Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Verkefnalisti au pair vekur mikla reiði: „Skúra gólf, djúphreinsa klósett – Aftur í herbergið sitt“

Mynd úr myndabanka
Mynd úr mynda­banka

Í kjölfar frétta um konuna sem starfaði sem „au pair“ hér á landi og bjó við óviðunandi aðstæður, skapaðist mikil umræða á samfélags­miðlum.

Útlendinga­stofnun felldi úr gildi þá ákvörðun um að aftur­kalla dvalar­leyfi konunnar eftir að hún hætti störfum hjá fjöl­skyldunni. Konan, sem er frá Filippseyjum, lýsti aðstæðum sem hún hafi búið við og ströngum reglum um þrif og viðhald heimilsins. Henni hafi verið gert að fylgja reglunum og álagið verið gífurlega mikið en Vísir fjallaði um málið fyrir helgi.

Í kjölfar umræðunnar birtust skjáskot á samfélags­miðlum sem vöktu mikla reiði en þar má sjá strangar reglur og verkefna­lista, ætlaður au pair stúlku. Samkvæmt heimildum Mannlífs eru skjáskotin frá árinu 2019 og því ekki talin tilheyra au pair málinu sem fjallað var um fyrir helgi. Þrátt fyrir það eru reglurnar strangar og mikið til ætlast af au pair konunni.

Au pair – skjá­skot af reglum

Myndin sýnir vikulegan lista sem er ætlaður au pair. Hér að neðan má lesa listann á Íslensku.
„Mánudagur: Skipta um á öllum rúmum, taka til og þrífa eldhús skúffur
Þriðjudagur: Þrífa skúffur í þvotta­húsi, taka til í fata­skúffum í barna­herbergjum
Miðvikudagur: Skúra gólfin, þrífa borð, djúp­hreinsun á klósetti
Fimmtudagur: Þrífa rusla herbergi, þrífa skó stand, þurrka af í öllum herbergjum og þrífa gler
Föstu­dagur: Þrífa ísskáp, þrífa garðinn
Laugar­dagur: Skúra gólf, þrífa borð, djúp­hreinsa klósett“

Samhliða verk­efnunum átti au pair að sinna börnunum, hundinum og undirbúa mat líkt og sjá má á skjáskotinu hér að neðan.
Samkvæmt planinu átti dagurinn að hefast klukkan sjö með því að undirbúa morgunmat fyrir fjöl­skylduna. Því næst átti au pair að senda krakkana í skólann og fara með hundinn í göngutúr. Eftir það tók við þvottur, tiltekt og þrif en gert var ráð fyrir aðeins einum og hálfum klukku­tíma í frí yfir daginn. Deginum lauk klukkan átta um kvöldið en þar stendur: „Búin á vakt, aftur í herbergið sitt“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá