staðinn fyrir að Samherji sé með eilífðar­ráðstöfunar­rétt á kvótanum þá fengi hann bara kannski nýtingar­samning til 10-20 ára og greiddi fyrir þann nýtingar­samning að fá úthlutaðan kvóta á hverju ári af þessum 20 árum.

„Ef hann myndi gerast brotlegur með brott­kasti eða óábyrgri umgengni um auðlindina þá myndi hann fyrirgera rétti sínum til að fá nýtingar­samninginn endurnýjaðan. Þannig að þá væru útgerðar­aðilarnir í raun og veru leigjendur hjá þjóðinni að þessum auðæfum en ekki eigendur. Það má alveg líkja þessu við ef það myndi rísa fjölbýlishús einhvers staðar í borginni og þangað kæmi hústöku­fólk sem kæmi sér þar fyrir, fengi leyfi til að vera þar í viku og væri svo bara sest að og það kæmust aldrei neinir aðrir inn í húsið og það væri aldrei borgað raunvirði húsaleigu.

Þessar breytingar náðu nátt­úrlega ekki fram að ganga þrátt fyrir mikið japl, jaml og fuður, nefndir og sátta­nefndir. Hins vegar var farið út í það í staðinn að hækka veiðileyfa­gjaldið og breyta lögum um greiðslu veiðileyfa­gjalds. Það gekk eftir í raun og veru í eitt ár. Svo hrökklaðist ríkis­stjórnin frá völdum og það kom ný ríkis­stjórn sem lét það verða sitt fyrsta verk að lækka veiðileyfa­gjaldið sem hefur síðan farið stig­lækkandi og er í dag aftur orðið málamynda­gjald eins og það var fyrir breytinguna. Þetta er óréttlætið.“

Það voru vonbrigði að jafnvel flokks­fólk Ólínu stóð ekki með henni að fullu.

þar kom í ljós fyr­ir­staða þegar upp var staðið. Og hún var Stein­grímur J. Sig­fús­son.

„Ekki mitt flokks­fólk og ekki heldur VG, sem var hinn stjórn­mála­flokkurinn sem fór með sjávar­útvegs­málin á þessum tíma og stýrði gangi mála og þar kom í ljós fyrir­staða þegar upp var staðið. Og hún var Stein­grímur J. Sigfússon.“

Eru það þá tengsl við kjördæmið og þessi stóru fyrirtæki þar?

„Ég held að þingmenn Norðaustur­kjördæmis myndu aldrei nokkurn tímann eiga neinn möguleika á að beita sér í átt til breytinga á fiskveiði­stjórnunar­kerfinu. Þar eru hagsmunir allt of ríkir hjá stór­útgerðinni, enda hefur nátt­úrlega mesta andstaðan komið úr því kjördæmi, leynt og ljóst.“

Er þá ekki snúið fyrir Loga Einarsson, núverandi formann, að beita sér af hörku?

„Það myndi ég halda enda hefur hann ekki beitt sér af hörku í því máli.“

Sagði sig úr flokknum

Ólína fékk ekki kosningu áfram. Hvað bar út af?

„Svo féll ég af þingi. Fyrst er það nátt­úrlega að fylgi Samfylkingarinnar hrundi eftir þetta stjórnar­samstarf. Það bara hrundi og við náðum ekki inn þingsætinu mínu, þannig að ég varð vara­þingmaður. En þá urðu þau hörmulegu tíðindi að félagi minn, Guðbjartur Hannesson, sem var fyrsti þing­maðurinn fyrir Samfylkinguna í kjör­dæminu, fékk krabba­mein og varð mjög veikur og ég kom inn fljótlega fyrir hann. Því miður entist honum ekki ævin. Hann dó á miðju kjör­tímabili og þá sat ég sem þingmaður í hans stað fram að næstu kosningum; það var nú reyndar ekki nema tvö ár.

Ég var komin í and­stöðu við Árna Pál Árnason sem var for­maður flokks­ins.

Svo voru komnar væringar innan flokksins. Það var svo margt búið að ganga á í sambandi við þessi fiskveiði­stjórnunarmál og eitt og annað. Ég var komin í andstöðu við Árna Pál Árnason sem var formaður flokksins á þeim tíma. Hann ætlaði sér þingsæti í Norðvestur­kjördæmi; var farinn að hringja til að safna stuðningi við sig, fann ekki stuðninginn og hætti við, en var þá auðvitað búinn að grafa undan mér og þá kom auðvitað Guðjón Brjánsson sem sá sér leik á borði og stökk inn og náði í prófkjöri fyrsta sætinu. Ég var búin að láta vita að ég gæfi ekki kost á mér nema í fyrsta sæti. Ég náði því ekki og þá stóð ég bara upp og fór.“

Ólína sagði sig úr Samfylkingunni í fyrra. „Ég fylgdi þeim nú að málum og var góður flokks­maður alveg þangað til fyrir svona ári síðan. Þá sagði ég mig úr flokknum, en ég lét það ekki fara hátt. Það var rétt fyrir kosningar og ég vildi af virðingu við félaga mína ekki vera að gera einhvern úlfaþyt úr því; fólkið sem ég hafði starfað með og var að berjast fyrir þingsætinu sínu meðal annars og ég þagði yfir því. Það er ekki fyrr en núna sem ég er farin að segja frá því að ég sé ekki lengur í Samfylkingunni.“

Mér finnst Sam­fylk­ingin hafa verið í mik­illi for­ystu­kreppu síð­ustu ár.

Af hverju sagði Ólína sig úr flokknum?

„Það var nátt­úrlega bara svo margt. Mér finnst Samfylkingin hafa verið í mikilli forystu­kreppu síðustu ár. Það að vísu lagaðist mikið um tíma eftir að Logi Einarsson tók við, en svo hefur hann þagnað verulega finnst mér upp á síðkastið og verið lítið afgerandi. Mér fannst flokkurinn ekki vera að taka raun­verulega á þeim málum sem hann átti að vera að taka á. Hann var svolítið mikið bundinn við kannski ekki lítil mál heldur mál sem vörðuðu minni þjóð­félagshópa og það var farið að yfir­skyggja fannst mér stóru málin. Svo fannst mér líka flokkinn vanta stefnu. Hann vantaði kannski ekki skrifaða stefnu, en hann vantaði stefnu í málflutningi sinna fulltrúa. Og ég er bara einhvern veginn þannig úr garði gerð að mér finnst að stjórnmál eigi að snúast um grundvallar­atriði og menn eigi að standa í lappirnar og taka slaginn ef þess þarf um grundvallar­málefni.“

Ólína segir að í dag dansi hún bara frítt á bárunni og hafi skoðanir á öllu og sé ekki bundin af neinum.

Algjörlega óásættanlegt

Hvað með þetta banka­brall allt saman?

Í öllu falli þá á hann auð­vitað að víkja.

„Það er nátt­úrlega mikið hneyksli hvernig þessi sala hefur náð fram að ganga, þessi seinni sala sérstak­lega, á eignar­hlut almennings í Íslands­banka. Og mér finnst allt hafa brugðist í því máli; spillingin, græðgin og leyndar­hyggjan hefur afhjúpast og hvernig allt er raun­verulega vaxið í íslenskum stjórn­málum. Þarna var mikið talað um langtíma­fjárfesta, kjölfestu­fjárfesta og erlenda fjárfesta; þetta átti allt að vera svo fínt og flott og það átti ekki að hleypa almenningi að þessu borði vegna þess að nú þurfti stóra aðila inn á sviðið og trausta aðila. Og svo kemur eitthvað allt annað í ljós. Svo er það faðir fjármála­ráðherrans sem er einn af kaup­endunum. Það eru sölu­aðilarnir sjálfir: Eigin­konur, systur, bræður, það eru vinir og flokks­félagar og svo koma nöfnin úr hruninu: Exista, Fons, Samherji. Aðilar sem eru tengdir alvarlegum mútu- og spillingar­málum erlendis og eru allt í einu farnir að dúkka upp. Eftir það sem gerðist 2008 þá er eiginlega ekki ásættanlegt að láta óáreitt þetta endurlit eða þessa endur­tekningu frá 2008. Þó að stærðirnar séu minni og við séum bara að tala hér um einn banka, þá er eðli málsins þannig að það er algjör­lega óásættanlegt. Bjarni Benediktsson sem fjármála­ráðherra var annaðhvort gjör­samlega vanhæfur eða ekki starfi sínu vaxinn í sambandi við þetta allt saman og þá á hann að axla pólitíska ábyrgð. Eða að hann vissi hvað hann var að gera og hafi hann vitað það þá finnst mér alveg augljóst að hann hafi gerst brotlegur. Í öllu falli þá á hann auðvitað að víkja. Og eiginlega ætti ríkis­stjórnin að víkja. Og það ætti að boða til kosninga og endurnýja umboð finnst mér núna.“

Sjálfum sér líkur

Ólína er spurð hvað valdi þessu undarlega sambandi VG og Sjálfstæðis­flokksins; VG var vinstra megin við Samfylkinguna á hennar tíð virtist vera og nú er VG einhvern veginn eins og gamli Framsóknar­flokkurinn var.

„Hefur VG ekki alltaf verið Framsóknar­flokkur í raun og veru? Ég held það nefnilega. Það er ekki nema lítil hluti hans sem er raun­verulega róttækur vinstri armur. Mér hefur alltaf þótt VG vera Framsóknar­flokkur. Þeir hafa staðið vörð um mjög svipaða hluti og Fram­sóknarmenn og haft fram­sóknaráru yfir sér.“

Stóriðju­dekur og ýmislegt.

„Mikið stóriðju­dekur og hljóðlát varðstaða um ákveðna hagsmuni. Og hvað gengur þeim til með að ganga til liðs við Sjálfstæðis­flokkinn í stjórnarsamtarfi og Framsóknar­flokkinn? Það er nátt­úrlega til þess að komast að völdum, en ég held að þeir hafi ekki séð alveg fyrir hvernig þetta myndi fara. Því þegar félags­hyggju­flokkar ganga í eina sæng með hægri öflunum á Íslandi þá er það alltaf ávísun á fylgistap. Mikið fylgistap. Og það ríður enginn vinstri­flokkur feitum hesti frá slíku eins og ég held að sé að koma í ljós núna í samstarfi VG við þessa gömlu helminga­skipta flokka, Sjálfstæðis­flokk og Framsóknar­flokk.“

Framsóknar­flokkurinn er kominn með allt aðra áru; hann er ekki eins umdeildur og Sjálfstæðis­flokkurinn.

„Þeir setja nátt­úrlega fram kosninga­slagorð: „Er ekki bara best að kjósa Framsókn?“ Það þýðir „okkur er alveg sama, við erum bara ligeglad; kjósið okkur“. Það bara segir „hér er engin pólitík, hér ætlum við bara að vera og sitja við kjöt­katlana“.

En er ekki ólíkt skárra Framsóknar­flokkur Sigurðar Inga heldur en Sjálfstæðis­flokkur Bjarna Benedikts­sonar?

þetta er bara valda­sæk­inn, lít­ill flokkur.

„Jú, ég meina, Framsóknar­flokkurinn er nátt­úrlega bara sjálfum sér líkur. Hann er ekki að hafast að, þetta er bara valda­sækinn, lítill flokkur sem reynir iðulega að koma sér í odda­aðstöðu þegar verið er að semja um myndun ríkis­stjórna. Sigurður Ingi hefur svo sem verið meinlaus og aðgerða­lítill má segja, en ég man þó þá tíð á meðan ég var í þinginu að hann var býsna harður í hagsmuna­vörslu fannst mér, bæði fyrir útgerðina og land­búnaðinn. En kannski er hann farinn að sjá hlutina í öðru ljósi. Ég skal ekki segja.“

Svo er Lilja Alfreðs­dóttir sem varaði við þessu banka­bralli með Íslands­banka. En svo segir fólk að hún hafi ekki látið bóka neitt.

„Hvaða þýðingu hefur það að vara við? Ég get kannski sett mig í þau spor, að ef þú ert í stjórnar­samstarfi og það eru þrír ráðherrar á fundi í efnahags­nefnd ríkis­stjórnarinnar, að þú reynir frekar að hafa uppi munnleg mótmæli heldur en að bóka því það gefur ekki góð skilaboð að vera með bókanir þegar það eru kannski þrír ráðherrar. En gott og vel. En það er greini­lega ekkert á það hlustað og hvað segir það þá um stöðu Framsóknar­flokksins í stjórnar­samstarfinu?

Svo þagnar Lilja. Hún lætur vita af þessum andmælum sínum en svo þagnar hún. Og það næst ekkert í hana. Næsta sem fréttist af henni er að hún er á Feneyjatvíæringnum þar sem hún er að tala um allt aðra hluti. Þannig að hver er þá stefna Framsóknar­flokksins í þessu máli?“

Ólína segir að Sigurður Ingi sé skaðaður eftir kenderíið á Búnaðar­þingi og ummæli sem féllu þar.

Hún er spurð hvort hún ætli aftur út í pólitík.

„Nei, ég hef ekki hugsað mér það. Ég get haft skoðanir á mönnum og málefnum, ég hef gaman af að blanda mér í umræðuna og skrifa og ef ég er kölluð til að halda ræður á útifundum þá er ég alveg tilkippileg í slíkt af og til.“

Áran erfið og þung

Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir segist vera Vestfirðingur að ætt og uppruna, en hún fæddist og ólst upp í Reykjavík. Hún gekk í Hlíða­skóla og segist hafa verið skóla­systir Brynjars Níels­sonar og Gústafs, bróður hans, og fleiri sem hrelldu hana og sem hún hrelldi á bernsku­árum sínum þegar hún gekk með járnstaf í hönd og stofnaði leyni­félög og skaut þeim skelk í bringu.

„Þeir voru bara skemmtilegir strákar. Okkur stóð svolítill stuggur af þeim, stelpunum, í leikjum og öðru.“

Aftur að járn­stafnum. „Ég lamdi engan með þessum staf, en ég var andskoti vígaleg með hann.“

Hún var send í sveit vestur á firði á sumrin til fólksins síns og svo varð pabbi hennar sýslu­maður, bæjar­fógeti og lögreglu­stjóri fyrir vestan og flutti fjöl­skyldan til Ísafjarðar árið 1973.

„Eftir það hafa tengsl mín við Ísafjörð verið mjög sterk því að eftir að ég fór svo suður í háskólann þá kom ég aftur 2001 og var í 16 ár fyrir vestan. Ég kom svo suður aftur sem þingmaður.“

Á síðu Alþingis má meðal annars finna þetta um feril Ólínu: „Stúdents­próf MÍ 1979. BA-próf í íslensku HÍ 1985. Cand.mag.-próf í íslenskum bókmenntum og þjóðfræði HÍ 1992. Stjórnunarnám við viðskipta- og hagfræði­deild HÍ 1998–1999. Kennslu­réttindi á framhalds­skólastigi 2001. Dr. phil. í íslenskum bókmenntum HÍ 2000. Vann við fisk­vinnslu, var ritari og stundaði almenn skrifstofu­störf 1975–1985. Blaða­maður á NT, frétta­stjóri á Alþýðu­blaðinu 1985–1986. Frétta- og dagskrár­gerðarmaður á RÚV 1986–1990. Stunda­kennari í þjóð­fræðum við Háskóla Íslands 1992–2000. Forstöðu­maður þjóðhátta­deildar Þjóð­minjasafns Íslands 1998–2000. Skóla­meistari Mennta­skólans á Ísafirði 2001–2006. Verkefnis­ráðinn sérfræðingur við Stofnun fræða­setra Háskóla Íslands 2006–2009. Borgar­fulltrúi í Reykjavík 1990–1994, í borgar­ráði 1992–1994. Í stjórn Dagvistar barna 1990–1994. Formaður sveitar­stjórnar­ráðs Alþýðu­flokksins 1991–1993. Í stjórn Strætis­vagna Reykja­víkur 1994–1998. Í stjórn Neytenda­félags höfuð­borgar­svæðisins 1995–1996. Vara­formaður Kvæðamanna­félagsins Iðunnar 1996–1998. Formaður Íbúa­samtaka Vestur­bæjar 1998–2000. Vara­formaður Menningar­ráðs Vestfjarða frá 2007. Formaður stjórnar Fræðslu­miðstöðvar Vestfjarða 2001–2006. Formaður Vestfjarða-akademíunnar 2005–2008.“

Skóla­meistari Mennta­skólans á Ísafirði 2001-2006. Þar voru erjur. Gekk hún ósár frá þeim leik?

Lítill minni­hluti starfs­manna sem stóð fyrir þessum illindum.

„Já, það myndi ég nú alveg segja. Ég var mjög sátt við það hvað ég náði miklum árangri fyrir Mennta­skólann á Ísafirði og það varð mikil breyting á skólanum á meðan ég var skóla­meistari þó að ég segi sjálf frá. Svo komu upp deilur síðustu tvö árin sem ég var í starfi. Mér verður stundum hugsað til þess þegar ég er að fylgjast með Sólveigu Önnu og Eflingu; mér finnst nú ýmislegt kunnuglegt í þeim atgangi, eins og því sem ég gekk í gegnum. Svo áttaði ég mig á því að ég vildi ekki eyða lífi mínu í þetta. Ég var búin að gera það sem ég vildi gera fyrir skólann, ég var búin að gera mitt besta og þó að þetta væri lítill minni­hluti starfs­manna sem stóð fyrir þessum illindum þá var áran orðin svo erfið og þung að ég hugsaði með mér að ég ætlaði ekki að eyða lífi mínu í þetta. Ég var búin að gera það sem ég gat og ég steig bara til hliðar. Og það var alfarið og algjör­lega mín ákvörðun að fara og kom ýmsum í opna skjöldu. Ég man að Sjálfstæðis­menn reyndu á þeim tíma að láta líta út fyrir að ég hefði verið rekin, en það var ekki þannig. Ég ákvað að stíga til hliðar vegna þess að ólíkt því sem ýmsir halda þá er ég friðarins manneskja, þó ég geti verið föst fyrir ef að mér er sótt.“

Alveg grjóthörð.

„Ég get það alveg. En ég býð alltaf friðinn og vil helst hafa hann.“

20 milljónir

Það var haustið 2018 sem Þingvalla­nefnd auglýsti starf þjóðgarðs­varðar á Þing­völlum laust til umsóknar. Ólína sótti um og var í hópi 20 umsækjenda. Tveir þóttu vera hæfastir: Hún og Einar Á. E. Sæmundsen, sem síðar var ráðinn þjóðgarðs­vörður. Ólína kærði niður­stöðuna til kæru­nefndar jafnréttis­mála og komst nefndin að þeirri niður­stöðu að Þingvalla­nefnd hefði brotið jafnréttislög með því að ráða Einar. Þegar upp var staðið komst ríkið að samkomu­lagi um 20 milljóna króna bóta­greiðslu til Ólínu sem kærunefnd jafnréttis­mála hafði metið hæfasta.

Það voru nátt­úr­lega sjálf­stæð­is­menn sem stóðu í vegi fyrir mér.

„Það voru nátt­úrlega Sjálfstæðis­menn sem stóðu í vegi fyrir mér. Þetta varð pólitískt af því að það var ég sem sótti um. Ég hef grun um að það hafi verið á bak við tjöldin búið að ákveða að Einar Sæmundsen fengi þetta starf, vegna þess að það var alveg fyrirséð að Ólafur Haraldsson, sem var Þingvalla­þjóðgarðs­vörður, var að hætta vegna aldurs. Það var nátt­úrlega vitað. En þegar hann hætti vegna aldurs þá var staðan ekki auglýst heldur var settur maður í tíma­bundna stöðu og það var Einar Sæmundsen. Þannig að hann fékk heilt ár til að máta sig í starfinu og svo sótti hann um. Þá hefði maður átt að átta sig á því að það stóð til að ráða hann. En hann hafði hins vegar ekki þær forsendur sem ég hafði; bæði stjórnunar­reynslu, menntun og bara ýmislegt sem ég taldi auðsýnt að ég hefði fram yfir hann. Þannig að þeir hafa kannski ekki áttað sig á því að svona manneskja eins og ég myndi sækja um þetta starf; hafa talið þetta auðveldan leik. En hann varð það nú ekki.“

Og það varð að borga Ólínu bætur.

„Þeir brutu á mér stjórnsýslulög. Kærunefnd jafnréttis­mála úrskurðaði að þeir hefðu gerst brotlegir gagnvart mér og þá var ekki um neitt annað að ræða eins og ríkis­lögmaður upplýsti í blaða­viðtali; skaða­bótaskyldan var augljós. Þannig að það var samið um skaða­bætur.“

Reyndi þetta á Ólínu? Tók málið á?

„Svona mál tekur að sjálf­stöðu alltaf á því þú leggur sjálfa sig svolítið að veði. Mér finnst að fjöl­miðlar og aðrir mættu taka meira tillit til þess þegar fólk stendur í svona stríði; það hafa komið upp svona mál, líka eftir að þetta var eins og til dæmis með Hafdísi Ólafs­dóttur og Lilju Alfreðs­dóttur sem gekk fram hjá henni í starf ráðuneytis­stjóra. Þetta tekur nátt­úrlega gríðar­lega á þann sem er að leita réttar síns, en ekki þannig að ég væri neitt að bugast yfir því, en auðvitað tók þetta á. Ég var mjög fegin þegar því lauk.“

Hundurinn

Ólína, sem í dag starfar sem íslensku­kennari í hluta­starfi við Mennta­skólann á Lauga­vatni og Háskólann á Biförst, skrifar bækur og vinnur sem farar­stjóri á sumrin, hefur um árabil verið virk í björgunar­sveitar­störfum.

„Ég er aðeins farin að minnka afskipti mín af björgunar­sveitar­störfum; það er aðallega vegna þess að hundurinn minn, leitar­hundurinn minn sem hefur verið minn helsti félagi í björgunar­sveitar­starfinu, hann Skutull minn, er orðinn gamall og fer bráðum að sigla út úr veröldinni. Þannig að ég hef ekki getað tekið útköll með hann í meira en ár og þá hefur mín virkni aðeins minnkað. En ég þjónaði nú Lands­björg og mínu samfélagi í gegnum björgunar­sveitirnar í 14 ár, svoleiðis að ég get alveg vel við unað. Ég var lengst af með Skutul; ég var reyndar með annan hund á undan honum og tók þá aðallega leitar­útköll.“

Ólína er spurð hvað sé eftir­minnilegast úr björgunar­sveitar­starfinu.

Þarna mátti litlu muna að illa færi.

„Það er svo margt sem við Skutull höfum gengið í gegnum saman í björgunar­hunda­sveitinni. Leitin að Birnu Brjáns­dóttur var mér mjög eftir­minnileg og bara nokkur útköll sem við fórum í. Sá sem ekki hefur staðið sjálfur í útköllum á erfitt með að setja sig í sporin – hvað gerist þegar maður stendur einn uppi á miðri heiði og er að leita að týndri manneskju. Mér er líka mjög minnis­stætt atvikið sem varð upp undir Langjökli fyrir um tveimur árum, þegar hátt á fjórða tug manna var næstum orðinn úti þar í misheppnaðri jöklaferð sem fór öll úr böndum. Börn og full­orðnir. Þarna mátti litlu muna að illa færi. Ég stóð í þeirri aðgerð ásamt fleirum og við settum upp aukaviðbúnaðarstöð fyrir fólkið þegar það var að koma beint niður af jöklinum áður en haldið yrði með það niður að Gullfossi þar sem beið svo formleg fjölda­hjálparstöð. Ég held við höfum tekið mjög farsæla ákvörðun þar, þar sem við tókum svolítið málin í okkar hendur og ákváðum að hjúkra fólkinu og hlúa að því áður en haldið yrði áfram með það. Mér er sú nótt mjög eftir­minnileg.“

Hún talar líka um það að vinna með hundi. Að þjálfa björgunar­hund, vinna með honum og ná þessu ótrúlega vinnu­sambandi sem myndast milli manns og hunds. „Til að byrja með er þetta leikur fyrir hundinn. Öll þjálfun gengur út á það að þetta sé leikur og skemmtilegt en svo eftir því sem fram í sækir og maður fer að fara í útköll og annað, þá kemur alvaran í þetta og það er svo merkilegt að finna hvernig skepnan skilur það þegar þetta færist af því stigi að vera leikur yfir í það að hundurinn er farinn að vinna með þér og hann gerir allt sem hann getur til að ná þeim árangri sem að er stefnt. Ég hef komið heim með hundinn minn blóðrisa á þófum og örmagna af því að þeir gefast aldrei upp og aldrei hætta þeir. Þegar ég hugsa um það sem við Skutull minn höfum átt síðustu 12 árin á þessum vettvangi þá get ég sagt að ég ber virðingu fyrir þessari dýra­tegund, hundinum.“

Ólína viðurkennir að sig langi stundum til þess að þjálfa annan hund og halda áfram. „Ég er í fullu fjöri og myndi treysta mér til að halda áfram. Ég ætla að sjá til. Ég ætla ekki að gera Skutli það að taka annan hund á meðan hann er ofan jarðar.“

Fjöllin lokka og laða og hefur Ólína starfað sem leið­sögumaður á sumrin eins og þegar hefur komið fram. Hún segir að það sé hvergi betra að vera en á fjöllum. Hver finnst henni vera fallegasti staður á Íslandi?

„Það er Hornbjarg. Eiginlega úr öllum áttum. Kálfa­tindar og hvort sem þú horfir úr Látra­víkinni yfir. Og líka bara Horn­strandirnar. Logn, kyrrðin að kvöldi dags, bjargið og fjöllin speglast í skyggðum haffletinum og sólin að setjast. Þú heyrir gagg í tófu einhvers staðar og finnur lykt af þangi, baldursbrá og fjörukáli. Þetta er bara paradís á jörð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá